Kristrún vill að aðildarviðræður að ESB verði lagðar í þjóðaratkvæðagreiðslu

Kristrún Frosta­dóttir segir ekk­ert hafa breyst í afstöðu flokks síns gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu. Sjálf sé hún stuðn­ings­maður aðildar. Fyrsta skrefið sem þurfi að stíga sé að spyrja þjóð­ina hvort hún vilji fara í þetta verk­efni.

Kristrún Frosta­dóttir, sem býður sig fram til að verða for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að stefna flokks­ins hvað varðar aðild að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) sé alveg skýr og verði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­farið.“

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali við Kristrúnu við Kjarnann sem birt­ist á laug­ar­dag.

Þar segir Kristrún að það umboð sem hún sé að reyna að sækja sér sem for­maður feli í sér að flokk­ur­inn verði að passa að fær­ast ekki of mikið í fang. „Ég vil ekki að fólkið í land­inu haldi að við getum ekki fjár­magnað heil­brigð­is­kerfið, komið skikk á hús­næð­is­mál og önnur mik­il­væg vel­ferð­ar­mál án þess að ganga í Evr­ópu­sam­bandið eða að inn­ganga sé eina lausnin á þeim málum. Ég vil að fólk með jafn­að­ar­manna­taug geti kosið Sam­fylk­ing­una þótt það sé tor­tryggið gagn­vart aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Það á ekki að koma í veg fyrir að við getum fjár­magnað vel­ferð­ar­kerfin og brotið upp þessa patt­stöðu sem er til staðar.“

Meirihluti hlynntur aðild samkvæmt könnunum

Innganga Íslands í Evr­ópu­sam­bandið hefur verið á meðal stærstu stefnu­mála Sam­fylk­ing­ar­innar um ára­bil. Sótt var um aðild að sam­band­inu í tíð fyrstu hreinu tveggja flokka vinstri­st­jórn­ar­innar árið 2009 en ekki tókst að klára þær við­ræður áður en kosið var næst, enda hvorki meiri­hluti fyrir aðild innan þings né innan rík­is­stjórnar á þeim tíma.

[adspot]Fyrir kosn­ing­arnar 2013 lof­aði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, því að þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsla yrði um aðild­­ar­við­ræð­­urnar áður en þeim yrði hætt. Það gerði hann til að friða stóran hóp Evr­­ópu­­sinna innan síns flokks. Þegar á hólm­inn kom stóð Bjarni ekki við það lof­orð með þeim rökum að það hefði verið „póli­­tískur ómög­u­­leiki“ að halda slíka þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu þar sem ráða­­menn beggja stjórn­­­ar­­flokk­anna sem tóku við völdum, Sjálf­­stæð­is­­flokks og Fram­­sókn­­ar, væru á móti aðild. Það varð til þess að lyk­il­­menn úr ranni Evr­­ópu­­sinna yfir­­­gáfu Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn. Og stofn­uðu Við­reisn. Aðild­ar­við­ræður voru settar á ís í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, á árinu 2015, með því að Ísland var tekið af lista um umsókn­ar­ríki. Á þeim tíma var meiri­hluti þjóð­ar­innar á móti aðild, sam­kvæmt könn­unum.

Kannanir sem gerðar hafa verið í ár sýna að við­snún­ingur hefur orðið hjá þjóð­inni í afstöðu til þess, en í Þjóð­ar­púlsi Gallup sem birt­ist í mars voru 47 pró­sent hlynntir inn­göngu á meðan að 33 pró­sent voru á móti. Það var í fyrsta sinn sem mælst hafði meiri­hluti fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2009. Könnun sem Prósent gerði í júní sýndi mjög svip­aða nið­ur­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár