Reynslumiklir oddvitar hverfa á braut og fylgi Miðflokks dvínar

Fram­boðs­listar stærstu flokk­anna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi munu sumir hverjir hafa nýja ásýnd í kosn­ing­unum í haust, en reynslu­miklir þing­menn fara ekki fram að nýju. Fylgi Mið­flokks­ins í kjör­dæmi for­manns­ins er mun minna nú en árið 2017.

Steingrímur J. Sigfússon á forsetastóli. Hann er einn þriggja oddvita í Norðausturkjördæmi sem fara ekki fram að nýju.
Stein­grímur J. Sig­fús­son á for­seta­stóli. Hann er einn þriggja odd­vita í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sem fara ekki fram að nýju. Mynd: Bára Huld Beck

Norð­aust­ur­kjör­dæmi teygir sig frá Trölla­skaga suð­austur að sveit­ar­fé­laga­mörkum Múla­þings og Horna­fjarðar. Í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra voru tæp 11,8 pró­sent kjós­enda á kjör­skrá í kjör­dæm­inu – tæp­lega 29.700 manns.

Innan við hálft ár er til næstu þing­­kosn­­inga, sem eiga að fara fram 25. sept­­em­ber næst­kom­andi. Stjórn­­­mála­­flokk­­arnir eru í óða­önn við að ákveða hvaða ein­stak­l­ingar verði í fram­­boði fyrir þá.

Þegar er ljóst að nokkur end­ur­nýjun mun verða á þing­liði kjör­dæm­is­ins, en odd­vitar þriggja af þeim fimm flokkum sem eiga í dag full­trúa í Norð­aust­ur­kjör­dæmi munu ekki fara fram að nýju.

[box]

Á lands­vísu er staðan þannig, og hefur verið í nokkurn tíma sam­­kvæmt könn­un­um, að flókið gæti orðið að mynda starf­hæfa rík­­is­­stjórn eftir kosn­ingar. Stjórn­­­ar­­flokk­­arnir hafa allir tapað fylgi, stærstu stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir ekki bætt næg­i­­lega miklu við sig til að gera afger­andi kröfu á stjórn­­­ar­­myndun og nýir flokkar sem hafa ekki átt sæti á Alþingi áður eru að banka á dyrn­­ar. Ekki er úti­­lokað að flokk­­arnir á þingi verði níu tals­ins eftir að atkvæði hausts­ins verða tal­in, og hafa þá aldrei verið fleiri.

Kjarn­inn fékk gögn frá MMR úr könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á fylgi stjórn­­­mála­­flokka síð­­­ustu þrjá mán­uði. Á meðal þeirra upp­­lýs­inga sem þar er að finna er fylgi flokka eftir land­­svæð­­um. Tölur MMR miða þó ekki við kjör­­dæmi í öllum til­­vikum og því gefa þær fyrst og síð­­­ast vís­bend­ingu um hver staða stjórn­­­mála­­flokk­anna er í hverju kjör­­dæmi fyrir sig.

Und­an­farna daga hefur Kjarninn fjallað um stöðu fram­boðs­mála og fylgi við flokk­ana í Reykja­vík, Kraganum og Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Nú er komið að Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem fimm flokkar eiga tvo full­trúa hver á þingi sem sakir standa.

Sjálfstæðisflokkur leitar arftaka Kristjáns Þórs

Niðurstaða 2017 - 4.787 atkvæði - 20,3 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fara með nýja for­ystu inn í kosn­inga­bar­átt­una. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu frá því árið 2007 gaf það út fyrir skemmstu að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram til þings að nýju.

Njáll Trausti Frið­berts­son þing­maður, sem skipað hefur annað sæti á Krist­jáni Þór í und­an­förnum kosn­ingum, sæk­ist eftir því að taka við odd­vita­sæt­inu. Gauti Jóhann­es­son, for­seti bæj­ar­stjórnar í Múla­þingi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Djúpa­vogi hefur einnig boðað að hann sæk­ist eftir efsta sæti á lista. Fjölmörg fleiri nöfn hafa verið nefnd til sög­unnar varð­andi efsta sætið hjá flokknum, en eng­inn hefur enn viljað kann­ast við að ætla sér að blanda sér í odd­vitaslag við þá Njál Trausta og Gauta.

Miðað við kann­anir MMR það sem af er ári má ætla að hver sem verður efstur á lista hjá Sjálf­stæð­is­flokki verði einnig fyrsti þing­maður kjör­dæm­is­ins, en flokk­ur­inn mælist með tæp­lega 24 pró­senta fylgi á Norð­ur­landi og rúm­lega 25 pró­senta fylgi á Aust­ur­landi það sem af er ári, nokkrum pró­sentu­stigum meira en í sam­bæri­legum könn­unum MMR fyrir kosn­ing­arnar árið 2017.

Óli leiðir Vinstri græn

Niðurstaða 2017 - 4.699 atkvæði - 19,9 prósent

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og einn stofn­enda VG ætlar að hætta á þingi eftir að hafa setið þar óslitið frá 1983. Um miðjan febr­úar varð ljóst að Óli Hall­dórs­son sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi myndi taka við odd­vita­sæt­inu af Stein­grími.

Sú nið­ur­staða for­vals var tölu­vert högg fyrir þing­flokks­for­mann­inn Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, sem verið hefur í öðru sæti á fram­boðs­lista VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í und­an­förnum kosn­ingum. Hún sagð­ist þurfa að hugsa sig um hvort hún tæki annað sætið á list­anum, en ákvað síðan að gera það. Þriðja sæti list­ans skipar Jódís Skúla­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Múla­þingi.

Norð­aust­ur­kjör­dæmi hefur allt frá stofnun Vinstri grænna verið eitt sterkasta vígi flokks­ins á lands­vísu og það verður áhuga­vert að sjá hvort það hafi eitt­hvað að gera með per­sónu­fylgi Stein­gríms.

Nýjustu mæl­ingar MMR á Norð­ur­landi, þar sem þorri kjós­enda kjör­dæm­is­ins býr, það sem af er ári mæla flokk­inn á svip­uðu róli og hann var fyrir kosn­ing­arnar 2017, eða með um 15 pró­sent fylgi. Þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017 var fylgið þó nærri 20 pró­sent í kjör­dæm­inu,

Miðflokkur Sigmundar virðist dala á Norðurlandi

Niðurstaða 2017 - 4.388 atkvæði - 18,6 prósent

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son stofn­andi Mið­flokks­ins er odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu og ekki hefur heyrst að það komi til með að breyt­ast. Hann var áður odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæm­inu og hefur tölu­vert per­sónu­fylgi, sem sést kannski best á því að flokk­ur­inn skák­aði Fram­sókn­ar­flokknum þar árið 2017.

Lítið hefur almennt heyrst af fram­boðs­málum Mið­flokks­ins en þó hefur verið sagt frá því að Anna Kolbrún Árna­dóttir þing­maður, sem skip­aði annað sæti list­ans í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2017, gæti fengið sam­keppni um það sæti frá Þorgrími Sig­munds­syni vara­þing­manni úr Skútu­staða­hreppi sem var í þriðja sæti list­ans árið 2017.

[adspot]

Fylgi flokks­ins á Norð­ur­landi er þó á allt öðrum stað en það var í aðdrag­and­anna kosn­inga árið 2017, sam­kvæmt mæl­ingum MMR, en á Aust­ur­landi mælist fylgið enn fremur mikið. Flokk­ur­inn er sam­kvæmt mæl­ingum MMR með um 8 pró­sent fylgi á Norð­ur­landi en hátt í 16 pró­senta fylgi á Aust­ur­landi. Í tveimur mæl­ingum MMR fyrir kosn­ing­arnar 2017 var fylgið um eða yfir 20 pró­sent í báðum lands­hlutum – í góðum takti við kjör­fylgið.

Endurnýjun hjá Framsókn?

Niðurstaða 2017 - 3.386 atkvæði - 14,3 prósent

Oddviti list­ans í síð­ustu kosn­ingum var Þórunn Egils­dóttir, en hún þurfti að segja skilið við þing­störfin vegna erf­iðra veik­inda. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður sótt­ist eftir odd­vita­sæt­inu í kjöl­farið, en það gerði einnig Ingi­björg Ólöf Ísaksen, bæj­ar­full­trúi flokks­ins á Akureyri.

Póst­kosn­ingu flokks­ins lauk 31. mars en ekki er búið að birta nið­ur­stöður hennar, enda var síð­asti dagur mars­mán­aðar síð­asti dag­ur­inn til þess að póst­leggja atkvæðin og atkvæðin liggja mögu­lega enn í ein­hverjum dreif­ing­ar­mið­stöðvum Íslands­pósts. Búist er við að nið­ur­staða verði kynnt upp úr miðjum mán­uði.

Jón Björn Hákon­ar­son, rit­ari flokks­ins og bæj­ar­stjóri í Fjarða­byggð, sótt­ist eftir 2. sæti á lista, rétt eins og Þórarinn Ingi Pét­urs­son bóndi og vara­þing­maður í Grýtu­bakka­hreppi, sem setið hefur tals­vert á þingi þetta kjör­tíma­bilið í fjar­veru Þórunnar, og Helgi Héð­ins­son, odd­viti Skútu­staða­hrepps.

Framsókn hefur löngum átt sterkt vígi á Aust­ur­landi og þaðan komu einmitt báðir þing­menn flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum, Þórunn frá Vopna­firði og Líneik frá Fáskrúðs­firði. Í nýj­ustu mæl­ingum MMR er flokk­ur­inn með hátt í 23 pró­sent fylgi í lands­hlut­anum.

Fylgið á Norð­ur­landi er þó tölu­vert lægra en í öðrum lands­hlutum á lands­byggð­inni – ein­ungis rúm 13 pró­sent. Það er svipuð staða og árið 2017 er nið­ur­staða flokks­ins, 14,3 pró­sent, varð sú versta sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fengið í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Hver verður með Loga á lista Samfylkingar?

Niðurstaða 2017 - 3.275 atkvæði - 13,9 prósent

Engar líkur eru á öðru en að Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Akur­eyr­ingur leiði lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi til kosn­inga í haust. Spurn­ingin hvað Sam­fylk­ingu varðar er hver verði með honum á list­anum. Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir þing­maður ætlar ekki að gefa kost á sér að nýju og óljóst er hver hreppir annað sætið á list­anum.

Sam­fylk­ingin mælist í nýj­ustu könn­unum MMR með umtals­vert meira fylgi á Norð­ur­landi en fyrir kosn­ing­arnar 2017, eða tæp 18 pró­sent. Í sam­bæri­legum könn­unum MMR fyrir tæpum fjórum árum var fylgið í lands­hlut­anum að mæl­ast í tæpum 10 pró­sentu­stigum. Á Aust­ur­landi hafa hart­nær 13 pró­sent þeirra sem taka afstöðu sagst ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una – fyrir kosn­ing­arnar 2017 voru það rúm 8 pró­sent.

Einar reynir aftur við þingsæti fyrir Pírata

Niðurstaða 2017 - 1.295 atkvæði - 5,5 prósent

Ein­ar Brynj­ólfs­son, fram­halds­skóla­kenn­ari og fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, mun leiða Pírata í Norðaust­ur­kjör­dæmi, en hann varð hlut­skarpastur í próf­kjöri sem fram fór í mars. Hrafndís Bára Ein­ars­dóttir verður í öðru sæti list­ans.

Einar var kjör­inn á þingi fyrir Pírata árið 2016 en náði ekki kjöri á ný árið 2017 þegar kosið var á ný. Með­al­tals­fylgi Pírata á Norð­ur­landi úr síð­ustu könn­unum MMR er tæp 9 pró­sent, en tæp 6 pró­sent á Aust­ur­landi.

Flokkur fólksins

Niðurstaða 2017 - 1.005 atkvæði 4,3 prósent

Lítið hefur heyrst af fram­boðs­málum Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Kjarninn fékk þær upp­lýs­ingar frá flokknum fyrir helgi að ekki væri enn komið að því að kynna odd­vita flokks­ins.

Það er þó alveg ljóst að Halldór Gunn­ars­son fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Holti, sem leiddi flokk­inn árið 2017, gerir það ekki á ný. Hann sagði sig úr flokknum eftir Klaust­ur­málið og hvatti fólk til þess að snúa baki við Flokki fólks­ins, eins og tveir þing­menn flokks­ins höfðu þegar gert – og ganga í Mið­flokk­inn.

Á vef flokks­ins hefur verið kunn­gjört að þau Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna og Tommi á Ham­borg­ara­búll­unni (Tómas Andrés Tómasson) muni fara í fram­boð fyrir flokk­inn.

Fylgi flokks­ins á bæði Norð­ur­landi og Aust­ur­landi er sam­kvæmt síð­ustu könn­unum MMR í takti við kjör­fylgið 2017, eða á milli 4-6 pró­sent.

Enginn kjósandi Viðreisnar fannst fyrir austan

Niðurstaða 2017 - 495 atkvæði - 2,1 prósent

Viðreisn er þessa dag­ana að „afhjúpa“ odd­vita sína í kjör­dæmum vítt og breitt um landið. Enn sem komið er hafa þó engin tíð­indi borist úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi og lítið heyrst af vænt­an­legri upp­still­ingu flokks­ins þar.

Eins og rakið var í umfjöllun Kjarnans um kjör­dæmin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru þó fleiri um odd­vita­sætin þar en mögu­legt er að stilla upp í raun­hæf þing­sæti fyrir flokk­inn á suð­vest­ur­horn­inu. Það er því aldrei að vita nema Viðreisn færi kjós­endum í Norð­austri send­ingu að sunnan.

En odd­vita­sæti Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er ólík­lega ávísun á þing­sæti. Flokk­ur­inn var með 2,1 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og í nýj­ustu mæl­ingum MMR fer hann ekki yfir 4 pró­senta með­al­fylgi á Norð­ur­landi. Á Aust­ur­landi, þar sem svar­endur eru tæp­lega 100 tals­ins, fannst ekki einn ein­asti kjós­andi Við­reisnar í síð­ustu könn­unum MMR.

Benedikt Jóhann­es­son, þá for­maður Við­reisnar, náði kjöri fyrir flokk­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2016 og varð fjár­mála­ráð­herra í kjöl­farið. Hann leiddi flokk­inn áfram í kjör­dæm­inu árið 2017 en náði ekki 500 atkvæðum í hús.

Sósíalistaflokkurinn

Sós­í­alistar hafa ekk­ert opin­berað um fram­boðs­mál sín fyrir kom­andi kosn­ingar. Á Norð­ur­landi og Aust­ur­landi mælist flokk­ur­inn með á bil­inu 4-5 pró­senta fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár