Þriðja könnunin í röð sem sýnir meirihluta fyrir aðild að Evrópusambandinu

Stuðn­ingur við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur dalað frá því í júní, óákveðnum hefur fjölgað mikið en and­stæð­ingum fjölgað um 1,2 pró­sentu­stig. Eftir rúman ára­tug af afger­andi and­stöðu við aðild hefur hugur þjóð­ar­innar snú­ist á þessu ári.

Alls segj­ast 42,8 pró­sent lands­manna vera hlynnt inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en 35,1 pró­sent eru and­víg því og 22,1 pró­sent eru óviss um afstöðu sína. Þetta er nið­ur­staða nýrrar könn­unar Prósents um málið en nið­ur­stöður hennar eru birtar í Frétta­blað­inu í dag.

Þar kemur fram að stuðn­ingur við aðild sé afger­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 47 pró­sent styðja hana en 30 pró­sent eru á móti. Á lands­byggð­inni mælist and­staða við aðild hins vegar nú meiri en stuðn­ingur, en 35 pró­sent svar­enda á henni segj­ast vilja ganga í Evr­ópu­sam­bandið á meðan að 44 pró­sent eru því mót­fall­inn.

Kjósendur Pírata og Viðreisnar mest fylgjandi

Frá því að Prósent kann­aði síð­ast hug lands­manna til aðildar í júní hefur þeim sem eru fylgj­andi aðild fækkað um 5,5 pró­sentu­stig, óákveðnum fjölgað 4,3 pró­sentu­stig og þeim sem eru and­vígir fjölgað um 1,2 pró­sentu­stig.

[adspot]Mest hefur dregið úr stuðn­ingi við aðild á meðal þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una og mælist stuðn­ingur við aðild nú meiri á meðal kjós­enda bæði Við­reisnar og Pírata. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur tekið kipp upp á við und­an­farið og mæld­ist 19,1 pró­sent í sömu könnun Prósents, sem er 5,6 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í júní. Hópurinn sem seg­ist ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una hefur því stækkað umtals­vert.

Milli kann­ana hefur orðið sú breyt­ing á að Kristrún Frosta­dóttir var kjörin for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún sagði í við­tali við Kjarnann í sept­em­ber, eftir að hafa til­kynnt um fram­boð, að stefna flokks­ins hvað varðar aðild að Evr­ópu­sam­band­inu væri alveg skýr og verði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­far­ið.“ Í Frétta­blað­inu í dag segir Kristrún að það geti verið að fólk sem tengir sig við jafn­að­ar­stefn­una í grunn­inn en hafi varnagla gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu sé að koma aftur til flokks­ins.

Fleiri eru fylgj­andi aðild en and­vígir henni á meðal kjós­enda bæði Sós­í­alista­flokks Íslands og Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra sem hefur þá yfir­lýstu stefnu að telja hag Íslands betur borgið utan sam­bands­ins. Minnstur er stuðn­ingur við aðild á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks (19 pró­sent) og Mið­flokks (ell­efu pró­sent).

[adspot]Miðað við nið­ur­stöðu síð­ustu kosn­inga, sem fram fóru í fyrra­haust, eru þeir flokkar þar sem fleiri kjós­endur eru fylgj­andi aðild en á móti með 25 þing­menn, og tölu­vert frá því að vera með meiri­hluta á þingi. Samkvæmt könnun Prósents myndu sömu flokkar hins vegar fá 34 þing­menn kjörna ef kosið yrði í dag, sem þýðir að þeir væru með meiri­hluta á þingi.

Viðsnúningur eftir rúman áratug af andstöðu

Í mars birt­ust nið­ur­stöður úr Þjóð­ar­púlsi Gallup sem sýndu að 47 pró­sent lands­manna væru hlynnt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en 33 pró­sent mót­fallin henni. Það var í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem meiri­hluti mæld­ist fyrir aðild í könn­unum hér­lendis.

[links]Hlut­fall sem eru hlynntir inn­göngu Íslands í sam­bandið hafði raunar ekki mælst meira en rúm­lega 37 pró­sent í mán­að­ar­legum könn­unum sem MMR fram­kvæmdi frá 2011 og út síð­asta ár. Í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber í fyrra, mæld­ist stuðn­ing­ur­inn 30,4 pró­sent en 44,1 pró­sent voru á mót­i.

Í könnun Prósents í júní var nið­ur­staðan svipuð og hjá Gallup í mars, 48,5 pró­sent sögð­ust hlynnt aðild en 34,9 pró­sent voru and­víg. Alls 16,7 pró­sent sögð­ust ekki hafa neina skoðun á mál­inu.

Því liggur fyrir að í þremur könn­unum í röð hafa fleiri svar­endur verið á þeirri skoðun að Ísland eigi að ganga í Evr­ópu­sam­bandið en á móti aðild.

Könnun Prósents sem birt var í Frétta­blað­inu í dag var fram­kvæmd 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár