Tíu pólitískar áherslur sem komu fram á flokksráðsfundi Vinstri grænna

Vinstri græn eru m.a. í rík­is­stjórn til að passa upp á að hlutir ger­ist ekki en dreymir um annað stjórn­ar­sam­starf. Flokk­ur­inn gagn­rýnir for­stjóra­laun, vill leggja útsvar á fjár­magnstekjur, taka auð­linda­gjöld af vind­orku og hækka veiði­gjöld.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Aðsend

1. Vildu helst vera í annarri ríkisstjórn en eru í þessari til að „passa upp á að hlutir gerist ekki“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna og félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hélt fyrstur ræðu af for­ystu­fólki flokks­ins. Þar ræddi hann meðal ann­ars um erindi Vinstri grænna í stjórn­málum og við­ur­kenndi að hann hefði hugsað tals­verð um það í tengslum við veru flokks­ins í rík­is­stjórn á síð­ustu tveimur kjör­tíma­bilum. „Kannski er rétt­ara að spyrja hvers vegna við erum í rík­is­stjórn, eða í þeirri rík­is­stjórn sem við erum í núna.“

Guð­mundur svar­aði svo eigin spurn­ingu og sagði að Vinstri græn væru í stjórn­málum til að hafa áhrif. Koma að sterkum vinstri áherslum og sterkum grænum áherslum. „Þess vegna erum við í rík­is­stjórn.“

Vara­for­mað­ur­inn bætti þó síðar við að það mætti ekki gleym­ast að Vinstri græn séu líka í rík­is­stjórn til að „passa upp á að hlutir ger­ist ekki“. „Að þessu sögðu, þá er draumarík­is­stjórnin mín með stjórn­mála­hreyf­ingum sem eru lengra til vinstri og grænni. Og, þar vil ég sjá okkur í fram­tíð­inni.“

2. Umhverfismálin ekki látin til Sjálfstæðisflokksins í blindni

Í ræðu Guð­mundar kom fram að það væri ekk­ert laun­ung­ar­mál að það hafi verið Vinstri grænum erfitt að láta umhverf­is­ráðu­neytið, sem hann stýrði á síð­asta kjör­tíma­bili, af hendi í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Nú er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son úr Sjálf­stæð­is­flokki yfir þeim mála­flokki.

[adspot]Að sögn Guð­mundar var það þó ekki gert í blindni. „Allt síð­asta kjör­tíma­bil unnum við að því að færa víg­lín­una í umhverf­is­mál­unum. Lofts­lags­málin voru dregin upp úr lág­deyðu und­an­far­inna ára á undan og komust efst á dag­skrá í sam­fé­lags­um­ræð­unni. [...] En, þar með var ekki allt unnið og það vantar sár­lega upp á í ákveðnum geirum, geirum sem ekki heyra undir umhverf­is­ráðu­neytið, en þar eru sjáv­ar­út­vegur og land­bún­aður efst á blaði. Þess vegna var mik­il­vægt að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið, nú mat­væla­ráðu­neyti, yrði undir stjórn VG því þarna þarf að taka til og koma aðgerðum í gang.“

3. Launaþjófnaður er „grimmileg illska“

Þá minnt­ist vara­for­mað­ur­inn á að inn­flytj­endum væri að fjölga mjög hratt hér­lendis, mest­megnis vegna stríðs­ins í Úkraínu. Vel hefði gengið að finna vinnu fyrir það fólk sem hingað kæmi.

Eitt af stóru verk­efn­unum sem sé fyr­ir­stand­andi sé þó að sporna gegn félags­legum und­ir­boðum og launa­þjófn­aði. „Launa­þjófn­aður er auð­vitað ekk­ert annað en grimmi­leg illska sem bitnar fyrst og fremst á inn­flytj­endum og þeim sem lægst hafa kjörin.“

4. Nú er kominn tími til að fjármagnstekjufólkið greiði útsvar

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, var næst í pontu. Hún fór um víðan völl og varði árangur flokks síns í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki frá haustinu 2017.

For­mað­ur­inn sagði að Vinstri græn myndu halda áfram að vinna að rétt­lát­ara skatt­kerfi á Íslandi. „Nú er kom­inn tími til að breyta skatt­lagn­ingu þeirra sem fyrst og fremst hafa fjár­magnstekjur og tryggja að þau greiði sann­gjarnan hlut í útsvar til sveit­ar­fé­lag­anna til að fjár­magna þau mik­il­vægu verk­efni sem þau sinna ekki síst í félags- og vel­ferð­ar­þjón­ustu. Um það hefur verið talað í tutt­ugu ár en nú er kom­inn tími aðgerða.“

Í stjórn­­­­­­­ar­sátt­­­­mála rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­­em­ber 2021 sagði að reglu­verk í kringum tekju­til­­­­flutn­ing yrði „tekið til end­­­­ur­­­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­­­göngu fjár­­­­­­­magnstekjur reikni sér end­­­­ur­­­­gjald og greiði þannig útsvar.“

5. Ekki hægt að kalla eftir ábyrgð launafólks á stöðugleika en hækka svo forstjóralaunin

For­sæt­is­ráð­herr­ann bland­aði sér einnig í hitaum­ræðu um launa­kjör þeirra sem best hafa það á Íslandi og kröfu efsta lags­ins í efna­hags­legu fæðu­keðj­unni hér­lendis um að almennt launa­fólk taki ekki til sín launa­hækk­anir í haust, þar sem ekk­ert svig­rúm sé til þess.

Í ræðu sinni sagði Katrín að það væri mik­il­vægt að tala ekki að tala niður kröfur launa­fólks um bætt kaup og kjör og kalla eftir ábyrgð um leið og launa­hæstu for­stjórar lands­ins, sem hafi marg­föld mán­að­ar­laun venju­legs fólk, fá launa­hækk­anir sem einar nemi kannski hund­ruð þús­unda á mán­uði ásamt mögu­legum kaup­réttum og háum arð­greiðslum til eig­enda fyr­ir­tækj­anna í land­inu. „Hér má t.d. taka dæmi af for­stjórum tveggja stærstu fyr­ir­tækj­anna á dag­vöru­mark­aði sem höfðu í fyrra mán­að­ar­laun sem nema 15-16 földum lág­marks­launum á vinnu­mark­aði (5,4-5,6 millj­ónir króna) og launa­hækkun árs­ins nam ein og sér einum og hálfum til tvennum lág­marks­launum (480-740 þús­und) – á tímum þar sem launa­fólk er beðið að sýna hóf­semd í kröfum sínum.“

[adspot]Í þeirri snúnu stöðu sem við séum öll í sé ein­fald­lega ekki boð­legt að ganga fram með þessum hætti „heldur hljótum við öll að gera þá kröfu að atvinnu­rek­endur sýni hóf­semd í eigin kjörum og tali af ábyrgð.“

Sú krafa hafi í áranna rás skilað því að Ísland sé meðal allra fremstu ríkja innan OECD-­ríkja þegar kemur að tekju­jöfn­uði. „Við ætlum ekki að glata þeirri stöðu.“

6. Landsvirkjun verði aldrei einkavædd

Katrín tal­aði einnig um mik­il­vægi þess að almenn­ingur á Íslandi eigi helsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins, Lands­virkjun. Hún sagði að það yrði ekki ítrekað nægj­an­lega að því stæði ekki til að breyta. „Og ég hlýt að minna á and­stöðu VG við hug­myndir fyrri rík­is­stjórna um sæstreng til Evrópu – sú staða sem við erum í núna sem þjóð með okkar fyr­ir­tæki í almanna­eigu og orku­markað undir inn­lendri stjórn er öfunds­verð. Nú þegar raf­orku­verð í Evrópu er í hæstu hæðum sýnir staða okkar hér á Íslandi að okkar afstaða – okkar Vinstri-grænna – hefur reynst far­sæl fyrir íslenskan almenn­ing.“

7. Vinstri græn lýsa yfir stuðningi við hækkun veiðigjalda

Flokks­ráðs­fund­ur­inn sam­þykkti á sunnu­dag ýmsar álykt­anir, sem eiga að vera leið­ar­vísir í stjórn­mála­legum áherslum Vinstri grænna næstu miss­erin.

Sú sem vakti mesta athygli snýr að því að flokknum fannst nauð­syn­legt að taka fram að hann lýsi yfir stuðn­ingi við hug­myndir um hækkun veiði­gjalda, þar sem sér­stak­lega sé tekið til­lit til smærri útgerða, end­ur­skoðun laga sem lúta að gagn­sæi um raun­veru­lega eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og að sporna gegn sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. „Stór­út­gerðin hefur haldið áfram að skila hagn­aði í gegnum heims­far­aldur og inn­rás Rússa í Úkraínu og á að leggja meira til sam­fé­lags­ins.“

Vinstri græn hafa setið í rík­is­stjórn í næstum fimm ár og fara nú með ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála.

8. Sérstaklega lýst yfir stuðningi við baráttu launafólks fyrir mannsæmandi kjörum

Þá lýsti fund­ur­inn yfir stuðn­ingi við bar­áttu launa­fólks fyrir mann­sæm­andi kjörum. „Ábyrgir kjara­samn­ingar eru mik­il­vægir til að tryggja efna­hags­lega vel­sæld en þeir munu ekki nást meðan laun stjórn­enda hækka óhóf­lega og risa­vaxnar arð­greiðslur eru greiddar út til fjár­magns­eig­enda. Gæta þarf þess að laun stjórn­enda rík­is­stofn­ana og fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hækki ekki upp úr öllu valdi úr takti við almenna launa­þróun í land­inu. Ef svig­rúm er til þess þá er svig­rúm til launa­hækk­ana fyrir launa­fólk.“

Fund­ur­inn ítrek­aði að það væri hags­muna­mál allra að ná far­sælum samn­ingum á vinnu­mark­aði. „Brýnt er í þeim samn­ingum að bæta kjör hinna verst settu og halda áfram inn­leið­ingu á stytt­ingu vinnu­vik­unnar sem gagn­ast sam­fé­lag­inu öllu.“

9. Endurskoða þarf almannatryggingakerfið

Fund­ur­inn ítrek­aði mik­il­vægi þess að afkoma öryrkja og eldri borg­ara yrði tryggð. „End­ur­skoða þarf almanna­trygg­inga­kerfi örorku­líf­eyr­is­þega þannig að það verði í senn sann­gjarn­ara og gagn­særra og skoða þarf sér­stak­lega stöðu hinna tekju­lægstu í hópi eldri borg­ara og öryrkja. Einnig er mik­il­vægt að fjölga atvinnu­tæki­færum fyrir fólk með skerta starfs­getu og efla starfsend­ur­hæf­ingu við hæfi.“

10. Kalla eftir skýrum reglum um innheimtu auðlindagjalds af vindorkuverum

Flokks­ráðs­fund­ur­inn gerði sér­staka ályktun um vind­orku. Í henni ítreka Vinstri græn þá afstöðu að ekki verði ráð­ist í upp­bygg­ingu vind­orku­vera, ann­arra en þeirra tveggja sem þegar eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar, fyrr en stefna um upp­bygg­ingu vind­orku liggur fyrir sem og almennur og skýr lag­ara­mmi um gjald­töku af vind­orku­verum.

[links]Umhverf­is­rann­sóknir og nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið eigi að vera grund­völlur fyrir ákvörð­unum um upp­bygg­ingu í þágu orku­nýt­ingar að mati flokks­ins. „Vinstri græn telja að upp­bygg­ing vind­orku eigi heima á mjög fáum þegar rösk­uðum svæðum með teng­ingu við vatns­afls­virkj­anir Lands­virkj­unar en eðli­legt er að fyr­ir­tæki sem er í almanna­eigu hafi for­gang í þessum málum. Frá upp­hafi verður að ríkja sátt um nýt­ingu þess­arar auð­lindar. Kalla þarf eftir afstöðu almenn­ings og félaga­sam­taka m.t.t. nátt­úru- og umhverf­is­vernd­ar­sjón­ar­miða og eign­ar­halds vind­orku­vera hér­lendis. Þá þarf að setja skýrar reglur um inn­heimtu auð­linda­gjalds af vind­orku­verum sem renna á til sam­fé­lags­ins. Marka þarf stefnu hið fyrsta um nýt­ingu vind­orku í efna­hags­lög­sög­unni.“

Vinstri græn mæl­dust með 7,5 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Maskínu sem birt var í síð­ustu viku. Það er umtals­vert undir þeim 12,6 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Alls hafa Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dótt­ur, tapað 5,1 pró­sentu­stigi það sem af er kjör­tíma­bil­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár