Jón Gunnarsson nýr ritari Sjálfstæðisflokksins

Þing­mað­ur­inn Jón Gunn­ars­son var í dag kjör­inn rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann tekur við emb­ætt­inu af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur verið kjör­inn nýr rit­ari flokks­ins á flokks­ráðs- og for­manna­fundi hans sem fram fór á hotel Nordica í dag. Hann hlaut 52,9 pró­sent atkvæða.

Áslaug Hulda Jóns­dótt­ir, for­maður bæj­ar­ráðs Garða­bæj­ar, og Jón voru í fram­boð í emb­ætt­ið. Hún hlaut 45,88 pró­sent atkvæða. Jón fékk alls 135 atkvæði á móti 117 atkvæðum Áslaugar. Aðrir hlutu færri atkvæði.

[adspot]Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hafði gegnt emb­ætt­inu und­an­farin tæp fjögur ár en hún var tók við sem dóms­mála­ráð­herra á föstu­dag fyrir viku og mátti þá ekki lengur vera rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Því þurfti að kjósa nýj­an.

Jón verður 63 ára eftir nokkra daga, þann 21. sept­em­ber. Hann hefur verið þing­maður suð­vest­ur­kjör­dæmis frá árinu 2007. Jón var sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra árið 2017 í nokkra mán­uði á meðan að skamm­líf rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð, sat að völdum.

Hann hefur und­an­farið gegnt for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár