Hreinn tímabundið aðstoðarmaður ráðherra á ný og Áslaug Hulda fær fastráðningu

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hefur haft fjóra aðstoð­ar­menn á þeim tæpu níu mán­uðum sem liðnir eru frá því að ný rík­is­stjórn tók til starfa. Hreinn Loftsson, sem var aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar í tvær vikur í des­em­ber, er mættur aftur til starfa.

Hreinn Loftsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Hreinn Loftsson, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Áslaug Hulda Jóns­dóttir. Mynd: Samsett

Hreinn Loftsson, sem hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra í des­em­ber síð­ast­liðnum, um tveimur vikum eftir að hafa verið ráð­inn í starfið, er aftur orð­inn aðstoð­ar­maður ráð­herra. Hann hefur tekið tíma­bundið við starfi aðstoð­ar­manns Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Hreinn, sem aðstoð­aði Áslaugu Örnu á síð­asta kjör­tíma­bili þegar hún var dóms­mála­ráð­herra, hleypur í skarðið fyrir Eydísi Örnu Líndal, sem verður í fæð­ing­ar­or­lofi þar til um næstu ára­mót. Eydís Arna aðstoð­aði Áslaugu Örnu einnig á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu kemur einnig fram að Áslaug Hulda Jóns­dóttir, sem sótt­ist eftir því að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en hafði ekki erindi sem erf­iði, sé orðin fast­ráðin aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu. Áslaug Hulda, sem er fyrr­ver­andi for­maður bæj­ar­ráðs Garða­bæjar en hætti þátt­töku í sveit­ar­stjórn­ar­málum eftir að hafa tapað odd­vitaslagnum þar fyrr á þessu ári, bauð sig fram til rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins á flokks­ráðs- og for­manna­fundi flokks­ins 2019. Hún tap­aði naum­lega fyrir Jóni Gunn­ars­syni, fékk 117 atkvæði en Jón 135.

Áslaug Hulda tók tíma­bundið við starfi aðstoð­ar­manns ráð­herr­ans í apríl eftir að Eydís Arna fór í fæð­ing­ar­or­lof. Sú vend­ing hefur orðið síðan þá að hinn aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu, Magnús Júl­í­us­son, lét af störfum eftir að hafa verið kjör­inn í stjórn Festi í júlí. Hann hafði verið aðstoð­ar­maður ráð­herra frá því í des­em­ber í fyrra.

Því liggur fyrir að Áslaug Arna hefur haft fjóra mis­mun­andi aðstoð­ar­menn það sem af er kjör­tíma­bili, en annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur tók til starfa 28. nóv­em­ber 2021, eða fyrir tæpum níu mán­uðum síðan.

Var of fljótur á sér

Þegar Hreinn hætti sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar, eftir tveggja vikna starf, birti hann stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann sagð­ist hafa verið of fljótur á sér að þiggja boð Jóns. Í milli­tíð­inni, frá því að Hreinn var ráð­inn og þar til hann hætti, var Brynjar Níelsson ráð­inn í hina aðstoð­ar­manna­stöð­una sem Jón má fylla sam­kvæmt lögum.

[adspot]Í Facebook-færsl­unni sagði: „„​Þegar ég tók við starfi sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, dóms­mála­ráð­herra, fyrir rétt rúmum tveimur árum lét ég þau orð falla að ég liti á það sem mik­inn heiður og fag­lega áskorun að taka að mér þetta verk­efni. Árin hafa svo sann­ar­lega verið við­burða­rík. Mál­efni ráðu­neyt­is­ins eru fjöl­mörg og spenn­andi. Ég tók því boði Jóns Gunn­ars­sonar þegar hann bauð mér að halda áfram störfum við ráð­herra­skiptin í byrjun mán­að­ar­ins. Fljót­lega komst ég þó að raun um að ég hafði verið of fljótur á mér og hef nú afráðið að láta af störf­um.“

Jón hefur síðan ráðið Teit Björn Ein­ars­son í þá aðstoð­ar­manna­stöðu sem Hreinn skildi eftir opna.

Aðstoð­­ar­­mönnum fjölgað 2011

Lögum um Stjórn­­­­­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­­­ar­­­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­­­is­­­stjórn­­­ina að ráða þrjá aðstoð­­­ar­­­menn til við­­­bótar ef þörf kref­­­ur. Í lög­­­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­­­ar­­­manns ráð­herra er að vinna að stefn­u­­­mótun á mál­efna­sviði ráðu­­­neytis undir yfir­­­­­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­­­neyt­is­­­stjóra.“

[links]Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­­­ar­­­­manna­­­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­­­ast um að ræða nán­­­­ustu sam­­­­starfs­­­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­­­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­­­is­­­stjórn Sam­­­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­­­is­­­stjórn­­­inni og í dag eru þeir orðnir tólf. Það þýðir að fjöldi leyf­­i­­­legra aðstoð­­­ar­­­manna hefur líka auk­ist.

Alls má rík­­­is­­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­­ar­­­menn sem stend­­ur. Laun og starfs­­­kjör aðstoð­­­ar­­­manna ráð­herra mið­­­ast við kjör skrif­­­stofu­­­stjóra í ráðu­­­neytum sam­­­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Kostn­aður við rekstur rík­is­stjórnar auk­ist

Rekstur rík­­­is­­­stjórnar Íslands, sem í fel­­­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­­ar­­­manna þeirra, er áætl­­­aður 714,9 millj­­ónir króna á þessu ári sam­­kvæmt fjár­lög­um. Það er um fimm pró­­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá átti rekst­­ur­inn að kosta 681,3 millj­­ónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­­­ar­­­manna áætl­­aður 461 millj­­­ónir króna. Kostn­að­­ur­inn á þessu ári er því 55 pró­­sent hærri í krónum talið.

Kostn­að­­ur­inn á þessu fyrsta starfs­ári rík­­is­­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­­stæð­is­­flokks og Fram­­sókn­­ar­­flokks reynd­ist á end­­anum hærri, eða 597 millj­­ónir króna. Því hefur kostn­að­­ur­inn vegna launa ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna þeirra alls vaxið um 117,9 millj­­ónir króna frá 2018, eða 20 pró­­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár