Framsókn hirti kjósendur í stórum stíl frá hinum stjórnarflokkunum og Miðflokki

Fylg­is­aukn­ing Fram­sóknar í síð­ustu kosn­ingum var tekin frá sam­starfs­flokk­unum í rík­is­stjórn og klofn­ings­flokki. Átta hverjum tíu kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks voru úr kjarna­fylg­inu. Framboð Sós­í­alista hafði nei­kvæð áhrif á fylgi Vinstri græna og Pírata.

Af kosningavöku Framsóknarflokksins í fyrrahaust.
Af kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins í fyrra­haust. Mynd: Bára Huld Beck

Næstum helm­ingur, þeirra sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn í síð­ustu þing­kosn­ingum, eða 47 pró­sent, kusu Mið­flokk­inn, sem er leiddur af fyrr­ver­andi for­manni Fram­sóknar, Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Vinstri græna fjórum árum áður. Þegar við bæt­ist að 41 pró­sent kjós­enda flokks­ins setti X við B í báðum kosn­ing­unum liggur fyrir að næstum níu af hverjum tíu kjós­endum Fram­sóknar haustið 2021, þegar flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur, kusu ein­hvern stjórn­ar­flokk­anna eða Mið­flokk­inn í þing­kosn­ing­unum 2017.

Þetta kemur fram í grein­inni „Kjós­endur eftir kreppu: Breyt­ingar, flökt og stöð­ug­leiki í Alþing­is­kosn­ing­unum 2021“ eftir Agnar Frey Helgason, dós­ent við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, Ólaf Þ. Harð­ar­sonar, pró­fessor emeritus við sömu deild, Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við deild­ina, Evu H. Önnu­dóttur, pró­fessor við stjórn­mála­fræði­deild og Huldu Þór­is­dóttur, sem er dós­ent við sömu deild. Greinin birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál & stjórn­sýsla í lið­inni viku. Þar greina höf­undar síð­ustu þing­kosn­ingar út frá nokkrum lyk­il­vísum fengnum úr kjós­enda­könnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS).

Sigur Framsóknar á kostnað hinna stjórnarflokkanna

Alls 45 pró­sent kjós­enda kusu annan flokk árið 2021 en þeir gerðu árið 2017. Þótt það sé lægra hlut­fall en var í hinum óvenju­legu kosn­ingum 2016 og 2017 þá er það samt sem áður hátt í íslensku sögu­legu sam­hengi.

[adspot]Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur naut þess að 89 pró­sent kjós­enda töldu hana hafa staðið sig vel við að takast á við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn síð­asta eina og hálfa árið fyrir kosn­ing­arnar í fyrra­haust. Það skil­aði sér í að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina, sem mæld­ist undir 50 pró­sent áður en far­ald­ur­inn skall á, rauk upp í tæp 60 pró­sent og hélst yfir 55 pró­sentum út síð­asta kjör­tíma­bil.

Það skil­aði sér í því að rík­is­stjórnin bætti við sig fylgi og þing­mönnum í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Því fylgi var þó mis­skipt. Bæði Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur töp­uðu fylgi og þing­mönnum en Framsókn bætti veru­lega við sig.

Í grein­inni segir að það hafi hinn 105 ára gamli flokkur gert með því að ná til sín kjós­endum frá hinum tveimur stjórn­ar­flokk­unum og klofn­ings­flokknum Mið­flokki. Alls kusu 19 pró­sent þeirra sem settu X við B í fyrra Mið­flokk­inn fjórum árum áður, 16 pró­sent kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn og tólf pró­sent kusu Vinstri græn. Einungis 41 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins kusu flokk­inn líka 2017.

Hinir stjórn­ar­flokk­arnir byggðu í mun meira mæli á kjarna­fylgi sínu. Alls 79 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fyrra kusu flokk­inn líka í kosn­ing­unum á undan. Hann náði í lítið hlut­fall af kjós­endum frá Framsókn og Mið­flokki, eða sex pró­sent frá hvorum, flokki, en höfð­aði ekki til fyrr kjós­enda neinna ann­arra flokka sem neinu nam.

Vinstri græn nutu stuðn­ings 59 pró­sent þeirra sem kusu flokk­inn 2017. Flokkur for­sæt­is­ráð­herra náði í 26 pró­sent kjós­enda stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata en ein­ungis ell­efu pró­sent fyrri kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja.

Sósíalistaflokkurinn hafði neikvæð áhrif á fylgi andstöðuflokka

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar bættu við sig fylgi í síð­ustu kosn­ingum. Um helm­ingur þeirra sem kusu Viðreisn 2017 gerðu það aftur í fyrra, en flokknum gekk ágæt­lega að lokka fyrrum kjós­endur Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Pírata til sín. Alls 37 pró­sent þeirra sem kusu Viðreisn í sept­em­ber kusu þessa þrjá flokka fjórum árum áður. Einungis átta pró­sent kjós­enda Við­reisnar í fyrra kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þann flokk sem stendur Viðreisn næst á hefð­bundnum vinstri-hægri skala og sem fjöl­margir for­s­víg­is­menn Við­reisnar til­heyrðu árum saman , árið 2017.

Flokki fólks­ins tókst að ná í ný atkvæði víða. Einungis 42 pró­sent kjós­enda hans kusu flokk­inn 2017 en 30 pró­sent þeirra kusu áður Vinstri græn, Sam­fylk­ingu eða Pírata. Þá kusu 17 pró­sent kjós­enda flokks Ingu Sæland Mið­flokk­inn árið 2017 og tólf pró­sent Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Þriðji flokk­ur­inn sem bætti við sig var að bjóða fram í fyrsta sinn, en það er Sós­í­alista­flokkur Íslands sem náði á end­anum ekki nægj­an­legum fjölda atkvæða til að ná inn á þing. Framboð hans hafði þó sýni­lega nei­kvæð áhrif á gengi Vinstri grænna (þriðj­ungur kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins kaus þann flokk 2017), Pírata (25 pró­sent), Flokk fólks­ins og Sam­fylk­ing­una (17 pró­sent hjá báðum flokkum).

Þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem töp­uðu atkvæðum voru Sam­fylk­ing, Píratar og auð­vitað Mið­flokk­ur­inn, sem féll næstum því út af þingi. Sam­fylk­ing­unni tókst að klóra nokkurn fjölda kjós­enda af Vinstri grænum, en 22 pró­sent kjós­enda flokks­ins kusu flokk for­sæt­is­ráð­herra 2017. Þá kaus tíund kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar Pírata fjórum árum áður. Uppi­staðan í fylg­inu, 60 pró­sent, var þó fyrri kjós­endur.

Meira flakk var á kjós­endum Pírata. Um helm­ingur þeirra kaus líka flokk­inn árið 2017, um 22 pró­sent kusu áður Vinstri græn og 15 pró­sent Sam­fylk­ing­una. Samkvæmt þessu komu 90 pró­sent atkvæða Pírata í síð­ustu kosn­ingum frá fólki sem kaus þessa þrjá flokka fjórum árum áður.

Breytt pólitískt landslag á þessu kjörtímabili

Ef tekið er mið af skoð­ana­könn­unum þá hefur hið póli­tíska lands­lag breyst umtals­vert á þeim mán­uðum sem liðnir eru af þessu kjör­tíma­bili. Eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, og við­brögð við honum, viku úr efsta sæt­inu í íslenskum stjórn­málum hafa önnur og hug­mynda­fræði­lega flókn­ari mál tekið yfir. Má þar nefna banka­sölu, efna­hags­legt rót með umtals­verðri verð­bólgu og skörpum hækk­unum á fram­færslu­kostn­aði heim­ila og sam­þykkt ramma­á­ætl­unar.

Rík­is­stjórnin siglir ekki lengur lygnan sjó með umtals­verðum meiri­hluta­stuðn­ingi. Þvert á móti mæld­ist stuðn­ingur við hana í síð­ustu könnun Gallup ein­ungis 44,3 pró­sent. Það er minnst stuðn­ingur sem nokkru sinni hefur mælst við rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

[adspot]Líkt og í kosn­ing­unum í fyrra eru það Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur sem eru að tapa fylgi, en Framsókn mælist enn í kjör­fylgi. Fylgi Vinstri grænna mæld­ist 8,1 pró­sent, sem er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með síðan skömmu eftir að Katrín Jak­obs­dóttir tók við sem for­maður flokks­ins árið 2013.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór í fyrsta sinn í sögu sinni undir 20 pró­sent fylgi í könnun Gallup í síð­asta mán­uði, þegar fylgið mæld­ist 19,8 pró­sent. Fylgi hans í byrjun júni var á nán­ast sama stað og breyt­ingar vel innan skekkju­marka, en 20,1 pró­sent sögð­ust þá styðja flokk­inn. Hann hefur tapað 4,3 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ing­um.

Tveir flokkar anda í hálsmál Sjálfstæðisflokks

Í enn nýlegri könnun, sem Prósent vann og Frétta­blaðið birti um miðjan júní, mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins ein­ungis 18,5 pró­sent og fylgi Vinstri grænna níu pró­sent. Píratar mæld­ust þar næst stærsti flokk­ur­inn með 17,5 pró­sent og Framsókn mæld­ist með 17,3 pró­sent. Samkvæmt því eru tveir flokkar mjög nálægt því að mæl­ast stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Það er afar sjald­gæft að sá flokkur, sem hefur stýrt Íslandi í fleiri ár en nokkur annar, mælist ekki stærstur.

Það gerð­ist í nokkrum könn­unum Gallup vorið 2013, þegar Framsókn undir for­ystu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar naut mik­ils stuðn­ings, um nokk­urra mán­aða skeið á árunum 2015 til 2016 þegar Píratar fóru með him­in­skaut­unum í könn­unum og mæld­ust mest með 36,1 pró­sent fylgi og í eitt skipti í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017, þegar Vinstri græn mæld­ust með 25,4 pró­sent fylgi. Allt síð­asta kjör­tíma­bil, og það sem af er þessu, hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hins vegar mælst stærstur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár