Framsókn mælist næstum jafn stór og Sjálfstæðisflokkurinn

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað umtals­verðu fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær mun verr til fólks undir fer­tugu en ann­arra á meðan að Framsókn nýtur mik­illa vin­sælda þar. Vinstri græn mæl­ast með þriðj­ungi minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum.

Flokkur Sigurðar Inga Jóhannssonar andar ofan í hálsmál flokks Bjarna Benediktssonar samkvæmt síðustu könnunum.
Flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar andar ofan í háls­mál flokks Bjarna Bene­dikts­sonar sam­kvæmt síð­ustu könn­unum. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokka munar ein­ungis einu pró­sentu­stigi á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Fram­sókn­ar­flokks hins vegar. Framsókn mælist með 18,3 pró­sent fylgi, sem er einu pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi flokks­ins, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19,3 pró­sent fylgi, sem er 5,1 pró­sentu­stigi undir því sem hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Nú hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn líka mælst með undir 20 pró­sent fylgi í nýlegum könn­unum allra þriggja könn­un­ar­fyr­ir­tækj­anna sem mæla fylgi stjórn­mála­flokka reglu­lega: Gallup, Prósents og Maskínu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í mestum vand­ræðum við að ná til ungs fólks, en fylgi hans hjá 18 til 39 ára er 14,3 til 14,7 pró­sent. Hjá yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, er flokk­ur­inn fjórði stærstur. Framsókn, Píratar og Sam­fylk­ingin njóta meiri stuðn­ings þar en hann.

Framsókn vinsæl hjá ungu fólki

Raunar er Framsókn að sækja stærstan hluta fylgis síns til ungs fólks. Hann nýtur stuðn­ings yfir 20 pró­sent kjós­enda hjá 18 til 39 ára.

[adspot]Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, mælist með 8,5 pró­sent í könnun Maskínu sem er svipað og flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með í könn­unum Gallup og Prósents und­an­farið. Flokkur for­sæt­is­ráð­herra hefur sam­kvæmt því tapað þriðj­ungi fylgis síns frá síð­ustu kosn­ingum og mælist nú fimmti stærsti flokk­ur­inn á Alþingi. Eini flokk­ur­inn sem skil­greinir sig vinstra megin við Vinstri græn á hinum hefð­bundna vinstri-hægri ás stjórn­mál­anna, Sós­í­alista­flokkur Íslands, mælist litlu minni sam­kvæmt Maskínu. Fylgi hans er nú 6,1 pró­sent.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 46,2 pró­sent en var 54,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Þeir hafa því tapað 8,1 pró­sentu­stigi á kjör­tíma­bil­inu og meiri­hluti þeirra yrði í hættu ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staðan væri í takt við könnun Maskínu.

Þrír andstöðuflokkar bætt við sig tíu prósentustigum

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa verið að mæl­ast með aukið fylgi í öllum könn­unum und­an­farna mán­uði: Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn. Sömu sögu er að segja í könnun Maskínu. Þar mælist fylgi Pírata 14,6 pró­sent, Sam­fylk­ingar 13,4 pró­sent og Við­reisnar 8,8 pró­sent. Allir flokk­arnir mæl­ast yfir kjör­fylgi. Píratar myndu bæta mestu við sig frá síð­ustu kosn­ingum, eða sex pró­sentu­stigum. Enginn einn flokkur mælist með meira við­bót­ar­fylgi. Sam­fylk­ingin myndi bæta við sig 3,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum, en for­manns­skipti eru framundan hjá þeim flokki í haust. Viðreisn mælist nú hálfu pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi þess­ara þriggja flokka hefur því auk­ist um tíu pró­sentu­stig frá því í sept­em­ber 2021 og mælist nú 36,8 pró­sent.

Tveir flokkar í stjórn­ar­and­stöðu tapa fylgi frá síð­ustu kosn­ingum, Flokkur fólks­ins sem mælist með 6,3 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 4,7 pró­sent fylgi.

Könnunin var gerð dag­anna 1. til 23. júní og svar­endur voru 1.658 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár