Tíð ríkisstjórnarskipti og kórónuveiran hafa stóraukið nýtingu fjáraukalaga

Þegar lög um opin­ber fjár­mál voru sett árið 2015 áttu þau að auka festu í rík­is­fjár­málum og draga úr notkun fjár­auka­laga. Þróunin hefur hins vegar orðið þver­öfug, meðal ann­ars vegna tíðra rík­is­stjórn­ar­skipta og kór­ónu­veiru­far­ald­urs.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

„Eitt af mark­miðum með setn­ingu laga um opin­ber fjár­mál árið 2015 var að bæta áætl­ana­gerð um rík­is­fjár­mál og auka festu við fram­kvæmd fjár­laga. Liður í því var að draga úr notkun fjár­auka­laga. Frá því lögin gengu í gildi hefur þró­unin hins vegar orðið þver­öfug. Kemur þar ýmis­legt til og má þar nefna tíð rík­is­stjórna­skipti eftir að lögin tóku gildi en þó sér­stak­lega áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem skall á í byrjun árs 2020. Eftir því sem meira jafn­vægi kemst á rík­is­fjár­málin og þau fær­ast í eðli­legra horf mun koma í ljós hvort það mark­mið lag­anna að draga úr auka­fjár­veit­ingum hafi gengið eftir.“

[links]Þetta segir Rík­is­end­ur­skoðun í umsögn sinni um frum­varp til fjár­auka­laga fyrir árið 2022 þar sem óskað er eftir því að stofn­unin leggi mat á hvort frum­varpið full­nægi skil­yrðum laga um opin­ber fjár­mál.

Í frum­varpi til fjár­auka­laga, sem birt var 9. nóv­em­ber, voru settar fram til­lögur um við­bót­ar­heim­ildir í upp á 74,7 millj­arða króna eyðslu. Um er að ræða 6,1 pró­sent útgjalda­aukn­ingu.

Í lögum um opin­ber fjár­mál er til­grein að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sé heim­ilt, ger­ist þess þörf, að leita auk­inna fjár­heim­ilda í frum­varpi til fjár­auka­laga til að bregð­ast við tíma­bundnum, ófyr­ir­séðum og óhjá­kvæmi­legum útgjöldum innan fjár­laga­árs­ins, enda hafi ekki verið unnt að bregð­ast við þeim með úrræðum sem til­greind eru í lög­unum. Til er almennur vara­sjóður sem hægt á að vera að draga á ef sækja þarf nýjar heim­ildir. Til ráð­stöf­unar á árinu voru um 3,1 millj­arður króna.

Sumt átti allsendis ekki að koma á óvart

Rík­is­end­ur­skoðun kemst að þeirri nið­ur­stöðu að það hljóti að alltaf að vera mats­at­riði hvað telj­ist ófyr­ir­séð og óhjá­kvæmi­leg útgjöld sem falli til eftir setn­ingu fjár­laga. „Stjórn­völd hljóta enda að hafa tölu­vert svig­rúm til mats á þessu en ættu engu að síður að geta rök­stutt það mat vel. Rík­is­end­ur­skoðun telur þó rétt að benda á að sum útgjalda­til­efni hefðu ekki átt að koma alls­endis á óvart og má þar m.a. nefna útgjöld LSH og ann­arra heil­brigð­is­stofn­ana vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Við mat á slíkum við­bót­ar­út­gjöldum spilar auk þess inn í að á sama tíma var verið að inn­leiða stytt­ingu vinnu­tíma sem samið var um í kjara­samn­ingum en kostn­að­ar­auki vegna þess kann einnig að hafa áhrif.“

[adspot]Ástæða virð­ist því til þess að skil­greina betur hvaða útgjalda­til­efnum megi bregð­ast við með vara­sjóðum og hverjum með fjár­auka­lögum. „Almennt verður að telja æski­legt að nota vara­sjóði til þess að mæta ófyr­ir­séðum útgjöldum þannig að mæta megi þeim innan þess útgjald­ara­mma sem skil­greindur er í fjár­lögum.“

Fjölgun flótta­manna kostar umtals­vert

Langstærstur hluti þeirra við­bót­ar­út­gjalda sem sækja þarf heim­ild fyrir eru um 37 millj­arða króna vegna end­ur­met­innar þarfar um vaxta­gjöld rík­is­sjóðs, sem eru til­komin vegna áhrifa verð­bólgu á verð­tryggðar skuldir rík­is­sjóðs. Þá eru óskað eftir 16,6 millj­arða króna við­bót­ar­heim­ildum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, að uppi­stöðu vegna auk­ins rekstr­ar­kostn­aðar heil­brigð­is­stofn­ana sem taka til sín 15 af þeim millj­örðum króna.

Fyrir liggur að það þurfi að eyða 4,9 millj­örðum króna í svo­kall­aðar efna­hags­legar aðgerð­ir, en til þeirra telj­ast 2,2 millj­arða króna styrkir til land­bún­að­ar, þriggja pró­senta hækkun bóta almanna­trygg­inga sem kostar 1,6 millj­arð króna og barna­bóta­auki upp á 1,1 millj­arð króna. Tveir síð­ast­nefndu útgjalda­lið­irnir eru vegna sér­stakra efna­hags­að­gerða sem kynntar voru í vor til að draga úr áhrifum verð­bólgu á lífs­kjör við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins.

[adspot]Leggja þarf til 1,4 millj­arða króna í við­bót við fyrri áætluð útgjöld til að mæta ýmsum útgjöldum sem tengj­ast fjölgun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, flótta­fólks og mál­efnum Úkra­ínu. Til við­bótar við þá upp­hæð er gert ráð fyrir að ráð­stafa 3,2 millj­örðum króna úr almennum vara­sjóði vegna fjölgun flótta­fólks og umsókna um alþjóð­lega vernd. Heild­ar­aukn­ing það sem af er árs­ins nemur því um 4,6 millj­örðum króna, en á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins sóttu alls 3.467 um vernd hér­lend­is. Það eru rúm­lega þrisvar sinnum fleiri en hafa áður sótt um vernd á Íslandi innan heils árs. Lang­flest­ir, eða 58 pró­sent allra umsækj­enda, koma frá Úkra­ínu eftir boð íslenskra stjórn­valda þar um. Þá eru 22 pró­sent umsækj­enda frá Venes­ú­ela, sem koma hingað á grund­velli ákvörð­unar stjórn­valda þar um frá árinu 2018. Því koma átta af hverjum tíu umsækj­endum um vernd frá þessum tveimur lönd­um.

Við­bót­ar­kostn­aður vegna húsa­kaupa og end­ur­greiðslna

Einn lið­ur­inn í fjár­auka­lög­unum kall­ast ein­fald­lega „önnur útgjalda­til­efn­i“. Þar er meðal ann­ars að finna 2,9 millj­arða króna við­bót­ar­út­gjöld vegna hæsta­rétt­ar­dóms sem féll fyrr á árinu og sagði að óheim­ilt væri að skerða fram­færslu­upp­bót örorku- og elli­líf­eyr­is­þega á þeim for­sendum að þeir hafi búið hluta starfsævi sinnar erlend­is.

Stærsti nýi kostn­að­ar­lið­ur­inn sem fellur þar undir er þó sex millj­arða króna eyðsla í kaup á hluta af nýjum höf­uð­stöðvum Lands­bank­ans við Aust­ur­bakka. Þar á að koma fyrir utan­rík­is­ráðu­neyt­inu auk þess sem hluti þess verður nýtt undir sýn­ing­ar- og menn­ing­ar­tengda starf­semi á vegum Lista­safns Íslands, og er þá einkum horft til sam­tíma­list­ar.

Annað mál sem verið hefur nokkuð í umræð­unni á þessu ári er ákvörðun stjórn­valda að hækka end­ur­greiðslu vegna fram­leiðslu­kostn­aðar kvik­mynda­fram­leið­enda úr 25 í 35 pró­sent fyrir stærri verk­efni. Rík­is­stjórnin sam­þykkti frum­varp Lijlu D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, um málið í maí og það var afgreitt sem lög frá Alþingi um miðjan júní. Innan kvik­mynda­geirans er almennt talið að fram­lagn­ingu frum­varps­ins hafi verið flýtt til að tryggja að fram­leiðsla á fjórðu þátta­röð True Det­ect­ive færi fram hér á landi, en umfang þess er metið á níu millj­arða króna.

Þegar frum­varpið var til umfjöll­unar í atvinnu­vega­nefnd snemma í sumar skil­aði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið inn minn­is­blaði þar sem gagn­rýnt var að frum­varpið væri ófjár­­­magnað og að skortur hefði verið á sam­ráði við samn­ingu þess. Í minn­is­­blað­inu var bent á kostn­að­­ar­á­hrif frum­varps­ins, um ófjár­­­magnað frum­varp sé að ræða og fjár­­heim­ildir væru því ekki til staðar til að mæta þeim kostn­að­­ar­auka sem frum­varpið hefði í för með sér. Í umræðum á þingi sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá því að hann hefði vakið athygli á því við rík­is­stjórn­ar­borðið að útgjalda­lið­ur­inn, sem vistaður væri í menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu hefði ekki nægi­legt svig­rúm til að full­nægja þeirri þörf sem myndi skap­ast fyrir end­ur­greiðsl­ur.

Það kom enda í ljós og í fjár­auka­laga­frum­varp­inu þarf að leggja tæp­lega 1,8 millj­arð króna til í umfram­út­gjöld vegna end­ur­greiðslna vegna kvik­mynda­gerð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár