Nærri helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu

Tæplega helm­ingur Íslend­inga er hlynntur aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og aðeins rúm­lega þriðj­ungur and­vígur sam­kvæmt nýrri könnun.

Hlutfall Íslendinga sem hlynntir eru aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur ekki mælst hærra en í nýrri könnun Prósents
Hlutfall Íslend­inga sem hlynntir eru aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu hefur ekki mælst hærra en í nýrri könnun Prósents Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hlutfall Íslend­inga sem hlynntir eru aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu hefur ekki mælst hærra en í nýrri könnun Prósents sem sýnir að 48,5% svar­enda eru hlynntir aðild en 34,9% and­vígir. 16,7% kváð­ust enga skoðun hafa á mál­inu.

Um er að ræða nið­ur­stöður könn­unar Prósents sem fram­kvæmd var 2. til 13. júní og birtar voru í Frétta­blað­inu í dag. Nið­ur­stöð­urnar eru svip­aðar nið­ur­stöðum Þjóð­ar­púls Gallup frá því í mars, en þá mæld­ust 47% hlynnt aðild og 33% mót­fallin. Um er að ræða við­snún­ingi í við­horfum frá síð­ast­liðnum ára­tug þar sem hafa kann­anir yfir­leitt bent til þess að tæp­lega helm­ingur þjóð­ar­innar sé mót­fall­inn aðild og um þriðj­ungur hlynntur, en MMR gerði mán­að­ar­legar skoð­ana­kann­anir á við­horfum til Evr­ópu­sam­bands­ins frá 2011 til 2021. Sam­kvæmt þeim voru meira en 40 pró­sent við­mæl­enda verið hlynnt aðild.

Kjósendur Vinstri grænna ekki sammála stefnu flokksins

Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins um nið­ur­stöður könn­unar Prósents vega flokkspóli­tískar skoð­anir þungt í afstöð­unni til Evr­ópu­sam­bands­að­ildar. Jákvæð­astir eru kjós­endur Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata með á bil­inu 79 til 83 pró­sent hlynnt aðild en innan við 10 pró­sent and­víg. Þá vekur athygli að fleiri kjós­endur Vinstri grænna eru hlynntir Evr­ópu­sam­bands­að­ild en and­vígir, 40 pró­sent á móti 33, en flokk­ur­inn er einnig sá sem hefur flesta óákveðna í afstöð­unni, það er 24 pró­sent. Samkvæmt stefnu Vinstri grænna er „hags­munum Íslands betur borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins en innan.“

46% kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins kváð­ust hlynnt aðild en 32% mót­fallin. Meðal Fram­sókn­ar­manna eru 54% mót­fallnir og 35% hlynntir og meðal kjós­enda Flokks fólks­ins voru 50% mót­fallin og 30% hlynnt. Mót­falln­astir aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu eru kjós­endur Mið­flokks­ins, eða 68% og þar á eftir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 63%. 20% Sjálf­stæð­is­manna eru hins vegar hlynntir aðild en aðeins 8% kjós­enda Mið­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár