Mun hætta sem aðstoðarmaður ráðherra hljóti hann kjör í stjórn Festi

Aðstoð­ar­maður háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­rá­herra, sem sæk­ist eftir setu í stjórn Festi, segir að slík stjórn­ar­seta sam­ræm­ist ekki nýlegum lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands – það sé alveg skýrt.

Magnús Júlíusson aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráherra.
Magnús Júl­í­us­son aðstoð­ar­maður háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­rá­herra. Mynd: Stjórnarráðið

Magnús Júl­í­us­son, aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sæk­ist eftir stjórn­ar­setu í Festi en til­nefn­ing­ar­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins hefur til­nefnt níu í stjórn félags­ins fyrir kom­andi hlut­hafa­fund þann 14. júlí næst­kom­andi og er Magnús á meðal þeirra.

Hann tók nýlega sæti í stjórn Rio Tinto á Íslandi sem full­trúi rík­is­ins en hann segir í sam­tali við Kjarnann að eðli­legt sé að aðstoð­ar­menn sinni slíkri stjórn­ar­setu ef hún er á vegum rík­is­ins og ekki sé greitt fyrir hana sér­stak­lega. Önnur stjórn­ar­seta sé það ekki.

Í nýlegum lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands segir að störf æðstu stjórn­enda og aðstoð­ar­manna ráð­herra telj­ist full störf. Þeim sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­ar­ráði Íslands.

Samkvæmt lög­unum getur ráð­herra veitt und­an­þágu ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka.

„Það er alveg skýrt að þetta fer ekki saman“

Magnús segir að stjórn­ar­seta í Festi sam­ræm­ist ekki þessum lögum. „Það er alveg ljóst að stjórn­ar­seta í Festi fer ekki saman við starf aðstoð­ar­manns, ef af því yrði.“

Þegar hann er spurður hvort hann ætli þá að hætta sem aðstoð­ar­maður ráð­herra ef hann færi í stjórn Festi þá segir hann að lögin séu alveg skýr með það að und­an­þágan í lög­unum gildi ekki um stjórn­ar­setu í Festi. Und­an­þágan sem hægt er að fá sam­kvæmt lögum gildi ein­ungis um ákveðin störf eins og áður segir. „Það er alveg skýrt að þetta fer ekki saman og ég mun hætta sem aðstoð­ar­maður hljóti ég kjör í stjórn­ina.“

Festi greiddi yfir 700 milljónir fyrir Íslenska orkumiðlun

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Festis segir að til­nefn­ing Magnúsar til stjórn­ar­setu byggi á því að hann hafi mikla þekk­ingu á orku­mark­aði, sjálf­bærni, umhverf­is­málum, stjórn­sýslu og upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja.

Þar er byggt á því að Magnús stofn­aði á sínum tíma, ásamt fjár­fest­inum Bjarna Ármanns­syni, félagið Íslensk orku­miðlun sem byrj­aði að selja íslenskum neyt­endum raf­orku árið 2017. Ásamt Bjarna og Magnúsi voru hlut­hafar Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfélag Vest­manna­eyja og síðar Festi. Festi keypti félagið síðan að fullu undir lok árs 2020 og greiddi 722,5 millj­ónir króna fyrir félagið, sem síðar féll undir N1 og fékk síðla árs 2021 nafnið N1 Rafmagn.

Verð­matið á félag­inu á þeim tíma er það var selt var alls 850 millj­ónir króna, sem vakti nokkra athygli, enda var hátt í 70 pró­sent af bók­færðu virði félags­ins óefn­is­legar eignir í formi við­skipta­vildar. Ekki lá fyrir í hverju nákvæm­lega þessu verð­mæta við­skipta­vild fælist.

Stundin fjall­aði um náin tengsl lyk­il­leik­enda í þessum við­skiptum þegar þau áttu sér stað, en Eggert Þór Krist­ó­fers­son. sem nýlega var sagt upp störfum sem for­stjóra Festi, er vinur og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi Bjarna Ármanns­sonar, og var á árum áður fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags Bjarna, sem er einmitt sama fyr­ir­tæki og Festi keypti hlut­inn í Íslenskri orku­miðlun af.

Þáver­andi stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, sem lét af störfum fyrr á þessu ári í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­brot, hefur einnig verið við­skipta­fé­lagi Bjarna og þekkt hann frá því á upp­vaxt­ar­árum þeirra á Akranesi, eins og blogg­ar­inn Guð­mundur Hörður Guð­munds­son vakti athygli á í færslu sinni um málið, sem sett var fram undir fyr­ir­sögn­inni „Vin­sam­legt verð­mat“.

Sjáv­ar­sýn, fjár­fest­inga­fé­lag Bjarna, á 1,03 pró­sent hlut í Festi. Magnús var um tíma deild­ar­stjóri orku­sviðs N1 eftir kaup Festis á Íslenskri orku­miðlun. Hann hætti störfum í lok síð­asta árs og tók við sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu fyrr á þessu ári.

Tveir fulltrúar í stjórn Rio Tinto á vegum íslenska ríkisins

Magnús tók sæti í stjórn Rio Tinto á Íslandi í maí síð­ast­liðnum og segir hann við Kjarnann að sú stjórn­ar­seta sé út frá stofn­samn­ingi við ríkið þar sem ríkið skipar full­trúa.

Á vef Rio Tinto á Íslandi kemur fram að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins sé skipuð sjö ein­stak­lingum. Fjórir stjórn­ar­menn auk stjórn­ar­for­manns sitja í stjórn­inni fyrir hönd eig­enda en rík­is­stjórn Íslands á tvo full­trúa í stjórn­inni sam­kvæmt upp­haf­legum samn­ingi við stjórn­völd um stofnun fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég er í stjórn­inni sem full­trúi íslenska rík­is­ins, til­nefndur af ráð­herra, og þar hafa verið skrif­stofu­stjórar og ýmsir verið í gegnum tíð­ina.“ Hann segir að það sé partur af hlut­verki rík­is­ins að vera með stjórn­ar­mann þar.

Hann seg­ist ekki sjá að um hags­muna­á­rekstur sé að ræða að vera stjórn­ar­maður í Rio Tinto og aðstoð­ar­maður iðn­að­ar­ráð­herra. „Það hefur ekki verið talin ástæða fyrir því hingað til,“ segir hann og bendir á að samn­ingur rík­is­ins við Rio Tinto hafi verið gerður fyrir rúmum 50 árum síðan og renni sitt skeið á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár