Allir formenn stjórnarflokkanna tapað umtalsverðu trausti á kjörtímabilinu

Formaður Fram­sóknar hefur tapað meira trausti það sem af er kjör­tíma­bili en hinir leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar. Van­traust á hann hefur líka auk­ist meira en í garð hinna for­mann­anna.

Á einu ári hefur traust á Sigurð Inga Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, fallið um 24 pró­sentu­stig, Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna, fallið um 18 pró­sentu­stig og á Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um 14,4 pró­sent.

Á sama tíma hefur van­traust á Sigurð Inga auk­ist um 22,4 pró­sent, á Katrínu um 18,3 pró­sentu­stig og Bjarna um 17,4 pró­sentu­stig. Katrín er samt sem áður sá for­maður stjórn­ar­flokks sem nýtur mest trausts, eða 43,2 pró­sent, og Bjarni sá ráð­herra sem flestir van­treysta, eða 61,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í könnun sem Maskína birti í vik­unni.

Katrín Jakobsdóttur úr 61,2 í 43,2 prósent á einu ári

Í nóv­em­ber 2021, skömmu eftir síð­ustu kosn­ingar, sögð­ust 61,2 pró­sent kjós­enda treysta Katrínu Jak­obs­dóttur. Síðan þá hefur glatað um 30 pró­sent af trausti í sinn garð og nú segj­ast 43,2 pró­sent treysta henni.

Sem stendur mælist traustið aðeins meira hjá konum en körlum og eykst eftir því sem fólk verður eldra. Þannig segj­ast 53,3 pró­sent 60 ára og eldri treysta henni á meðan að það hlut­fall er 32,9 pró­sent hjá ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Menntun virð­ist líka skipta máli þegar kemur að trausti á Katrínu, en það eykst eftir því sem fólk er betur menntað. Þá vekur athygli að sá tekju­hópur sem treystir henni best eru tekju­hæstu Íslend­ing­arnir, sem eru með 1,2 milljón króna eða meira í tekjur á mán­uði. Þar mælist traust til hennar 55,1 pró­sent á meðan að traustið heilt yfir mælist 43,2 pró­sent.

[adspot]Katrín nýtur mik­ils trausts hjá þeim sem segj­ast ætla að kjósa Vinstri græn næst þegar kosið verður. Enginn svar­andi sem sagð­ist styðja Vinstri græn sagð­ist van­treysta henni og 95,6 pró­sent sögð­ust treysta henni annað hvort mjög eða frekar vel. Kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna treysta for­sæt­is­ráð­herra einnig vel, en næstum tveir af hverjum þremur þeirra sem segj­ast styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Framsókn treysta for­sæt­is­ráð­herr­anum. Það hefur dreg­ist umtals­vert saman hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks frá því sem kom fram i nið­ur­stöðum Maskínu í sam­bæri­legri könnun sem gerð var í apríl.

Traust á Katrínu er áfram sem áður mun minna hjá and­stöðu­flokk­unum. Kjós­endur Pírata og Sós­í­alista­flokks Íslands, þess flokks sem er stað­settur næst Vinstri grænum á hinum hefð­bundna vinstri-hægri kvarða stjórn­mál­anna, eru þeir sem van­treysta henni mest.

Bjarni Benediktsson úr 37,6 í 23,2 prósent á einu ári

Alls segj­ast 23,2 pró­sent lands­manna treysta Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það er tæpum fimm pró­sentu­stigum fleiri en gerðu það í apríl en næstum 40 pró­sent færri en gerðu það í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins í nóv­em­ber í fyrra. 
Karlar treysta fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra betur en konur og traustið á hann eykst eftir því sem svar­endur eru eldri. Þá er bein fylgni milli tekna og þess að bera traust til Bjarna. Alls segj­ast 32 pró­sent þeirra sem eru með 1,2 millj­ónir króna eða meira í heim­il­is­tekjur á mán­uði treysta honum en 14 pró­sent þeirra sem eru með tekjur undir 400 þús­und krónum á mán­uði.

Það kemur vart á óvart á kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks treysta Bjarna mun betur en kjós­endur ann­arra flokka. Alls segj­ast 74 pró­sent þeirra bera mjög eða frekar mikið traust til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Um fjórð­ungur þeirra sem segj­ast kjósa Framsókn ef kosið yrði í dag bera traust til Bjarna og aðeins færri, 23 pró­sent, kjós­enda Mið­flokks­ins.

[adspot]Þá segj­ast 21,5 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna treysta honum vel. Það er miklu hærra hlut­fall þeirra en sagð­ist treysta honum í sam­bæri­legri könnun í apríl. Þá sagð­ist engin vænt­an­legur kjós­andi Vinstri grænna treysta Bjarna mjög vel og 8,2 pró­sent treysta honum frekar mikið. Það var svipað hlut­fall og hjá þeim sem kusu Vinstri græn í síð­ustu kosn­ingum.

Í könn­un­inni í apríl sögð­ust 70,7 pró­sent svar­enda van­treysta Bjarna. Enginn annar ráð­herra komst nálægt honum í van­trausti á þeim tíma. Van­traustið hefur dreg­ist nokkuð saman síðan þá og mælist nú 61,5 pró­sent. Það er þó enn langt yfir því sem það mæld­ist í nóv­em­ber 2021, þegar 44,1 pró­sent sögð­ust van­treysta Bjarna.

Þar skiptir mestu að dregið hefur veru­lega úr van­trausti á Bjarna hjá vænt­an­legum kjós­endum Vinstri grænna. Í apríl sögð­ust 78,9 pró­sent þeirra sem styðja Vinstri græn treysta Bjarna lítið. Nú hefur það hlut­fall fallið niður í 58,2 pró­sent. Van­traust á for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú nán­ast það sama hjá kjós­endum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Einungis 12,5 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins van­treysta for­manni sínum og og rúm­lega 55 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins. Hjá kjós­endum allra ann­arra flokka er van­traustið mun meira.

Sigurður Ingi Jóhannsson úr 54,4 í 30,4 prósent á einu ári

Traust til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, inn­við­a­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur fallið ansi skarpt á einu ári. Það mæld­ist 54,4 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra, 32,5 pró­sent í apríl og nú 30,4 pró­sent. Á sama tíma hefur van­traust á inn­við­a­ráð­herr­ann rúm­lega tvö­fald­ast. Það var 18,1 pró­sent í nóv­em­ber 2021, 38,9 pró­sent í apríl og mælist nú 40,5 pró­sent.

[links]Sigurður Ingi nýtur meira trausts hjá körlum en konum og, líkt og hjá hinum for­mönnum stjórn­ar­flokka, þá eykst traustið eftir því sem fólk er eldra. Tæplega 22 pró­sent 18 til 29 ára treysta honum en um 39 pró­sent þeirra sem eru yfir sex­tugt. Þá vekur athygli hversu mik­ill munur er á trausti til hans eftir búsetu. Annar hver svar­andi á Aust­ur­landi sagð­ist treysta for­manni Fram­sóknar á meðal að ein­ungis 23,5 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­innar Reykja­víkur gera það. Líkt og hjá Katrínu og Bjarna nýtur Sigurður Ingi mest trausts hjá tekju­hæsta hópi svar­enda.

Vænt­an­legir kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru ánægðir með sinn mann og næstum þrír af hverjum fjórum þeirra segj­ast treysta honum mjög eða frekar mikið. Rúmur helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna er á sama máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár