Allir ráðherrar VG og Framsóknar tapa trausti en ráðherrar Sjálfstæðisflokks bæta við sig

Ásmundur Einar Daðason er áfram sá ráð­herra í rík­is­stjórn sem nýtur mest trausts og Bjarni Bene­dikts­son er áfram sá sem flestir treysta lítið. Lilja D. Alfreðs­dóttir tapar mestu trausti allra frá því í vor og bætir við sig mestu van­trausti.

Það gustar um ýmsa í ríkisstjórninni um þessar mundir.
Það gustar um ýmsa í rík­is­stjórn­inni um þessar mundir. Mynd: Bára Huld Beck

Enginn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands nýtur lengur trausts meiri­hluta þjóð­ar­innar. Allir ráð­herrar Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa tapað trausti frá því í apríl en allir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks hafa bætt við sig trausti á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu á trausti til ráð­herra sem birt var í dag.

Flestir lands­manna treysta Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barna­mála­ráð­herra, best eða 46,3 pró­sent aðspurðra. Traust á hann dregst þó saman um sex pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun sem gerð var í apríl.

Sá ráð­herra sem missir mest traust milli kann­ana er Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, en ein­ungis 19 pró­sent lands­manna segj­ast bera mikið traust til hennar. Það er 14 pró­sentu­stigum minna en í apríl og fyrir vikið er Lilja nú orðin sá ráð­herra sem fæstir svar­endur segj­ast bera mikið traust til.

[adspot]Sá ráð­herra sem bætir mestu við sig er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, en nú segj­ast 31 pró­sent aðspurðra bera mikið traust til hennar. Það er níu pró­sentu­stigum fleiri en í apríl.

Traust til Katrínar Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Vinstri grænna, stendur nán­ast í stað, dalar um rúm­lega eitt pró­sentu­stig. Alls segj­ast 43,2 pró­sent treysta henni vel nú. Traust á hana hefur rýrnað um rúm­lega 18 pró­sentu­stig síðan í des­em­ber í fyrra, þegar rík­is­stjórnin hafði nýverið end­ur­nýjað sam­starf sitt.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, dalar um tvö pró­sent milli kann­ana og nýtur trausts 30 pró­sent svar­enda. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá leið­togi stjórn­ar­flokks sem nýtur minnsts trausts, en alls 23 pró­sent lands­manna segj­ast treysta honum vel.

Flestir vantreysta Bjarna og Jóni

Þrír ráð­herrar njóta lít­ils trausts hjá meiri­hluta aðspurðra. Sá sem nýtur minnst trausts er Bjarni en alls segj­ast 61 pró­sent svar­enda bera lítið traust til hans. Van­traustið á Bjarna hefur samt sem áður dreg­ist saman síðan í apríl, þegar það mæld­ist yfir 70 pró­sent. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra kemur fast á hæla Bjarna, en alls segj­ast 59 pró­sent svar­enda van­treysta honum. Það eru átta pró­sentu­stigum fleiri en í vor. Sá ráð­herra sem bætir við sig lang­mestu van­trausti er sá sami og tapar mestu trausti: Lilja D. Alfreðs­dóttir. Samkvæmt könnun Maskínu bera nú 51 pró­sent svar­enda lítið traust til hennar, sem er aukn­ing upp á 16 pró­sentu­stig frá því í apríl.

Alls eykst van­traust á níu ráð­herra en það dregst sama á þrjá. Þeir eru allir í Sjálf­stæð­is­flokknum. Auk Bjarna er þar um að ræða Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Áslaugu Örnu.

Ásmundur Einar er sá ráð­herra sem fæstir van­treysta, eða 26 pró­sent, en van­traust á hann eykst þó um átta pró­sentu­stig. Af for­mönnum stjórn­ar­flokka van­treysta fæstir Katrínu, eða 37 pró­sent svar­enda, og 40 pró­sent segj­ast bera lítið traust til Sigurðar Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár