Sósíalistaflokkurinn hefur aldrei mælst stærri í könnunum Gallup

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa saman tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu en eru við það að geta end­ur­nýjað sam­starfið, sam­kvæmt könn­unum, standi vilji þeirra til þess. Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa styrkt stöðu sína á kjör­tíma­bil­inu en tveir veikst.

Gunnar Smári Egilsson er formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Gunnar Smári Egilsson er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 5,8 pró­sent fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup og bætir við sig tveimur pró­sentu­stigum milli mán­aða. Fylgi flokks­ins hefur aldrei mælst meira en nú og hann myndi nokkuð örugg­lega ná mönnum inn á þing miðað við þessa nið­ur­stöðu.

Þetta vekur athygli þar sem flokk­ur­inn hefur hvorki kynnt stefnu­skrá fyrir næstu kosn­ingar né opin­berað nokkuð um hverjir verða á lista hans í þeim, sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ein­ungis einu sinni áður boðið fram, í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík 2018, og náði þar 6,4 pró­­­sent atkvæða í borg­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­unum í Reykja­vík og Sanna Magda­­­lena Mört­u­dóttir tók í kjöl­farið sæti í borg­­ar­­stjórn fyrir hönd hans.

[adspot]Sós­í­a­lista­­flokk­­ur­inn var eini flokk­­­ur­inn sem náði inn kjörnum full­­­trúa sem er ekki með full­­­trúa á Alþingi í dag, og hafði því ekki aðgengi að þeim hund­ruð millj­­­óna sem hinir sjö flokk­­­arnir sem náðu inn er skammtað af fjár­­­lögum ár hvert.

Enginn einn flokkur hefur náð til sín jafn miklu fylgi á yfir­standi kjör­tíma­bili og Sós­í­alista­flokk­ur­inn.

Stjórnin undir kjörfylgi

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru á svip­uðum slóðum og þeir voru fyrir mán­uði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 22,9 pró­sent fylgi, Vinstri græn með 13,4 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,3 pró­sent. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja er nú 46,8 pró­sent og tví­sýnt hvort það myndi duga þeim fyrir naumum meiri­hluta ef kosið yrði í dag.

Bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn hafa tapað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að mæl­ast með nán­ast sama fylgi. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna er nú 6,1 pró­sentu­stigi minna en það sem þeir fengu upp úr kjör­köss­unum 2017.

Misjafn árangur stjórnarandstöðu

Sam­fylk­ingin dalar milli mán­aða og mælist nú með 14,4 pró­sent stuðn­ing. Viðreisn tapar líka og alls 9,4 pró­sent aðspurðra segj­ast ætla að kjósa flokk­inn. Píratar bæta hins vegar við sig og mæl­ast nú með 12,2 pró­sent stuðn­ing. Allir þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu 2017. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra nú er 36 pró­sent, sem er átta pró­sentu­stigum meira en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum.

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu: Mið­flokk­ur­inn sem mælist nú með 7,3 pró­sent stuðn­ing og Flokkur fólks­ins sem mælist með fjögur pró­sent fylgi. Mið­flokk­ur­inn er kom­inn nálægt því fylgi sem hann mæld­ist með mán­uð­ina eftir að Klaust­ur­málið svo­kallað kom upp og Flokkur fólks­ins myndi ekki ná inn á þing að óbreyttu.

Nið­ur­stöður sem hér birt­ast um fylgi flokk­anna á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 28. febr­úar 2021. Heild­ar­úr­taks­stærð var 9.078 og þátt­töku­hlut­fall var 52,5 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár