Næstum helmingur tekjuhæstu kjósendanna styðja Sjálfstæðisflokk eða Viðreisn

Mikill munur er á stuðn­ingi tekju­hópa við stjórn­mála­öfl. Píratar eru vin­sæl­asti stjórn­mála­flokkur lands­ins hjá þeim sem minnstar hafa tekj­urnar og sós­í­alistar eru líka sterkir þar.

Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stýra flokkum sem eru sýnilega mun vinsælli hjá tekjuhærri kjósendum en tekjulægri.
Bjarni Bene­dikts­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir stýra flokkum sem eru sýni­lega mun vin­sælli hjá tekju­hærri kjós­endum en tekju­lægri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lang­vin­sæl­asti stjórn­mála­flokkur lands­ins hjá þeim lands­mönnum þar sem heim­il­is­tekjur eru yfir 1.200 þús­und krónur á mán­uði. Hjá þeim hópi segj­ast 30,5 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn ef gengið yrði til kosn­inga nú. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist rúm­lega tvisvar sinnum stærri hjá þessum tekju­hæsta hópi sam­fé­lags­ins en næst vin­sæl­asti val­kost­ur­inn, sem er Sam­fylk­ingin sem nýtur 14,6 pró­sent fylgi hjá hópnum. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hjá þeim sem eru með heim­il­is­tekjur yfir 1.200 þús­und krónur á mán­uði er það sama og heild­ar­fylgi flokks­ins mælist sem á meðan að vin­sældir Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá efsta tekju­hópnum eru um 33 pró­sent yfir heild­ar­fylgi flokks­ins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tölum sem Kjarninn hefur fengið hjá MMR og sýna með­al­tal síð­ustu þriggja kann­ana fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi flokka, sem gerðar voru frá 30. des­em­ber 2020 til 10. mars 2021.

[adspot]Fylgi Við­reisnar er einnig umtals­vert meira hjá efsta tekju­hópnum en almennt. Alls segj­ast 14,1 pró­sent kjós­enda sem afla 1.200 þús­und krónur eða meira á mán­uði í heim­il­is­tekjur að þeir myndu kjósa þann flokk, en heild­ar­fylgi hans mælist 9,6 pró­sent. Það þýðir að vin­sældir Við­reisnar eru 47 pró­sent meiri hjá efsta tekju­hópnum en heilt yfir.

Sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar hjá þessum tekju­hópi mælist 44,6 pró­sent. Til sam­an­burðar mælist heild­ar­fylgi þeirra sam­an­lagt 32,6 pró­sent.

Píratar og sósíalistar sterkir hjá tekjulágum

Vinstri græn, Píratar og Mið­flokkur sigla nokkuð lygnan sjó hjá þeim sem eru með mest á milli hand­anna og fylgi þeirra þar er svipað því sem mælist þegar öllum tekju­hópum er blandað saman.

[links]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er mun óvin­sælli hjá tekju­hæsta hópnum en heilt yfir og mælist með 7,6 pró­sent fylgi innan ahans. Það kemur svo lítið á óvart að Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með helm­ing heild­ar­fylgis hjá þeim sem eru með 1.200 þús­und krónur eða meira í heim­il­is­tekjur, eða 2,1 pró­sent, og Flokkur fólks­ins er enn óvin­sælli hjá tekju­hæstu lands­mönn­unum með 1,4 pró­sent fylgi.

Þegar lægsti tekju­hóp­ur­inn, sá sem er með undir 400 þús­und krónur á mán­uði, er skoð­aður kemur í ljós að Píratar mæl­ast stærsti allra flokka þar með 16,1 pró­sent stuðn­ing. Sjálf­stæð­is­flokkur, Sam­fylk­ing og Vinstri græn mæl­ast öll nær jafn stór (13,5 til 13,6 pró­sent). Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist lengst allra flokka frá heild­ar­fylgi hjá tekju­lægsta hópnum, en hann nýtur 40 pró­sent minni vin­sælda hjá tekju­lágum en heilt yfir. Þegar stuðn­ingur við flokk­inn hjá tekju­lægsta hópnum ann­ars vegar og þeim tekju­hæsta hins vegar er bor­inn saman er mun­ur­inn meira en 100 pró­sent.

Viðreisn og Mið­flokkur mæl­ast báðir með stuðn­ing undir heild­ar­fylgi hjá tekju­lægsta hópnum en þar njóta bæði Sós­í­alista­flokkur Íslands (9,5 pró­sent) og Flokkur fólks­ins (8,0 pró­sent) mun meira fylgis en heilt yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár