Svona er afstaða þjóðarinnar í lykilmálum samkvæmt skoðanakönnunum ársins 2022

Ýmis fyr­ir­tæki kanna reglu­lega skoð­anir lands­manna á ýmsum málum. Margar þeirra snú­ast um stjórn­mála­skoð­anir, efna­hags­leg mál­efni og traust til fólks, athafna, flokka, rík­is­stjórna eða stofn­ana. Hér eru átta skoð­ana­kann­anir sem vöktu athygli á árinu.

Það hefur gustað um ríkisstjórnina það sem af er kjörtímabili og vinsældir þeirra sem hana skipa hafa hríðfallið.
Það hefur gustað um rík­is­stjórn­ina það sem af er kjör­tíma­bili og vin­sældir þeirra sem hana skipa hafa hríð­fallið. Mynd: Bára Huld Beck

Breyting á stuðningi við aðild að Evrópusambandinu

Í könnun sem birt var í Frétta­blað­inu 24. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sögð­ust 42,8 pró­sent lands­manna vera hlynnt inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en 35,1 pró­sent eru and­víg því og 22,1 pró­sent eru óviss um afstöðu sína.

Þar kom líka fram að stuðn­ingur við aðild væri afger­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 47 pró­sent styðja hana en 30 pró­sent eru á móti. Á lands­byggð­inni mælist and­staða við aðild hins vegar nú meiri en stuðn­ing­ur, en 35 pró­sent svar­enda á henni segj­ast vilja ganga í Evr­ópu­sam­bandið á meðan að 44 pró­sent eru því mót­fall­inn. Þetta var þriðja könn­unin í röð sem sýndi afger­andi meiri­hluta fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á meðal ÍSlend­inga.

Í mars birt­ust nið­ur­stöður úr Þjóð­ar­púlsi Gallup sem sýndu að 47 pró­sent lands­manna væru hlynnt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en 33 pró­sent mót­fallin henni. Það var í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem meiri­hluti mæld­ist fyrir aðild í könn­unum hér­lend­is.

Hlut­­fall þeirra sem eru hlynntir inn­­­göngu Íslands í sam­­bandið hafði raunar ekki mælst meira en rúm­­lega 37 pró­­sent í mán­að­­ar­­legum könn­unum sem MMR fram­­kvæmdi frá 2011 og út síð­­asta ár. Í síð­­­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber í fyrra, mæld­ist stuðn­­ing­­ur­inn 30,4 pró­­sent en 44,1 pró­­sent voru á mót­i.

[adspot]Í könnun Pró­sents í júní var nið­ur­staðan svipuð og hjá Gallup í mars, 48,5 pró­sent sögð­ust hlynnt aðild en 34,9 pró­sent voru and­víg. Alls 16,7 pró­sent sögð­ust ekki hafa neina skoðun á mál­in­u.

Breyting á fylgi flokka

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist 21,1 pró­sent sam­kvæmt síð­asta birta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það jókst 4,5 pró­sentu­stig milli mán­aða og hafði þá rúm­lega tvö­fald­ast frá síð­ustu kosn­ing­um, en þá fékk flokk­ur­inn 9,9 pró­sent atkvæða. Þetta var í fyrsta sinn sem fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist yfir 20 pró­sent í könnun Gallup frá því í lok árs 2014, þegar flokk­ur­inn sat síð­ast í rík­is­stjórn, og mesta fylgi sem hann hefur mælst með í rúm­lega tíu ár, eða frá því í októ­ber 2012. Þá sat Sam­fylk­ingin í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og var undir for­mennsku Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur.

Á sama tíma mæld­ist fylgi Vinstri grænna nálægt því minnsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með hjá Gallup, eða 7,5 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með 12,2 pró­sent fylgi sem er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með á kjör­tíma­bil­in­u. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var hins vegar við kjör­fylgi.

Sam­an­lagt fylgi rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja mæld­ist 43,5 pró­­sent í nóv­em­berkönnun Gallup. Það fylgi myndi ekki duga fyrir meiri­hluta á þingi. Flokk­­arnir þrír fengu 54,4 pró­­sent atkvæða í kosn­­ing­unum 2021 og því hafa þeir tapað 10,9 pró­­sent­u­­stigum af fylgi á fyrsta ári kjör­­tíma­bils­ins. Það er minna en allt það fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig á því rúma ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ing­um, en það er 11,2 pró­sent.

Breyting á trausti til ráðherra

Á einu ári hefur traust á Sig­urð Inga Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, fallið um 24 pró­sentu­stig, Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna, fallið um 18 pró­sentu­stig og á Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um 14,4 pró­sent.

Á sama tíma hefur van­traust á Sig­urð Inga auk­ist um 22,4 pró­sent, á Katrínu um 18,3 pró­sentu­stig og Bjarna um 17,4 pró­sentu­stig. Katrín er samt sem áður sá for­maður stjórn­ar­flokks sem nýtur mest trausts, eða 43,2 pró­sent, og Bjarni sá ráð­herra sem flestir van­treysta, eða 61,5 pró­sent.

[adspot]Þetta kom fram í könnun Maskínu í lok nóv­em­ber. Þar kom einnig fram að eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands njóti lengur trausts meiri­hluta þjóð­ar­inn­ar. Allir ráð­herrar Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa tapað trausti frá því í apríl en allir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks hafa bætt við sig trausti á sama tíma.

Breyting á trausti til formanna

Í könnun sem Prósent gerði fyrir Frétta­blaðið, og var birt 18. nóv­em­ber, kom fram að Kristrún Frosta­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, væri sá stjórn­mála­leið­togi sem lands­menn treystu best. Alls naut hún trausts 25,4 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, var sá leið­togi sem næst­flestir treystu, eða 17,5 pró­sent, og á hæla hennar kom Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með 15,4 pró­sent. 11,3 pró­sent treystu Sig­urði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, mest og 9,7 pró­sent treysti Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, for­manni Við­reisn­ar, best.

Í októ­ber í fyrra, rétt fyrir Alþing­is­kosn­ing­arn­ar, vildu 57,6 pró­sent lands­manna Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt könnun Mask­ínu. Eng­inn annar leið­togi náði tíu pró­sentum í þeirri könn­un.

Skoðun landsmanna á sölu á Íslandsbanka

Salan á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars var eitt af stóru frétta­málum árs­ins. Ýmsar kann­anir voru gerðar á skoðun þjóð­ar­innar á því hvernig tókst til.

Sú umfangs­mest var gerð af Gallup í apríl. Í henni kom fram að 87,2 pró­sent lands­manna töldu að staðið hefði verið illa að útboði og sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Ein­ungis 6,4 pró­sent töldu að það hefði vel tek­ist til. Kjós­endur allra ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks voru nær alfarið á því að útboðið og salan hefði verið klúð­ur, eða 89 til 97 pró­sent þeirra. Hjá kjós­endum flokks Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var staðan önn­ur. Þar töldu 26 pró­sent að útboðið og salan á hlutnum í Íslands­banka hefði verið vel heppnum en 62 pró­sent að illa hefði tek­ist til.

Gallup spurði einnig að því hvort rann­sókn­ar­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefur lagt til. Nið­ur­staðan þar var sú að 73,6 pró­sent lands­manna töldu að það ætti að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent töldu nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun gerði úttekt á söl­unni, líkt og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þá þegar falið henni að gera. Aftur skári kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­sent þeirra er á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægi.

Í könnun Gallup var líka spurt hvort fólk teldi að lög hefðu verið brotin við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Mik­ill meiri­hluti lands­manna, 68,3 pró­sent, töldu að sölu­ferlið hefði falið í sér lög­brot, en 31,7 pró­sent að svo sé ekki. Athygli vakti að 77 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna töldu að lög hefðu verið brotin og 67 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þegar kom að kjós­endum þriðja stjórn­ar­flokks­ins sner­ist staðan að venju við, en 77 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru sann­færðir um að engin lög hafi verið brot­in.

Aðspurð hvort óeðli­legir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir við söl­una sögðu 88,4 pró­sent svar­enda svo vera. Ein­ungis 11,6 pró­sent töldu við­skipta­hætt­ina hafa verið eðli­lega.

Nær allir kjós­endur ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks­ins (89 til 99 pró­sent) töldu söl­una hafa verið fram­kvæmda með óeðli­legum við­skipta­hátt­um, en 41 pró­sent stuðn­ings­manna flokks fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra töldu að eðli­legum háttum hafi verið beitt.

Áður hafði Pró­sent gerð könnun um söl­una á Íslands­banka fyrir Frétta­blað­ið, en nið­ur­stöður hennar voru birtar 20. apr­íl. Þar kom fram að rúm­lega átta af hverjum tíu lands­­mönn­um, alls 83 pró­­sent aðspurðra, sögð­ust óánægð með fyr­ir­komu­lag á sölu.

Traust til að selja restina af Íslandsbanka

Eftir að Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði skýrslu sinni um sölu­ferlið í nóv­em­ber, þar sem nið­ur­staðan var að ann­markar sölu­ferl­is­ins hefðu verið fjöl­margir, spurði Maskína lands­menn hvort þeir treystu rík­is­stjórn­inni til að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Alls sögð­ust 63 pró­sent lands­manna að þeir treystu núver­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur illa til að selja hlut­inn. Ein­ungis 16 pró­sent sögð­ust treysta henni vel til þess og 21 pró­sent sögð­ust treysta henni í með­al­lagi.

Þegar afstaða fólks til þess hversu vel það treysta rík­is­stjórn­inni til að selja banka er flokkuð niður á stjórn­mála­skoð­anir kom í ljós að það voru ein­ungis kjós­endur eins flokks sem treysta henni að meiri­hluta vel fyrir að selja rest­ina af Íslands­banka. Það voru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, flokks Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Alls sögð­ust 58,9 pró­sent þeirra treysta rík­is­stjórn­inni vel til að selja eft­ir­stand­andi hlut í bank­an­um.

Athygli vakti að kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna treystu að uppi­stöðu rík­is­stjórn­inni alls ekki til slíkra verka. Ein­ungis 14,3 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna gerðu það og 16,1 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Auk þess sögð­ust 56,7 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna treysta rík­is­stjórn sem leidd er af for­manni þeirra illa til að selja rest­ina af bank­anum og 56,2 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins voru á sömu skoð­un.

Skoðun landsmanna á kvótakerfinu

Í febr­úar kann­aði Prósent afstöðu lands­manna til núver­andi kvóta­kerfis. Þar kom fram að tutt­ugu pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni sögð­ust vera mjög eða frekar hlynnt kerf­inu en 61 pró­sent frekar eða mjög and­víg því.

Konur voru tölu­vert and­víg­ari kerf­inu en karlar og íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru einnig and­víg­ari því en íbúar á lands­byggð­inni.

Mestur stuðn­ingur við kerfið mæld­ist hjá þeim sem eru 65 ára eða eldri og þeim tekju­hæstu. And­staðan við kvóta­kerfið var mest í ald­urs­hópnum 35 til 44 ára. 71 pró­sent fólks á þeim aldri er and­vígt kerf­inu en þrettán pró­sent styðja það.

Traust íbúa landsins til stofnana

Alls báru 36 pró­­­sent lands­­­manna traust til Alþingis sam­­­kvæmt þjóð­­­ar­púlsi í byrjun mars, en Gallup mælir árlega traust til stofn­anna sam­­­fé­lags­ins. Það jókst um tvö pró­­­sent­u­­­stig milli ára og hefur auk­ist um 18 pró­­sent­u­­stig á þremur árum. en Alþingi var samt sem áður í fjórða neðsta sæti yfir þær stofn­­­anir sem almenn­ingur treystir minnst. Traustið hefur enn ekki náð þeim hæðum sem það var í fyrir banka­hrun, en í síð­ust mæl­ingu Gallup fyrir það, sem fram­kvæmd var snemma árs 2008, mæld­ist traust þjóð­ar­innar til Alþingis 42 pró­sent.

Fyrir neðan Alþingi voru ein­ungis annað stjórn­­­­­vald, borg­­­ar­­­stjórn Reykja­víkur (21 pró­­­sent traust), banka­­­kerfið (23 pró­­­sent) og þjóð­­kirkjan (29 pró­­sent). Allar þrjár stofn­an­irnar töp­uðu trausti á milli ára.

Almennt dróst traust til stofn­anna íslensks sam­­fé­lags saman milli ára. Alls dróst það saman gagn­vart níu stofn­un­um, jókst gagn­vart fjórum og stóð í stað gagn­vart einn­i.

Mest dróst traustið saman gagn­vart Seðla­banka Íslands, um tíu pró­sentu­stig milli ára og í ár treystu 52 pró­sent honum vel. Það var mikil breyt­ing frá þeirri þróun sem orðið hafði árin áður. Milli áranna 2019 og 2021 tvö­fald­að­ist það og mæld­ist í lok þess síð­ar­nefnda 61 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár