Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur aldrei mælst minni

Þegar rík­is­stjórnin sett­ist að völdum 2017 naut hún mik­ils stuðn­ings. Hann dal­aði þó hratt en reis aftur þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og hélst umtals­verður fram yfir kosn­ingar og inn á árið í ár. Á síð­ustu mán­uðum hefur hann hrunið.

Ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurnýjaði hjúskaparheitin eftir síðustu kosningar.
Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks end­ur­nýj­aði hjú­skap­ar­heitin eftir síð­ustu kosn­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks mælist nú 44,3 pró­sent sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er minnst stuðn­ingur sem mælst hefur við rík­is­stjórn flokk­anna þriggja, undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, frá því að hún var fyrst mynduð síðla árs 2017. Fyrri lág­punktur var í lok árs 2018 þegar stuðn­ingur við hana mæld­ist 44,8 pró­sent.

Þegar rík­is­stjórnin var fyrst mynduð fyrir um fjóru og hálfu ári síðan þá naut hún mik­ils stuðn­ings. Í fyrsta Þjóð­ar­púls­inum sem birtur var eftir að sam­starfið var gert form­legt sögð­ust 74,1 pró­sent lands­manna styðja hina óvenju­legu stjórn sem teygði sig frá vinstri, yfir miðj­una og til hægri. Þar spil­aði stóra rullu sá póli­tíski óstöð­ug­leiki sem ríkt hafði hér­lendis árin á undan en rík­is­stjórn hafði ekki náð að sitja sem meiri­hluta­stjórn út heilt kjör­tíma­bil síðan 2007.

Það fjar­aði hins vegar hratt undan vin­sældum hinnar nýju rík­is­stjórnar og strax á miðju ári 2018 var stuðn­ingur við hana farin að mæl­ast undir 50 pró­sent. Þannig var staðan meira og minna fram til byrjun árs 2020, en í jan­úar það ár mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 46,5 pró­sent.

Þá skall kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á og stjórn­málin breytt­ust á einni nóttu. Hefð­bundin hug­mynda­fræði­leg átök um áherslur og mál­efni viku til hliðar og allt fór að snú­ast um við­brögð við far­aldri og þjóðin fylkti sér á bak­við rík­is­stjórn­ina sem tók ákvarð­an­irnar um hvernig bregð­ast ætti við til að verja heilsu, efna­hag og sam­fé­lag á for­dæma­lausum tímum. Í lok mars var stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina komin upp í tæp 60 pró­sent. Fram til byrjun sept­em­ber­mán­aðar 2021, en þing­kosn­ingar fóru fram seint í mán­uði, hélst stuðn­ing­ur­inn mik­ill og fór aldrei undir 55 pró­sent. Far­ald­ur­inn var þá enn í fullum gangi. Omikron-afbrigði átti eftir að skella á lands­mönnum með til­heyr­andi tak­mörk­unum á dag­legt líf, sem kynntar voru í lok árs í fyrra.

[adspot]Í lok febr­úar var svo öllu aflétt. Eðlilegt líf var end­ur­heimt og sam­hliða því, eðli­leg og venju­bundin stjórn­mál. Í fyrsta Þjóð­ar­púls­inum sem gerður var eftir aflétt­ingu allra tak­mark­ana, og birtur var 31. mars, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 60,9 pró­sent.

Bankasalan reyndist stórmál

Reglu­legar kann­anir Gallup undir hatti Þjóð­ar­púls­ins á stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka og rík­is­stjórn eru gerðar yfir heilan mánuð. Þær end­ur­spegla því ekki alltaf nákvæm­lega hug fólks til flokka og stjórnar á nákvæm­lega þeim tíma sem nið­ur­stöður þeirra eru birtar.

Salan á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka, sem fram fór 22. mars, átti sér til að mynda stað seint á því könn­un­ar­tíma­bili sem skil­aði áður­nefndum 60,9 pró­sent stuðn­ingi. Skoðun almenn­ings á henni vigtaði ekki inn nema að hluta.

Í apríl kann­aði Gallup sér­stak­lega hug almenn­ings til þeirrar sölu. Nið­ur­staðan var að 87,2 pró­sent lands­manna töldu að staðið hefði verið illa að útboði og sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Kjós­endur allra ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks voru nær alfarið á því að útboðið og salan hefði verið klúð­ur, eða 89 til 97 pró­sent þeirra. Hjá kjós­endum flokks Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var staðan önn­ur. Þar töldu 26 pró­sent að útboðið og salan á hlutnum í Íslands­banka hefði verið vel heppnuð en 62 pró­sent að illa hefði tek­ist til.

Kjósendur Sjálfstæðisflokks með annað viðhorf

Gallup spurði einnig að því hvort rann­sókn­ar­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hafði lagt til. Nið­ur­staðan þar varð sú að 73,6 pró­sent lands­manna töldu að það eigi að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent töldu nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun gerði úttekt á söl­unni, líkt og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þegar falið henni að gera. Aftur skáru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sig úr, en 74 pró­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægði. Tæp­lega þriðj­ungur kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­sókn­ar­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokka voru nær allir á því að rann­sókn­ar­nefnd sé nauð­syn­leg.

Í könnun Gallup var líka spurt hvort fólk teldi að lög hefðu verið brotin við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Mik­ill meiri­hluti lands­manna, 68,3 pró­sent, töldu að sölu­ferlið hefði falið í sér lög­brot, en 31,7 pró­sent að svo væri ekki. Athygli vakti að 77 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna töldu að lög hefðu verið brotin og 67 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þegar kom að kjós­endum þriðja stjórn­ar­flokks­ins sner­ist staðan að venju við, en 77 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru sann­færðir um að engin lög hefðu verið brot­in.

Aðspurð hvort óeðli­legir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir við söl­una sögðu 88,4 pró­sent svar­enda svo vera. Ein­ungis 11,6 pró­sent töldu við­skipta­hætt­ina hafa verið eðli­lega.

Nær allir kjós­endur ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks­ins (89 til 99 pró­sent) töldu söl­una hafa verið fram­kvæmda með óeðli­legum við­skipta­hátt­um, en 41 pró­sent stuðn­ings­manna flokks fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra töldu að eðli­legum háttum hafi verið beitt.

Mesta dýfa frá því að ríkisstjórnin tók við lyklunum

Eftir banka­söl­una hrundi stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina. Í Þjóð­ar­púls­inum sem birtur var í lok apríl mæld­ist hann 47,4 pró­sent og hafði þá lækkað um 13,5 pró­sentu­stig á einum mán­uði. Það er mesta dýfa sem stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur tekið á einum mán­uði frá því að hún sett­ist að völdum.

[links]Í maí hélt stuðn­ing­ur­inn áfram að þok­ast niður, sam­hliða því að rík­is­stjórnin þurfti meðal ann­ars að takast á við erf­iða umræðu um flótta­menn og miklar hækk­anir á verð­lagi og lána­kjörum sem leiðir af sér kaup­mátt­arrýrnun. Nýverið bætt­ist þung umræða um sprungið heil­brigð­is­kerfi við og miklar skeyta­send­ingar milli ráð­herra mis­mun­andi flokka í gegnum fjöl­miðla.

Þær áttu sér ekki stað með opin­berum hættu sem neinu nam á síð­asta kjör­tíma­bili en eru nú nær dag­legt brauð. Þar má nefna gagn­rýni Lilju Alfreðs­dóttur á banka­söl­una og vilja hennar um að banka­skattur verði hækk­aður, þvert á vilja fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar um að segja for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins verða að gera það upp við sig sjálfan hvort hann ætl­aði að segja af sér vegna rasískra ummæla sem hann lét falla, gagn­rýni Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, á Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra vegna mál­efna flótta­manna og nú síð­ast rimmu Lilju og Bjarna vegna hækk­unar á end­ur­greiðslum vegna kvik­mynda­gerðar.

Afleið­ingin er sú að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina lækkar niður í sinn lægsta punkt frá upp­hafi, rúm­lega 44 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár