Enginn flokkur getur sagt „Reykjavík er okkar“

Níu flokkar gætu átt mögu­leika á að ná í þá 22 þing­menn sem í boði eru í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Innan stærri flokka eru að eiga sér stað inn­an­flokksá­tök og ráð­herrar eiga á hættu að detta út af þingi. Kjarninn skoðar fylgi flokka eftir lands­svæðum.

Innan við hálft ár er til næstu þing­kosn­inga, sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Stjórn­mála­flokk­arnir eru í óða önn við að ákveða hvaða ein­stak­lingar verði í fram­boði fyrir þá og hvaða meg­in­á­herslur verða settar á odd­inn til að hvetja sem flesta kjós­endur til að setja X við þá.

[box]Heilt yfir er staðan þannig, og hefur verið í nokkurn tíma sam­kvæmt könn­unum, að flókið gæti orðið að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa allir tapað fylgi, stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ekki bætt nægi­lega miklu við sig til að gera afger­andi kröfu á stjórn­ar­myndun og nýir flokkar sem hafa ekki átt sæti á Alþingi áður eru að banka á dyrnar. Ekki er úti­lokað að flokk­arnir á þingi verði níu tals­ins eftir að atkvæði hausts­ins verða talin, og hafa þá aldrei verið fleiri.

Kjarninn fékk gögn frá MMR úr könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi stjórn­mála­flokka síð­ustu þrjá mán­uði. Á meðal þeirra upp­lýs­inga sem þar er að finna er fylgi þeirra eftir land­svæðum. Tölur MMR miða þó ekki við kjör­dæmi í öllum til­vikum og því gefa þær fyrst og síð­ast vís­bend­ingu um hver staða stjórn­mála­flokk­anna er í hverju kjör­dæmi fyrir sig.

Næstu daga mun Kjarninn fjalla um stöðu mála á hverju land­svæði fyrir sig. Fyrst á dag­skrá er höf­uð­borgin, Reykja­vík, sem skipt er í tvö kjör­dæmi, suður og norður.

Á svipuðum stað og síðast

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn glímir við umtals­verðan vanda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í þremur stærstu kjör­dæmum lands­ins – Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi – mælist fylgi flokks­ins sam­an­lagt 6,9 pró­sent. Á svæð­inu búa alls 236.520 manns, eða 64 pró­sent allra íbúa lands­ins.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist 6,9 pró­sent sem er er 34 pró­sent minna fylgi en flokk­ur­inn mælist með heilt yfir og það sem hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Með­al­tals­fylgi flokks­ins á svæð­inu í kosn­ing­unum 2017 var á svip­uðum nótum, eða 7,1 pró­sentu­stig. Þá gekk Framsókn best í Reykja­vík suður, þar sem vara­for­mað­ur­inn Lilja Alfreðs­dóttir leiddi lista flokks­ins, en hann fékk alls 8,1 pró­sent atkvæða þar haustið 2017. Það skil­aði því að Lilja varð síð­asti kjör­dæma­kjörni þing­maður kjör­dæm­is­ins, en þeir eru alls níu.

[adspot]Lilja mun leiða lista flokks­ins Reykja­vík suður á ný og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur ákveðið að taka slag­inn í norð­ur­hluta höf­uð­borg­ar­innar. Þar með færir hann sig úr öruggu þing­sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Þegar hann til­kynnti um vista­skiptin sagði Ásmundur Einar að Framsókn muni ekki ná að verða leið­andi afl í stórum kerf­is­breyt­ingum sem hann telur að þurfi að eiga sér stað í íslensku sam­fé­lagi án þess að flokk­ur­inn nái að styrkja sig í þétt­býli og þá sér­stak­lega í Reykja­vík.

Alls óljóst er hvernig listi flokks­ins verður skip­aður þar fyrir utan. Heim­ildir Kjarnans herma að reynt hafi verið að fá þekkt fólk úr ýmsum áttum til að taka sætin á list­anum fyrir neðan Ásmund Einar og Lilju en án árang­urs. Þá hefur nafn Guðna Ágústs­sonar, fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins, verið nefnt en hann íhug­aði að fara fram fyrir Framsókn í Reykja­vík í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014.

Barátta í pípunum hjá Sjálfstæðisflokknum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nokkuð öruggur með að verða stærsti flokk­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að óbreyttu. Fylgi flokks­ins í síð­ustu þremur könn­unum MMR þar mæld­ist sam­an­lagt 22,6 pró­sent. Það er nán­ast á pari við það sem flokk­ur­inn fékk í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum 2017 þegar hann fékk fyrsta þing­mann í báðum kjör­dæm­unum. Vert er þó að muna að inni í tölum MMR er stuðn­ingur flokks­ins í Kraganum, kjör­dæmi flokks­for­manns­ins, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var hlaut fleiri atkvæði en í nokkru öðru kjör­dæmi fyrir þremur og hálfu ári.

Fyr­ir­liggj­andi er að slagur verður í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Þar munu Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra og hóp­arnir í kringum þau takast á.

Fyrstu merki þess mátti sjá þegar kjörið var í full­trúa­ráð Varðar (full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík) fyrr í þessum mán­uði. Þar buðu fram tvær fylk­ingar tengdar áður­nefndum ráð­herrum. Mikil óánægja spratt upp á meðal sumra stuðn­ings­manna Áslaugar Örnu þegar for­maður ráðs­ins deildi óvart skjá­skoti af sam­skiptum sínum við lyk­il­fólk í hinni fylk­ing­unni á fjar­fundi þar sem verið var að fjalla um kjörið. Af skjá­skot­inu, sem sent var í stað skjals sem for­mað­ur­inn ætl­aði að deila, mátti sjá að hann hefði verið í sam­ræðum á Messen­ger við hóp­inn sem teng­ist Guðlaugi Þór.

Hall­ar­bylt­ingin skil­aði hins vegar ekki árangri og stuðn­ings­fólk Guðlaugs Þór er enn með tögl og hagldir í Verði líkt og verið hefur und­an­farin ára­tug. Það þarf þó ekki endi­lega að leiða til sig­urs í próf­kjöri.

Áslaug Arna var í öðru sæti á eftir Guðlaugi Þór í Reykja­vík norður í síð­ustu kosn­ingum. Þriðji þing­maður flokks­ins í því kjör­dæmi var svo Birgir Ármanns­son. Í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu leiddi Sigríður Á. Andersen lista flokks­ins eftir að Brynjar Níelsson ákvað að gefa odd­vita­sætið eftir fyrir hana. Þau tvö náðu bæði inn og því eru þing­menn flokks­ins frá Reykja­vík sem stendur fimm. Nokkuð víst er talið að Diljá Mist Ein­ars­dóttir, annar aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs, muni sækj­ast eftir sæti ofar­lega á lista og ekki er ósenni­legt að Hildur Sverr­is­dóttir, annar aðstoð­ar­manna Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, muni gera slíkt hið sama.

Samfylkingin í deilum við sjálfa sig

Í þing­kosn­ing­unum 2003 náði Sam­fylk­ingin þeim árangri að þáver­andi for­maður flokks­ins, Össur Skarp­héð­ins­son, varð fyrsti þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður þegar flokk­ur­inn fékk 29,7 pró­sent atkvæða þar. Við það fór þáver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Davíð Oddsson, niður í annað sætið í kjör­dæm­inu. Stór breyta í þessum árangri var að Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, sem var for­sæt­is­ráð­herra­efni Sam­fylk­ing­ar­innar, sett­ist í fimmta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins. Með því vildi hún und­ir­strika hvað þyrfti til að Sam­fylk­ingin yrði leið­andi afl í íslenskum stjórn­málum. Mark­miðið náð­ist ekki. Flokk­ur­inn náði ein­ungis fjórum inn í kjör­dæm­inu.

Flokk­ur­inn hélt áfram þó áfram og í kosn­ing­unum 2009 varð Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins. Þá fékk flokk­ur­inn 32,9 pró­sent atkvæða í sitt hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og var langstærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni.

Þessi tími er lið­inn. Fylgi flokks­ins mælist nú 15,6 pró­sent á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt síð­ustu þremur könn­unum MMR en hefur verið að dala.

Það ger­ist þrátt fyrir að fram­boðs­listar Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík liggi þegar fyrir. Flokk­ur­inn ákvað að fara hina svoköll­uðu sænsku leið til að velja á þá, sem fól í sér að gerð var könnun á meðal flokks­fé­laga í Reykja­vík um hvaða fólk það vildi til­nefna. Sami hópur merkti svo við hverja úr hópnum, sem taldi á end­anum 49 manns, þeir vildu sjá á lista Sam­fylk­ing­ar­innar og nið­ur­staðan úr þeirri könnun var höfð til hlið­sjónar þegar upp­still­ing­ar­nefnd rað­aði á lista.

Þessi aðferð skil­aði því að elga Vala Helga­dóttir og Kristrún Frosta­dóttir munu sitja í odd­vita­sætum á fram­boðs­listum Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í kom­andi Alþing­is­kosn­ing­um. Í næstu sætum á eftir verða Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem gekk til liðs við flokk­inn nýverið, og Jóhann Páll Jóhanns­son, sem var áður blaða­maður á Stund­inni. Á eftir þeim Rósu Björk og Jóhanni Páli koma þau Viðar Egg­erts­son, leik­stjóri, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Dag­björt Hákon­ar­dótt­ir, lög­fræð­ing­ur, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur.

Mikil opin­ber óánægja hefur verið á meðal hluta félags­manna með þessa nið­ur­stöðu, og þá sér­stak­lega þá ákvörðun að bjóða odd­vita flokks­ins í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu, Ágústi Ólafi Ágústs­syni, ein­ungis þriðja sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, sem hann hafn­aði. Inn­an­flokks­meinin hafa verið borin á torg og því virð­ist flokk­ur­inn vera að glíma við sjálfan sig, sam­hliða því að und­ir­búa sig fyrir kosn­ingar.

Hnökkralausar breytingar hjá Pírötum

Höf­uð­borg­ar­svæðið er lang­sterkasta vígi Pírata. Þeir mæl­ast nú með 14,1 pró­sent fylgi þar heilt yfir sam­kvæmt síð­ustu þremur könn­unum MMR. Það er nokkuð yfir með­al­fylgi þeirra á svæð­inu í síð­ustu kosn­ingum, sem var 11,1 pró­sent.

Píratar hafa lokið próf­kjörum sínum í öllum kjör­dæmum og engar deilur hafa sprottið upp vegna nið­ur­stöðu þeirra. Fyrir lá að fyr­ir­ferða­miklir þing­menn höfðu þegar ákveðið að stíga til hliðar. Í Reykja­vík eru til að mynda báðir odd­vit­arnir frá 2017 horfnir á braut. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir færði sig í Kragann og Helgi Hrafn Gunn­ars­son ákvað að bjóða sig ekki fram að nýju.

[adspot]Þrír þing­­menn, Björn Leví Gunn­­ar­s­­son, Hall­­dóra Mogensen og Andrés Ingi Jóns­­son, höfn­uðu í þremur efstu sæt­unum í Reykja­vík. Arn­­dís Anna Krist­ínar­dóttir Gunn­­ar­s­dóttir, systir Helga Hrafns, lenti svo í fjórða sæti í próf­kjör­inu í Reykja­vík.

Björn Leví greindi frá því á Facebook í kjöl­farið að hann ætli að leiða Pírata í Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæmi suð­­ur, sama kjör­­dæmi og hann er nú þing­­maður fyr­­ir. Það þýðir að Hall­dóra Mogensen verður leið­togi flokks­ins í Reykja­vík norð­ur.

Vinstri græn í vanda í Reykjavík

Í kosn­ing­unum 2017 mun­aði sára­litlu að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og nú for­sæt­is­ráð­herra, næði að verða fyrsti þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norð­urs og velta Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni úr því sæti. Einungis mun­aði 381 atkvæðum á þeim tveimur.

Flokk­ur­inn náði inn fimm þing­mönnum úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, en Svandís Svav­ars­dóttir leiddi í suðri. Steinunn Þóra Árna­dóttir, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Andrés Ingi Jónsson náðu líka inn. Andrés Ingi hefur síðan yfir­gefið flokk­inn og er nú í fram­boði fyrir Pírata.

Með­al­fylgi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var um 18 pró­sent árið 2017. Það mælist nú veru­lega minna sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu þriggja kann­anna MMR, eða um 11,8 pró­sent. Enginn flokkur hefur dalað jafn mikið á kjör­tíma­bil­inu í fylgi eins og Vinstri græn. Því má búast við því að þing­menn flokks­ins í Reykja­vík verði þrír eða fjórir miðað við núver­andi stöðu. Það þarf lítið til að þeir verði jafn­vel færri.

Vinstri græn munu fara í for­val í Reykja­vík og fyrir liggur að nær öruggt er að Katrín og Svandís muni leiða lista flokks­ins áfram. Forvalið fer þó ekki fram fyrr en 16. til 19. maí og því liggur ekki ljóst fyrir hverjir aðrir muni sækj­ast eftir sæti ofar­lega á lista. Steinunn Þóra verður þar að öllum lík­indum en Kolbeinn hefur ákveðið að reyna fyrir sér í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem hann sæk­ist eftir odd­vita­sæti. Forvali þar lýkur um miðjan apríl og því gæti Kolbeinn, nái hann ekki þeim árangri sem hann sæk­ist eftir í Suð­ur­kjör­dæmi, ákveðið að gefa kost á sér í Reykja­vík aftur.

Landsbyggðarflokkur í höfuðborg

Mið­flokk­ur­inn varð til rétt fyrir síð­ustu kosn­ingar, í kringum Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sem hafði ákveðið að yfir­gefa Fram­sókn­ar­flokknum eftir að hafa tapað for­manns­kosn­ingu gegn Sigurði Inga Jóhanns­syni.

Flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur og náði besta árangri sem nýr flokkur hefur náð í fyrstu kosn­ingum sínum. Sá árangur helg­að­ist þó aðal­lega af góðum árangri á lands­byggð­inni.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur fékk flokk­ur­inn ann­ars vegar 7,6 pró­sent atkvæða og hins vegar 7,0 pró­sent. Það skil­aði engum kjör­dæma­kjörnum þing­manni en Þor­steinn Sæmunds­son náði inn sem jöfn­un­ar­þing­maður.

[adspot]Með­al­fylgið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu var um átta pró­sent fyrir þremur og hálfu ári en er nú 6,9 pró­sent, sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu þriggja kann­ana MMR.

Þor­steinn hefur þegar til­kynnt fram­boð að nýju en auk hans vill Ólafur Ísleifs­son vera á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík. Ólafur var kjör­inn á þing fyrir Flokk fólks­ins 2017 en var rek­inn úr honum eftir Klaust­ur­málið, og gekk í kjöl­farið til liðs við Mið­flokk­inn.

Hvað á að gera við Daða Má?

Viðreisn fékk að með­al­tali um 8,8 pró­sent fylgi í kjör­dæm­unum þremur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 2017, en flokk­ur­inn er lang­sterkastur í þétt­býl­inu á suð­vest­ur­horni lands­ins.

Staða flokks­ins er mun betri þar nú en þá, en fylgið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist 12,1 pró­sent. Raun­hæfar vænt­ingar eru því til þess að Viðreisn geti fjölgað Reykja­vík­ur­þing­mönnum sínum, en þeir eru tveir sem stendur.

Árið 2017 voru þau Þor­steinn Víglunds­son og Hanna Katrín Frið­riks­son kosin á þing í sitt­hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inum fyrir Viðreisn. Þor­steinn ákvað að hætta þing­mennsku í fyrra og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir tók sæti hans. Bæði Hanna Katrín og Þorbjörg Sigríður hafa gefið það út að þær sæk­ist eftir þvi að leiða sitt hvorn lista Við­reisnar í í höf­uð­borg­inni.

Viðreisn hefur ákveðið að stilla upp í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og því verður ekk­ert pró­kjör milli þeirra sem sækj­ast eftir fram­gangi.

Enn á eftir að finna lausn á því innan Við­reisnar hvað eigi að gera við Daða Má Krist­ó­fers­son, sem var kjör­inn vara­for­maður flokks­ins í fyrra. Hann sæk­ist eftir for­ystu­sæti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er aug­ljós­lega ekki að fara að velta for­manni flokks­ins, Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, úr odd­vita­sæt­inu í Kraganum. Þá vill Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, aftur á þing og sæk­ist eftir odd­vita­sæti á suð­vest­ur­horn­inu.

Hamborgaramaður, slembival og nýir flokkar

Flokkur fólks­ins náði inn tveimur þing­mönnum í Reykja­vík árið 2017, þeim Ingu Sæland og Ólafi Ísleifs­syni. Ólafur hefur síðan yfir­gefið flokk­inn, líkt og áður var rakið. Með­al­fylgi Flokks fólks­ins var um 7,3 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í síð­ustu kosn­ingum en mælist 4,0 pró­sent að með­al­tali í síð­ustu þremur könn­unum MMR. Það er því brekka framundan hjá Flokki fólks­ins miðað við þá stöðu.

Inga Sæland mun áfram leiða flokk­inn í Reykja­vík norður og þau Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, og Tómas Tómasson, oft­ast kenndur við Ham­borg­ara­búll­una, hafa bæði til­kynnt fram­boð. Flokk­ur­inn hefur safnað upp digrum kosn­inga­sjóði á und­an­förnum árum, eftir að fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega. Að óbreyttu hefur hann um 100 millj­ónir króna til að spila úr í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga, en rekstr­ar­kostn­aður flokks­ins er mjög lít­ill.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mun bjóða fram til Alþingis í fyrsta sinn í haust. Fylgi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu mælist 4,3 pró­sent að með­al­tali úr þremur síð­ustu könn­unum MMR.

Kjör­nefnd flokks­ins var slembival­inn úr hópi almennra félaga, mun raða fólki á fram­boðs­lista. Hann hefur ekki kynnt lista sína enn. Gunnar Smári Egilsson, fram­kvæmda­stjóri flokks­ins, sagði við Frétta­blaðið í jan­úar að búist væri við að listar Sós­í­alista­flokks­ins yrðu full­skip­aðir í mars eða apríl. Það muni í síð­asta lagi ger­ast 1. maí næst­kom­andi, á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins, en flokk­ur­inn verður fjög­urra ára þann dag.

Alls segj­ast 1,7 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa að þeir myndu kjósa annað en þá níu flokka sem hafa hér verið nefndir. Tveir aðrir flokkar hafa til­kynnt um fram­boð. Þeir eru Lands­flokk­ur­inn, með kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn Jóhann Sig­mars­son í broddi fylk­ingar, og Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn, þar sem Guð­mundur Franklín Jónsson, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, er í brúnni og Glúmur Bald­vins­son verður í odd­vita­sæti í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár