Sjálfstæðisflokk vantar konur, kergja innan Samfylkingar og margir um hituna hjá VG

Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Kraginn svo­kall­aði, er fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins. Þar eru í boði þrettán þing­menn í kosn­ing­unum í haust. Listar sumra flokka eru að taka á sig mynd og átök eru sýni­leg víða.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti þingmaður Kragans.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er fyrsti þing­maður Kragans. Mynd: Golli

Innan við hálft ár er til næstu þing­kosn­inga, sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Stjórn­mála­flokk­arnir eru í óða önn við að ákveða hvaða ein­stak­lingar verði í fram­boði fyrir þá og hvaða meg­in­á­herslur verða settar á odd­inn til að hvetja sem flesta kjós­endur til að setja X við þá.

[box]Heilt yfir er staðan þannig, og hefur verið í nokkurn tíma sam­kvæmt könn­un­um, að flókið gæti orðið að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa allir tapað fylgi, stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ekki bætt nægi­lega miklu við sig til að gera afger­andi kröfu á stjórn­ar­myndun og nýir flokkar sem hafa ekki átt sæti á Alþingi áður eru að banka á dyrn­ar. Ekki er úti­lokað að flokk­arnir á þingi verði níu tals­ins eftir að atkvæði hausts­ins verða tal­in, og hafa þá aldrei verið fleiri.

Kjarn­inn fékk gögn frá MMR úr könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi stjórn­mála­flokka síð­ustu þrjá mán­uði. Á meðal þeirra upp­lýs­inga sem þar er að finna er fylgi þeirra eftir land­svæð­um. Tölur MMR miða þó ekki við kjör­dæmi í öllum til­vikum og því gefa þær fyrst og síð­ast vís­bend­ingu um hver staða stjórn­mála­flokk­anna er í hverju kjör­dæmi fyrir sig.

Næstu daga mun Kjarn­inn fjalla um stöðu mála á hverju land­svæði fyrir sig. Næst á dag­skrá er fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins, Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Sjálfstæðisflokkurinn

Niðurstaða 2017 - 17.216 - 30,9 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er feyki­lega sterkur í Kraganum. Þetta er kjör­dæmi flokks­for­manns­ins til 12 ára, Bjarna Bene­dikts­sonar, og í síð­ustu kosn­ingum og árið 2017 fékk flokk­ur­inn 30,9 pró­sent atkvæða þar sem skil­aði fjórum kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum. Yfir­burðir flokks­ins í kjör­dæm­inu voru slíkir að tveir fyrstu þing­menn þess koma báðir úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

[adspot]Flokk­ur­inn hefur tapað fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá síð­ustu kosn­ingum. Ekki er hægt að greina hvernig það skipt­ist á milli kjör­dæmanna þriggja sem það mynda út frá þeim tölum sem Kjarninn hefur fengið hjá MMR en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks mælist 22,6 pró­sent á svæð­inu þar sem um tveir af hverjum þremur lands­mönnum búa. Með­al­tals­fylgi flokks­ins þar 2017 var 25,4 pró­sent og því hafa tæp­lega þrjú pró­sentu­stig horfið miðað við stöðu mála í könn­unum nú.

Það er þröngt á þingi hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Kraganum. Í síð­ustu tveimur kosn­ingum var Bryndís Har­alds­dóttir í öðru sæti á lista flokks­ins þrátt fyrir að hafa lent í fimmts sæti í síð­asta próf­kjöri hans (hún sótt­ist eftir fjórða) sem haldið var 2016. Það var gert til að jafna hlut kvenna en próf­kjörið skil­aði fjórum körlum í fjögur efstu sætin. Við breyt­ing­una færð­ist Jón Gunn­ars­son, rit­ari flokks­ins, niður í þriðja sætið, Óli Björn Kárason í það fjórða og Vil­hjálmur Bjarna­son í það fimmta. Það dugði Vil­hjálmi til að kom­ast inn 2016 en ekki 2017.

Öll fimm ætla sér aftur á þing. Vil­hjálmur til­kynnti fram­boð sitt með blaða­grein í Morg­un­blað­inu í jan­úar og sagð­ist stefna eins ofar­lega og kostur væri „því það virð­ist regla frem­ur en und­an­tekn­ing að skáka mér til á list­an­um“.

Þá hafa verið sögu­sagnir um að Borgar Þór Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, ætli að reyna fyrir sér í próf­kjöri og að hann horfi mögu­lega til Suð­vest­ur­kjör­dæmis í þeim efnum. Þá er víða vilji innan flokks­ins að fjölga konum í for­ystu hans í þessu lyk­il­kjör­dæmi.

Ljóst er að ekki verður pláss fyrir alla sem vilja kom­ast að hjá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Vinstri græn

Niðurstaða 2017 - 7.591 - 13,6 prósent

Vinstri græn náðu þeim árangri 2017 að verða næst stærsti flokk­ur­inn í Kraganum og fá tvo kjör­dæma­kjörna þing­menn. Þá leiddi Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir lista flokks­ins og Ólafur Þór Gunn­ars­son sat í öðru sæti. Rósa Björk ákvað hins vegar að styðja ekki myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki og varð því strax að nokk­urs­konar oln­boga­barni innan þing­flokks Vinstri grænna eftir síð­ustu kosn­ingar. Það leiddi á end­anum til þess að hún yfir­gaf flokk­inn og hefur nú gengið til liðs við Sam­fylk­ing­una, þar sem hún verður í fram­boði í Reykja­vík.

Með­al­fylgi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var um 18 pró­sent árið 2017. Það mælist nú veru­lega minna sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu þriggja kann­anna MMR, eða um 11,8 pró­sent. Eng­inn flokkur hefur dalað jafn mikið á kjör­tíma­bil­inu í fylgi eins og Vinstri græn. Leiða má að því líkum að mjög erfitt verið fyrir Vinstri græn að ná tveimur kjör­dæma­kjörnum mönnum inn í Kraganum að óbreyttu.

Þrjú sækj­ast eftir að fylla odd­vita­skarð Rósu. Þar ber fyrst að nefna Guðmund Inga Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og vara­for­mann flokks­ins. Ólafur Þór vill líka taka skrefið upp á við á list­anum og þá sæk­ist Una Hild­ar­dóttir, núver­andi vara­þing­maður, líka eftir odd­vita­sæt­inu. Alls hafa níu ein­stak­lingar gefið kost á sér í for­vali um fimm efstu sæti flokks­ins. Þar vekur mesta athygli end­ur­koma Kol­brúnar Hall­dórs­dóttur, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, inn á hið póli­tíska svið, en hún sæk­ist eftir öðru sæti list­ans.

Samfylkingin

Niðurstaða 2017 - 6.771 - 12,1 prósent

Staða Sam­fylk­ing­ar­innar í Kraganum var á pari við heild­ar­fylgi flokks­ins á lands­vísu fyrir þremur og hálfu ári, sem skil­aði einum þing­manni, rit­höf­und­inum Guðmundi Andra Thors­syni. Fylgi flokks­ins mælist nú 15,6 pró­sent á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt síð­ustu þremur könn­unum MMR en hefur verið að dala. Það gæti þó leitt til þess að Sam­fylk­ingin næði inn tveimur þing­mönnum í Kraganum.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir til­kynnti í jan­úar að hún vildi leiða lista nýja flokks síns í Kraganum í næstu kosn­ingum. Þremur vikum síðar var hún hætt við og ákvað þess í stað að þiggja annað sætið á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði Rósa Björk að hún hafi hringt „ótal sím­töl í lyk­il­fólk í kjör­dæm­inu og félaga í flokknum, almenna kjós­endur en ekki síður við fólk sem var til­búið að ganga til liðs við Sam­fylk­ing­una. Það er skemmst frá því að segja að mér var afar vel tekið, sem gladdi mig mjög. En eftir því sem á leið rann upp fyrir mér að harð­asti kjarn­inn sem mynd­aði upp­still­ing­ar­nefnd­ina í Kraganum væri ekki lík­legur til að bjóða konu sem væri svo nýlega gengin í flokk­inn odd­vita­sætið. Þessi reynsla síð­ustu vik­urnar hefur kennt mér margt. Ýmislegt gerð­ist sem ég vil gleyma sem fyrst en annað fer inn á reynslu­bank­ann og nýt­ist vel í næstu skref í stjórn­mál­unum“

Stóra ástæðan fyrir þess­ari kúvend­ingu Rósu Bjarkar var þó ekki nefnd á nafn, en hún er Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir.

Þórunn sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una á árunum 1999 til 2011 og var umhverf­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem sat við völd frá 2007-2009. Eftir að hún lét af þing­mennsku var hún um skeið aðstoð­ar­maður Árna Páls Árna­son­ar, þáver­andi for­manns flokks­ins og gerð­ist síð­ar fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Síðustu ár hefur hún verið for­maður BHM.

[adspot]End­ur­koma Þórunnar var óvænt og ekki voru allir sáttir með hvernig henni var háttað. Upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar var þó á því að hún væri best til þess fallin að leiða lista flokks­ins, og Guð­mundur Andri reynd­ist til­bú­inn að færa sig niður í annað sætið án mik­illa láta.

Miðflokkurinn

Niðurstaða 2017 - 5.282 - 9,5 prósent

Mið­flokk­ur­inn náði fínum árangri í Kraganum í síð­ustu kosn­ingum, þeim fyrstu sem flokk­ur­inn tók þátt í, og fékk kjör­dæma­kjör­inn þing­mann. Þar var um að ræða Gunnar Braga Sveins­son, sem hefur verið í stjórn­málum lengi og var um tíma utan­rík­is­ráð­herra. Hann fylgdi Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni þegar sá síð­ar­nefndi stofn­aði Mið­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017 og tók auk þess þá óvæntu ákvörðun að færa sig úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem hann hafði verið þangað til, og yfir á möl­ina.

Nokkuð ljóst er að Gunnar Bragi, sem var vara­for­maður Mið­flokks­ins þangað til að það emb­ætti var lagt niður seint á síð­asta ári og er núna stað­geng­ill Sig­mundar Davíðs ef hann for­fall­ast, mun verða odd­viti Mið­flokks­ins í kjör­dæm­inu að óbreyttu.

Staða Mið­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er þó ekk­ert sér­stök. Með­al­fylgið á svæð­inu öllu var um átta pró­sent fyrir þremur og hálfu ári en er nú 6,9 pró­sent, sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu þriggja kann­ana MMR.

Þá er ljóst að margir innan flokks­ins hafa áhyggjur af því að Gunnar Bragi verði áfram í for­ystu flokks­ins vegna hlut­verks hans í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða. Einn þeirra sem hafa viðrað þær skoð­anir er Halldór Gunn­ars­son frá Holti, sem skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í lok nóv­em­ber í fyrra þar sem hann sagði að skoð­ana­kann­anir sýndu að konur kjósi síst flokk­inn. „Næstum án und­an­tekn­ingar heyri ég eig­in­konur manna hlið­hollra Mið­flokknum segja við mig: Ég kýs ekki Mið­flokk­inn ef Gunnar Bragi Sveins­son býður sig fram. Þegar ég spyr um ástæður er svarið það sama, sem ég þarf ekki að end­ur­segja, því allir virð­ast sam­mála um ástæð­una.“

Viðreisn

Niðurstaða 2017 - 5.277 - 9,5 prósent

Einungis fimm atkvæðum mun­aði á Viðreisn og Mið­flokknum í kosn­ing­unum 2017. Líklega er erfitt að finna ólík­ari flokka í fram­boði á Íslandi í dag. Þeir eru nán­ast ekki sam­mála um neitt. Viðreisn er samt sem áður með tvo þing­menn í kjör­dæm­inu, for­mann­inn Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Jón Steindór Valdi­mars­son sem náði inn sem upp­bót­ar­þing­maður.

Staða flokks­ins hefur batnað á kjör­tíma­bil­inu, en fylgið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist 12,1 pró­sent. Raun­hæfar vænt­ingar eru því til þess að Við­reisn geti náð inn tveimur kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum í haust.

Stillt verður upp á lista flokks­ins og að óbreyttu ætti sama tvíeyki að leiða list­ann og gerði það síð­ast.

Píratar

Niðurstaða 2017 - 4.641 - 8,3 prósent

Píratar náðu einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir þremur og hálfu ári síðan, Jóni Þór Ólafs­syni. Hann hefur hins vegar ákveðið að hætta þing­mennsku og verða ekki í fram­boði næst.

Þau vista­skipti leiddu til þess að lík­ast til sýni­leg­asti þing­maður flokks­ins, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, ákvað að að flytja sig úr odd­vita­sæti í Reykja­vík og yfir í Kragann. Í stöðu­upp­færslu sem hún birti í jan­úar vegna þessa sagði Þór­hildur Sunna að Píratar þurfi að kom­ast í rík­is­stjórn. „Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að bæta sam­fé­lagið mitt og und­ir­búa það fyrir fram­tíð­ina. Það til­kynn­ist því hér með að ég sæk­ist eftir end­ur­kjöri og býð mig fram í próf­kjöri Pírata. Í ljósi þess að ég er flutt á mínar gömlu æsku­slóðir í Mos­fells­bænum þykir mér rétt að færa mig um set og bjóða fram krafta mína til þess að leiða lista Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.“

Höf­uð­borg­ar­svæðið er lang­sterkasta vígi Pírata. Þeir mæl­ast nú með 14,1 pró­sent fylgi þar heilt yfir sam­kvæmt síð­ustu þremur könn­unum MMR. Það er nokkuð yfir með­al­fylgi þeirra á svæð­inu í síð­ustu kosn­ing­um, sem var 11,1 pró­sent. Það ætti því að vera raun­hæft mark­mið hjá flokknum að stefna á tvo þing­menn í Kraganum.

Í næsta sæti á eftir Þórhildi Sunnu í kjör­dæm­inu situr Gísli Rafn Ólafsson.

Framsóknarflokkurinn

Niðurstaða 2017 - 4.425 - 7,9 prósent

Willum Þór Þórsson mun leiða Framsókn áfram í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann til­kynnti um fram­boð í lið­inni viku og það þá ljóst fyrir að hann ætti odd­vita­sætið öruggt ef hann hefði áhuga á að fram­lengja þing­feril sinn, en Willum hefur setið á þingi frá árinu 2013, með smá hléi eftir að hafa dottið út í kosn­ing­unum 2016.

Sögu­sagnir eru um að reynt sé að fá Millu Ósk Magn­ús­dóttur, aðstoð­ar­mann Lilju Alfreðs­dóttur, til að taka slag­inn í Kraganum og setj­ast í annað sætið á lista flokks­ins þar á eftir Willum.

[adspot]Höf­uð­borg­ar­svæðið er erfitt fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Tölur MMR sýna að hann er miklu sterk­ari í öllum öðrum svæðum lands­ins en þar, en fylgi Fram­sóknar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu þrjá mán­uði mælist 6,9 pró­sent. Af þeim flokkum sem eiga full­trúa á þingi mælist ein­ungis Flokkur fólks­ins með minna fylgi þar.

Willum tjáði sig um þetta í hlað­varp­inu Arn­ar­hóli í nóv­em­ber síð­ast­liðnum þegar fylgi flokks­ins á svæð­inu var enn minna, eða 5,9 pró­sent.

Willum sagði þar að Fram­sókn­ar­flokknum hafi ekki tek­ist að tala nægi­lega skýrt fyrir borg­ara­legum mál­efn­um. Það sjá­ist til að mynda á því að flokk­ur­inn náði ekki inn manni í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, þegar hann fékk 3,2 pró­sent atkvæða. Hann er með sitt­hvorn full­trú­ann í sveit­ar­stjórnum Kópa­vogs og Hafn­ar­fjarðar og ein­ungis tvo af 35 þing­mönnum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Að sögn Will­ums þarf flokk­ur­inn að horfast í augu við þessa þróun og breyta henni. „Við þurfum að virkja ungt fólk. Ég held að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eigi að geta höfðað til ungs fólks og við erum með mjög flott ungt fólk núna í gras­rót­inni sem ég bind miklar vonir við að tak­ist að safna ungu fólki sem að tak­ist þetta.“

Flokkur fólksins

Niðurstaða 2017 - 3.616 - 6,5 prósent

Annar þing­maður Flokks fólks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, kemur úr Kraganum og náði inn árið 2017 sem upp­bót­ar­þing­maður. Hann mun leiða lista flokks­ins að nýju í haust.

[links]Með­al­fylgi Flokks fólks­ins var um 7,3 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í síð­ustu kosn­ingum en mælist 4,0 pró­sent að með­al­tali í síð­ustu þremur könn­unum MMR. Það er því brekka framundan hjá Flokki fólks­ins miðað við þá stöðu.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mun bjóða fram til Alþingis í fyrsta sinn í haust. Fylgi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu mælist 4,3 pró­sent að með­al­tali úr þremur síð­ustu könn­unum MMR. Hann hefur ekki kynnt lista sína í kjör­dæm­inu og lítið spurst út um hverjir verði þar á fleti.

Alls segj­ast 1,7 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa að þeir myndu kjósa annað en þá níu flokka sem hafa hér verið nefnd­ir. Tveir aðrir flokkar hafa til­kynnt um fram­boð. Þeir eru Lands­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár