Óánægjugos hjá Samfylkingu og fjöldi í framboði fyrir Vinstri græn

Flokk­arnir eru að búa sig til kosn­inga. Í Suð­ur­kjör­dæmi hefur upp­still­ing­ar­leið Sam­fylk­ingar verið harð­lega gagn­rýnd, hrúga af fólki vill leiða lista Vinstri grænna og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks til­kynnti snögg­lega á páska­dag að hann ætli að hætta á þingi.

Hér sjást samherjarnir fyrrverandi í þingflokki Bjartrar framtíðar, Páll Valur Björnsson og Róbert Marshall (t.h.). Páli var hafnað ásamt fleirum af uppstillingarnefnd Samfylkingar en Róbert er einn nokkurra sem nú keppast um að leiða VG.
Hér sjást sam­herj­arnir fyrr­ver­andi í þing­flokki Bjartrar fram­tíðar, Páll Valur Björns­son og Róbert Marshall (t.h.). Páli var hafnað ásamt fleirum af upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ingar en Róbert er einn nokk­urra sem nú kepp­ast um að leiða VG. Mynd: Anton Brink

Um 14,8 pró­sent kjós­enda í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra voru á kjör­skrá í Suð­ur­kjör­dæmi – alls tæp­lega 37.500 manns. Nú stytt­ist í alþing­is­kosn­ingar og flokk­arnir eru byrj­aðir að stilla upp listum sínum. Sumir þeirra eru klárir með efstu fram­bjóð­endur, en aðrir flokkar munu draga það inn í sum­arið að kom­ast að end­an­legri nið­ur­stöðu.

Á lands­vísu er staðan þannig, og hefur verið í nokkurn tíma sam­­­kvæmt könn­un­um, að flókið gæti orðið að mynda starf­hæfa rík­­­is­­­stjórn eftir kosn­ing­ar. Stjórn­­­­­ar­­­flokk­­­arnir hafa allir tapað fylgi, stærstu stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­flokk­­­arnir ekki bætt næg­i­­­lega miklu við sig til að gera afger­andi kröfu á stjórn­­­­­ar­­­myndun og nýir flokkar sem hafa ekki átt sæti á Alþingi áður eru að banka á dyrn­­­ar.[box]

Ekki er úti­­­lokað að flokk­­­arnir á þingi verði níu tals­ins eftir að atkvæði hausts­ins verða tal­in, og hafa þá aldrei verið fleiri.

Kjarn­inn fékk gögn frá MMR úr könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi stjórn­­­­­mála­­­flokka síð­­­­­ustu þrjá mán­uði. Á meðal upp­­­lýs­inga sem þar er að finna er fylgi flokka eftir land­­­svæð­­­um. Tölur MMR miða ekki við kjör­­­dæmi í öllum til­­­vikum og því gefa þær fyrst og síð­­­­­ast vís­bend­ingu um hver staða stjórn­­­­­mála­­­flokk­anna er í hverju kjör­­­dæmi fyrir sig.

Hvað Suð­ur­kjör­dæmi varðar má segja að vís­bend­ing­arnar sem fást úr nið­ur­stöðum MMR séu ágæt­lega sterkar, enda vantar ein­ungis Sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörð inn í mæl­ing­una á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum sem Kjarninn horfir til.

Páll leiðir ekki Sjálfstæðisflokkinn

Niðurstaða 2017 - 7.056 atkvæði - 25,2 prósent

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem átti fleiri en eitt af hverjum fjórum atkvæðum sem fóru ofan í kjör­kassa í Suð­ur­kjör­dæmi haustið 2017, fer fram í lok maí. Í dag á flokk­ur­inn þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og sá sem skip­aði þriðja sæti list­ans síð­ast, Vil­hjálmur Árnason, hefur boðið sig fram til þess að leiða list­ann.

Hann hefur fengið áskor­anda – Guðrúnu Haf­steins­dóttur, mark­aðs­stjóra Kjöriss og fyrr­ver­andi for­mann Samtaka iðn­að­ar­ins, sem margir telja að gæti átt góðu gengi að fagna í próf­kjör­inu sem er framundan.

Óljóst er hvort fleiri blanda sér í slag­inn um odd­vita­sætið, en fram­boðs­frestur rennur út á fimmtu­dag. Raunar hafði odd­vit­inn Páll Magn­ús­son einnig boðað að hann ætl­aði að sækj­ast eftir fyrsta sæt­inu á ný, en á páska­dag til­kynnti hann að honum hefði snú­ist hugur – honum ein­fald­lega langar ekki til þess að vera lengur í lands­málapóli­tík­inni, að eigin sögn.

Staða flokks­ins í kjör­dæm­inu í síð­ustu könn­unum MMR hefur verið svipuð og fyrir kosn­ing­arnar 2017 – en fylgið hefur verið um 20 pró­sent að með­al­tali.

Framsókn heldur prófkjör í sumar

Niðurstaða 2017 - 5.230 atkvæði - 18,6 prósent

Í Suð­ur­kjör­dæmi fer fram lokað próf­kjör hjá Fram­sókn­ar­flokknum laug­ar­dag­inn 19. júní. Fastlega má reikna með því að Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður flokks­ins leiði list­ann í Suð­ur­kjör­dæmi að nýju. Silja Dögg Gunn­ars­dóttir skip­aði annað sæti á lista 2017 og er hinn þing­maður Fram­sóknar í kjör­dæm­inu.

Jóhann Friðrik Frið­riks­son bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ og fram­kvæmda­stjóri Keilis hefur boðað að hann sæk­ist eftir 2. sæt­inu í próf­kjör­inu í sumar.

Framsókn mælist með næst mest fylgi allra flokka á Suð­ur­landi í síð­ustu þremur könn­unum MMR, eða yfir 17 pró­sent að með­al­tali. Það er svipað og í aðdrag­anda kosn­inga 2017.

Miðflokkurinn hvergi að mælast með meira fylgi

Niðurstaða 2017 - 3.999 atkvæði - 14,3 prósent

Mið­flokk­ur­inn er hvergi með meira fylgi en í Suð­ur­kjör­dæmi sam­kvæmt síð­ustu könn­unum MMR, en fylgi flokks­ins þar hefur að með­al­tali mælst 16 pró­sent á meðan að það hefur mælst undir 9 pró­sentum á lands­vísu.

Þar gæti stefnt í odd­vitaslag, en þeir Birgir Þór­ar­ins­son og Karl Gauti Hjalta­son eru þing­menn flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Karl Gauti var þó alls ekk­ert kjör­inn á þing fyrir Mið­flokk­inn – heldur var hann odd­viti Flokks fólks­ins í kjör­dæm­inu árið 2017 og skipti um flokk eftir Klaust­ur­málið. Líklegt er talið að þeir kepp­ist um odd­vita­sætið í próf­kjöri meðal flokks­fólks.

Margir vilja leiða Vinstri græn

Niðurstaða 2017 - 3.321 atkvæði - 11,8 prósent

Það er áhuga­verð for­vals­bar­átta í gangi um þessar mundir hjá Vinstri grænum. Ari Trausti Guð­munds­son ætlar ekki að gefa kost á sér til þing­starfa á ný og eftir for­ystu­sæti á list­anum sækj­ast hvorki fleiri né færri en fimm manns.

Það eru þau Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir, Róbert Mars­hall, Hólm­fríður Árna­dóttir og Almar Sig­urðs­son. Forval í kjör­dæm­inu fer fram dag­ana 10.-12. apríl.

Fylgi flokks­ins í síð­ustu könn­unum MMR hefur verið tæp 12 pró­sent á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum, eða á svip­uðum slóðum og kjör­fylgið árið 2017.

Uppstilling og óánægja hjá Samfylkingunni

Niðurstaða 2017 - 2.689 atkvæði - 9,6 prósent

Sam­fylk­ingin hefur ekki kynnt fram­boðs­lista sinn í Suð­ur­kjör­dæmi, en þar hefur Oddný Harð­ar­dóttir fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins og ráð­herra verið í odd­vita­sæt­inu og er hún eini þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu í dag. Samkvæmt könn­unum MMR er fylgið á Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi á svip­uðum slóðum og í síð­ustu kosn­ingum, eða rúm 9 pró­sent.

Óánægju hefur orðið vart hjá nokkrum þeirra sem gáfu kost á sér í efstu sæti á lista með störf upp­still­ing­ar­nefndar, þrátt fyrir að enn hafi list­inn ekki verið kynntur. Vísir fjall­aði um svekk­elsið nýlega, en í frétt mið­ils­ins sagði einnig að nöfn bæði Björg­vins G. Sig­urðs­sonar fyrr­ver­andi ráð­herra og Inger Erlu Thomsen for­manns ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins á Suð­ur­landi hefðu verið nefnd sem mögu­leg ofar­lega á list­anum.

Hver­gerð­ing­ur­inn Njörður Sig­urðs­son, sem skip­aði annað sæti á list­anum 2017, fékk að eigin sögn boð um að vera í fjórða sæti á lista, hafn­aði því og sagði sig í kjöl­farið frá öllum trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn.

Páll Valur Björns­son fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og núver­andi vara­þing­maður Sam­fylk­ingar vildi fyrsta eða annað sæti á lista en ljóstr­aði því upp fyrir um tveimur vikum síðan að það hefði honum ekki staðið til boða. „Það verður að segj­ast eins og er að þessi aðferð Sam­fylk­ing­ar­innar við að raða upp á lista er eig­in­lega alveg glötuð,“ skrif­aði Páll Valur á Facebook við það tæki­færi.

[links]

Ástþór Jón Ragn­heið­ar­son, sem sóst hafði eftir 2.-3. sæti á lista flokks­ins, fékk boð um að vera mun neðar á lista, að eigin sögn. Hann var ósáttur við upp­still­ing­ar­nefnd­ina. „Þeir sem skipa efstu sætin mun vera fólk sem hafði hvergi gefið út að það væri að sækj­ast eftir því. Það var því mitt mat að standa ekki á bak­við lista sem veitir fólki fram­gang sem hefur hvergi sóst eftir því eða unnið í því að fá fram­gang. Það kall­ast klíka og slíku tek ég ekki þátt í,“ skrif­aði Ástþór.

Oddvitinn horfinn úr Flokki fólksins

Niðurstaða 2017 - 2.509 atkvæði - 8,9 prósent

Flokkur fólks­ins hefur ekki kynnt fram­boðs­lista sína. Karl Gauti Hjalta­son, sem leiddi flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi árið 2017, situr nú á þingi fyrir Mið­flokk­inn eftir Klaust­ur­málið og deilur innan Flokks fólks­ins.

[adspot]

Ljóst er að flokk­ur­inn gæti eygt von um þing­sæti í Suð­ur­kjör­dæmi, en fylgið sam­kvæmt síð­ustu þremur mæl­ingum MMR liggur á milli 8 og 9 pró­sentu­stiga.

Á vef flokks­ins hefur verið sagt frá því að þau Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna og Tommi á Ham­borg­ara­búll­unni (Tómas Andrés Tóm­as­son) muni fara í fram­boð fyrir flokk­inn og má reikna með því að þau rað­ist í odd­vita­sæti í ein­hverjum kjör­dæmum.

Smári hættir á þingi fyrir Pírata

Niðurstaða 2017 - 1.985 atkvæði - 7,1 prósent

Smári McCarthy leiddi lista Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi og er upp­bót­ar­þing­maður kjör­dæm­is­ins. Hann ætlar ekki fram að nýju, en Álf­heiður Eymars­dóttir vara­þing­maður varð efst í próf­kjöri flokks­ins sem fram fór nýlega.

Fylgi Pírata á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum er að mæl­ast svipað í síð­ustu könn­unum MMR og í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, eða innan við 6 pró­sent, sem er tals­vert undir fylgi flokks­ins á lands­vísu.

Bæjarmálamaður úr Reykjanesbæ leiðir Viðreisn

Niðurstaða 2017 - 871 atkvæði - 3,1 prósent

Viðreisn sá ekki til sólar í Suð­ur­kjör­dæmi árið 2017, er Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir leiddi list­ann. Hún hafði náð kjöri árið 2016 en gengi Við­reisnar í kjör­dæm­inu árið 2017 var dap­urt og ein­ungis 871 atkvæði skil­aði sér í hús.

Í síð­ustu mæl­ingum þremur mæl­ingum MMR hefur flokk­ur­inn mælst með 6,5 pró­sent að með­al­tali. Búið er að „afhjúpa“ nýjan odd­vita, en það er Guð­brandur Ein­ars­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar.

Hann leiddi lista fram­boðs­ins Beinnar leiðar til síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga og fékk fram­boðið 13,5 pró­sent fylgi í Reykja­nesbæ árið 2018.

Sósíalistaflokkurinn

Lítið hefur spurst af fram­boðs­málum Sós­í­alista­flokks­ins. Á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum hefur fylgi flokks­ins mælst innan við fjögur pró­sent að með­al­tali í síð­ustu þremur könn­unum MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár