Kristrún Frostadóttir verður ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar

Miklar breyt­ingar verða í for­ystu­sveit Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fundi sem fer fram í lok þessa mán­aðar. Nú liggur fyrir að Kristrún Frosta­dóttir fær ekki mót­fram­boð í for­manns­kjöri flokks­ins.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Eyþór Árnason

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, verður næsti for­maður flokks­ins. Frestur til að skila inn fram­boði til for­manns rann út í hádeg­inu í dag og Kristrún var eini fram­bjóð­and­inn sem skil­aði inn fram­boði. Kosning nýs for­manns fer fram eftir viku á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem fer fram á Grand Hótel þá helgi.

[links]Logi Ein­ars­son, núver­andi for­maður, greindi frá því í sumar að hann ætl­aði að stíga til hliðar á kom­andi lands­fundi. Í við­tali við Frétta­blaðið í júní sagði hann: „ „Ég er að hætta sem for­­maður af því að ég er sann­­færður um að aðrir geti gert betur en ég.“

Kristrún, sem var kjör­inn á þing í fyrra­haust, til­kynnti um fram­boð sitt 19. ágúst síð­ast­lið­inn. Í ræðu sinni af því til­efni sagð­ist hún ætla að leggja áherslu á kjarna­málin í jafn­að­ar­manna­stefn­unni. Þau séu hús­næð­is­mál, heil­brigð­is­mál, sam­göng­ur, góð atvinna og kjör fólks. Það væri lyk­ill­inn að breið­ari og stærri flokki og trú­verð­ug­leika. „Við eigum enga ann­arra kost á völ að mínu mati, því vand­inn sem við stöndum frammi fyrir er þessi: Kann­anir hafa sýnt að kjós­endur eiga erfitt með að festa hönd á það fyrir hvað Sam­fylk­ingin stend­ur. Ég vil að það sé alveg á hreinu fyrir hvað flokk­ur­inn stendur og af hverju hann á erindi við fólkið í land­in­u.“

[adspot]Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar 16,3 pró­sent, sem er umtals­vert meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021, þegar 9,9 pró­sent kjós­enda kaus hann. Samkvæmt könn­un­inni yrði Sam­fylk­ingin næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag.

Kjarninn tók ítar­legt við­tal við Kristrúnu í síð­asta mán­uði um hvernig hún sér fyrir sér Sam­fylk­ing­una undir sinni for­mennsku. Það má lesa hér.

Frekari breytingar í forystunni

Ljóst er að fleiri svipt­ingar verða í for­ystu­sveit Sam­fylk­ing­ar­innar. Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, til­kynnti um síð­ustu helgi að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Skömmu áður en Guð­mundur Árni til­kynnti þetta birti Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, núver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, færslu á Facebook þar sem hún til­kynnti að hún myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri eftir tæp­lega sex ára setu. Í ágúst hafði Heiða sagt við mbl.is að hún vildi halda áfram sem vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar.

Tvær konur hafa svo til­kynnt um fram­boð til rit­ara Sam­fylk­ing­ar­innar. Alex­andra Ýr van Erven, sem hefur gegnt emb­ætt­inu frá 2020, hefur gefið út að hún sæk­ist eftir end­ur­kjöri. Auk hennar hefur Arna Lára Jóns­dóttir, bæj­ar­stjóri á Ísafirði, boðað fram­boð til rit­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár