Guðmundur Árni býður sig fram til varaformanns en Heiða hættir við framboð

Fyrr­ver­andi vara­for­maður Alþýðu­flokks­ins og ráð­herra vill verða næsti vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Núver­andi vara­for­maður hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Árna Stefánssonar.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fundi flokks­ins sem fer fram 28. og 29. októ­ber. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þar seg­ist hann vilja freista þess að leggja jafn­að­ar­mönnum lið og nýrri for­ystu flokks­ins lið. „Nokkuð ljóst er að Kristrún Frosta­dóttir alþing­is­kona, mun að óbreyttu taka við for­mennsku í flokknum. Það er fagn­að­ar­efni og ég sé alla mögu­leika á því að jafn­að­ar­menn nái vopnum sínum og sterkri stöðu í póli­tík­inni undir hennar leið­sögn og sam­hentri for­ystu með grunn­gildi jafn­að­ar­stefn­unnar að leið­ar­ljósi. En flokkar eru ekki bara for­menn heldur einnig breidd í for­ystu. Og þess vegna er það mat mitt að ég geti komið bar­áttu jafn­að­ar­manna að gagni í stöðu vara­for­manns. Ég vil leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar. Með unga en afar kröft­uga þing­konu, Kristrúnu Frosta­dóttur, í stöðu for­manns og með mig við hlið hennar í for­ystu; mann sem hefur verið þátt­tak­andi póli­tík um ára­tuga­skeið og barist fyrir frelsi, jafn­rétti og sam­stöðu jafn­lengi undir merkjum jafn­að­ar­manna, þá hygg ég að mik­il­væg breidd í for­ystu verði til staðar. Enn­fremur er þannig gætt að jöfn­uði kynja ólíkum aldri og búsetu í for­ystu­sveit.“

Kom aftur í vor eftir margra ára útlægð úr stjórnmálum

Guð­­mundur Árni, sem verður 67 ára í lok mán­aðar, sat í bæj­­­ar­­stjórn Hafn­ar­fjarðar í tólf ár á síð­­­ustu öld, þar af sem bæj­­­ar­­stjóri í sjö. Guð­­mundur Árni steig upp úr þeim stóli 1993, fyrir 29 árum síð­­an, og sett­ist á þing í kjöl­farið fyrir Alþýð­u­­flokk­inn, og síðar Sam­fylk­ing­una, þar sem hann sat til 2005. Hann var vara­for­maður Alþýðu­flokks­ins 1994-1996 og aftur árið 1999, í aðdrag­anda þess að Alþýðu­flokk­ur­inn gekk inn í Sam­fylk­ing­una.

[adspot]Guð­mundur Árni var heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra og síðar félags­mála­ráð­herra árunum 1993 til 1994 en sagði af sér í nóv­em­ber það ár í kjöl­far skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um emb­ætt­is­verk hans. Hann var skip­aður sendi­herra árið 2005 og starf­aði sem slíkur í nokkrum löndum í 16 ár.

Segist til í slaginn

Í færsl­unni í dag segir Guð­mundur Árni að jafn­að­ar­menn vilji raun­veru­legan jöfnuð í sam­fé­lag­inu, frelsi með ábyrgð og virka sam­hjálp. „Við viljum sjáum víð­feðmt vel­ferð­ar­kerfi, þar sem fólk getur komið sér þaki yfir höf­uðið með við­ráð­an­legum hætti og notið traustrar sam­fé­lags­þjón­ustu við hæfi. En um leið þarf öfl­ugt atvinnu­líf og styrk efna­hags­stjórn ekki síður að vera til staðar. Jafn­að­ar­menn standa vakt­ina fyrir almenn­ing, enda höfnum við sér­hags­munum, en látum almanna­hags­muni ráða för. Í mörg horn er að líta og verk að vinna í íslensku sam­fé­lagi. Ég vil hjálpa til í þeirri veg­ferð. Með nýjum for­manni og for­ystu trúi ég því að góð sókn­ar­færi sé að finna fyrir okkur jafn­að­ar­menn á vett­vangi stjórn­mál­anna og íslensks sam­fé­lags. Þar er sann­ar­lega verk að vinna og eft­ir­spurn eftir sjón­ar­miðum og leið­sögn jafn­að­ar­manna. Ég er til í slag­inn!“

Heiða hætt við

Skömmu áður en Guð­mundur Árni birti færslu sína birti Heiða Björg Hilm­is­dóttir, núver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, færslu á Facebook þar sem hún til­kynnti að hún myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri eftir tæp­lega sex ára setu.

Þar til­tók Heiða að um síð­ustu mán­aða­mót hafi hún tekið við sem for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og að hún muni gegna því emb­ætti næstu fjögur árin. „Þessu nýja mik­il­væga hlut­verki fylgir mikil ábyrgð og ég vill leggja mig alla fram um að standa undir því mikla trausti sem sveit­ar­stjórn­ar­fólk um allt land, úr öllum flokkum, hefur sýnt mér með kjöri mínu. Það skiptir miklu máli fyrir íslenskt sam­fé­lag að sveit­ar­fé­lögin séu sam­taka og nái árangri til að tyggja hér jöfn tæki­færi og lífs­gæði um allt land, tryggja sam­keppn­is­hæft ísland. Síðan ég steig inni stjórn­málin hef ég hverju sinni reynt að leggj­ast á árarnar þar sem ég tel mig geta orðið að mestu gagni. Ég er í for­ystu­sveit í Borg­ar­stjórn Reykja­víkur, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og fjöl­skyldu­kona og þeim hlut­verkum ætla ég að for­gangs­raða á næstu miss­erum.“

Í ágúst sagði Heiða við mbl.is að hún vildi halda áfram sem vara­for­maður Sam­fylk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár