Uppstokkun í stjórn Festi

Þrír nýir stjórn­ar­menn taka sæti í stjórn Festi eftir hlut­hafa­fund félags­ins sem hald­inn var í kjöl­far ólgu sem geisað hefur innan félags­ins. Aðstoð­ar­maður ráð­herra er á meðal nýrra stjórn­ar­manna en for­maður og vara­for­maður stjórnar halda sætum sínum.

Þau Magnús, Sigurlína og Hjörleifur koma ný inn í stjórn Festi.
Þau Magnús, Sig­ur­lína og Hjör­leifur koma ný inn í stjórn Festi. Mynd: Samsett/Kjarninn

Magnús Júl­í­us­son, Sig­ur­lína Ingv­ars­dóttir og Hjör­leifur Pálsson koma ný inn í stjórn Festi en stjórn­ar­kjör fór fram á hlut­hafa­fundi félags­ins í dag. Það verður því tölu­verð breyt­ing á sam­setn­ingu stjórnar en þau Guðjón Reyn­is­son og Margrét Guð­munds­dóttir halda sæti sínu í stjórn félags­ins. Guðjón mun áfram sitja sem for­maður stjórn­ar­innar, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Festi en Sig­ur­lína verður vara­for­maður.

Margrét sem var sitj­andi vara­for­maður félags­ins fram að hlut­hafa­fund­inum var með flest atkvæði á bak við sig, 18,2 pró­sent en við stjórn­ar­kjörið var við­höfð svokölluð marg­feld­is­kosn­ing. Slík kosn­ing gefur hlut­höfum tals­vert frelsi til þess að ráð­stafa atkvæðum sínum. Þannig geta hlut­hafar til dæmis lagt öll atkvæði sín á einn fram­bjóð­enda eða skipt þeim niður í hverjum þeim hlut­föllum sem þeir vilja á fram­bjóð­endur.

Magnús Júl­í­us­son er um þessar mundir aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Ljóst er að hún mun þurfa að finna sér nýjan aðstoð­ar­mann enda fer stjórn­ar­seta í skráðu hluta­fé­lagi ekki saman við störf aðstoð­ar­manns, hún sam­ræm­ist ekki lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands. Magnús sagði í sam­tali við Kjarnann á dög­unum að hann myndi hætta í starfi sínu sem aðstoð­ar­maður yrði hann kos­inn í stjórn félags­ins.

Lífeyrissjóðir komið sínu fólki að

Líf­eyr­is­sjóður Starfs­manna rík­is­ins (LSR) er stærsti hlut­haf­inn í Festi, með 10,63 pró­senta hlut, en LSR var meðal þeirra stóru fjár­festa sem fór fram á marg­feld­is­kosn­ingu á hlut­hafa­fund­inum. LSR kom sínum manni að í stjórn­ar­kjör­inu, Sig­ur­línu Ingv­ars­dóttur, en sam­kvæmt frétt RÚV frá því í gær hugð­ist LSR styðja Sig­ur­línu í stjórn. Sig­ur­lína hlaut 14,7 pró­sent atkvæða. Sig­ur­lína er stjórn­ar­for­maður tölvu­leikja­fyr­ir­tækj­anna Mussila og Solid Clouds en hún situr einnig í nokkrum stjórnum, til að mynda hjá Eyri Vexti og Carbon Recycling.

Þriðji nýi stjórn­ar­mað­ur­inn er Hjör­leifur Pálsson. Hann naut stuðn­ings Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna sem er þriðji stærsti hlut­haf­inn í félag­inu með 9,83 pró­sent hlut. Hjör­leifur er fimmti maður inn í stjórn, hann hlaut 11,4 pró­sent atkvæða á fund­inum. Hjör­leifur er sá eini í stjórn félags­ins sem var ekki til­nefndur af til­nefn­ing­ar­nefnd. Hann er stjórn­ar­for­maður Sýnar sem einnig er skráð á markað. Þar að auki gegnir Hjör­leifur stjórn­ar­störfum, til dæmis hjá Brunni vaxt­ar­sjóði.

Ólga í kjölfar uppsagnar forstjórans

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um hefur gustað nokkuð um stjórn Festi á síð­ustu mán­uðum. Í upp­hafi árs sagði þáver­andi stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, af sér. Það gerði hann í kjöl­far ásak­ana Vítalíu Lazarevu um alvar­leg kyn­ferð­is­brot. Ásakanir Vítalíu beindust að tveimur stórum einka­fjár­festum í Festi, Þórði og Hregg­viði Jónssyni, auk Ara Edwald, fyrr­ver­andi for­stjóra Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Menn­irnir þrír kærðu Vítalíu nýverið til lög­reglu fyrir fjár­kúgun.

Ástæða þess að boðað var til hlut­hafa­fundar er upp­sögn for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar, en hann var rek­inn fyr­ir­vara­laust í byrjun júní. Líkt og venja er fór stjórn­ar­kjör fram á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins en hann var hald­inn þann 22. mars síð­ast­lið­inn. Það eru því ekki liðnir fjórir mán­uðir síðan hlut­hafar kusu síð­ast um stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. [links]

Eggert hafði verið for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í um sjö ár og í kjöl­far upp­sagn­ar­innar sendi stjórn Festi frá sér til­kynn­ingu til kaup­hallar þar sem sagt var að hann hefði sagt upp. Í kjöl­far mik­illar fjöl­miðlaum­fjöll­unar sendi stjórnin frá sér aðra til­kynn­ingu þar sem greint var nánar frá starfs­lokum for­stjór­ans. Þar við­ur­kenndi stjórnin að hún hefði haft frum­kvæði að því að óska eftir sam­tali við Egg­ert um starfs­lok og að „við þær aðstæður óskaði for­­stjóri eftir að fá að segja upp störfum í stað þess að honum yrði sagt upp, með hags­muni sjálf síns og félags­­ins í huga. Var fall­ist á þá mála­­leit­an.“

Mikill fjöldi sóttist eftir sæti í stjórninni

Tæpri viku eftir að stjórnin sendi frá sér seinni til­kynn­ing­una boð­aði hún til hlut­hafa­fundar þann 14. júlí þar sem stjórn­ar­kjör myndi fara fram. Alls bár­ust 21 fram­boð í stjórn og fór til­nefn­ing­ar­nefnd í kjöl­farið yfir fram­boði. Nið­ur­staða til­nefn­ing­ar­nefnd­ar­innar var sú að ell­efu fram­boð voru talin fremst í flokki. Í þeim hópi voru allir fimm stjórn­ar­menn fyr­ir­tæk­is­ins sem kjörnir voru á aðal­fund­inum í mars, auk sex ann­arra. Fyrir þessa sex fram­bjóð­endur var lagður sér­stakur spurn­inga­listi þar sem fram­bjóð­end­urnir voru meðal ann­ars spurðir að því hvort þeir hefðu reynslu á sviði sam­fé­lags­legrar ábyrgðar og hvort þeir sem ein­stak­lingar eða félög sem þeir væru í for­svari fyrir ættu í dóms­málum og/eða deilum við eft­ir­lits­að­ila sem gætu haft áhrif á orð­spor og almenn­ings­á­lit að þeirra mat­i?

Til­nefn­ing­ar­nefndin ræddi einnig við stóra hlut­hafa, bæði líf­eyr­is­sjóði og einka­fjár­festa. Í skýrslu nefnd­ar­innar segir að í við­ræð­unum hafi komið „skýrt fram að ein­dreg­inn vilji er meðal þeirra til frek­ari breyt­inga. Þó eru mis­mun­andi og óljós­ari skoð­anir á því hvernig stjórnin í heild eigi að vera skip­uð.“

Að lokum voru óháðir nefnd­ar­menn ein­huga um að til­nefna níu til stjórn­ar­kjörs. Fram­bjóð­end­urnir sem til­nefn­ing­ar­nefndin mælti með voru Ást­valdur Jóhanns­son, Björgólfur Jóhanns­son, Guð­jón Reyn­is­son, Magnús Júl­í­us­son, Mar­grét Guð­munds­dótt­ir, Sig­rún Hjart­ar­dótt­ir, Sig­ur­lína Ingv­ars­dótt­ir, Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dóttir og Þórey Guð­munds­dótt­ir. Alls var kosið á milli þrettán fram­boða á fund­inum. Auk þeirra sem til­nefnd voru af til­nefn­ing­ar­nefnd sótt­ust Helga Jóhanna Odds­dóttir, Herdís Pála Páls­dóttir, Hjör­leifur Pálsson og Óskar Jós­efs­son eftir sæti í stjórn félags­ins.

Félagið heldur nafninu

Eitt mál var á dag­skrá fund­ar­ins auk stjórn­ar­kjörs­ins, til­laga um nafna­breyt­ingu félags­ins. Pétur Þor­steins­son, prestur Óháða safn­að­ar­ins lagði fram til­lögu um breyt­ingu á sam­þykktum félags­ins sem fól það í sér að nafn félags­ins yrði Sundrung.

Í sam­tali við mbl.is sagði Pétur hafa lagt til­lög­una fram til þess að vekja athygli á þeirri aðferð sem var beitt við upp­sögn for­stjór­ans. „En ég legg ekk­ert endi­lega til að þetta verði sam­þykkt,“ sagði Pétur um til­lög­una sem var felld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár