Gæti ráðherra og varaformaður þurft að sætta sig við annað sæti á framboðslista?

Hvernig verða fram­boðs­list­arnir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í haust? Sumir þeirra eru orðnir nokkuð klárir, en aðrir ekki. Einhver inn­an­flokksá­tök gætu verið framundan og titr­ings hefur þegar orðið vart. Kjarninn leit yfir stöðu mála.

Sókn Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur í oddvitasæti Haraldar Benediktssonar í Norðvesturkjördæmi hefur þegar valdið titringi í röðum flokksmanna.
Sókn Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur í odd­vita­sæti Haraldar Bene­dikts­sonar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur þegar valdið titr­ingi í röðum flokks­manna. Mynd: Bára Huld Beck

Norð­vest­ur­kjör­dæmi er fámenn­asta kjör­dæmi lands­ins. Í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra voru 8,53 pró­sent kjós­enda á kjör­skrá með atkvæð­is­rétt í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, eða rúm­lega 21.500 manns.

Útlit er fyrir að tölu­verð upp­stokkun verði í þing­liði kjör­dæm­is­ins í haust. Oddvitar bæði Fram­sóknar og Sam­fylk­ingar fara ekki fram að nýju í kjör­dæm­inu og annar þing­maður Fram­sóknar varð í þriðja sæti í próf­kjöri flokks­ins og á því litla mögu­leika á að halda þing­sæti sínu. Spenn­andi inn­an­flokks­bar­átta virð­ist sömu­leiðis framundan hjá bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Vinstri grænum um odd­vita­sæti á lista.

D og B væru með meirihluta á Vesturlandi og Vestfjörðum

Kjarninn fékk sund­ur­liðuð gögn um fylgi flokka úr þremur könn­unum MMR, sem fram­kvæmdar voru á tíma­bil­inu 30. des­em­ber 2020 til 10. mars 2021. Gögnin eru hins vegar ekki brotin niður eftir kjör­dæmum, heldur lands­hlutum, sem gerir nákvæman útreikn­ing á fylgi flokka í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem teygir sig yfir bæði Vest­ur­land og Vest­firði auk Norð­ur­lands vestra, ill­mögu­legan.

Það eru þó ákveðnar sögur sem hægt er að segja með þeim gögnum sem eru fyrir hendi, en gott er að hafa í huga að rúmur helm­ingur kjós­enda í kjör­dæm­inu býr á Vest­ur­landi, eða um 11 þús­und manns. Síðan eru um og yfir 5 þús­und kjós­endur bæði á Vest­fjörðum og Norð­ur­landi vestra.

[box]

Staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist sterk á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum um þessar mundir. Fylgið þar, sam­kvæmt útkomu þriggja kann­ana MMR, slagar í 33 pró­sent. Það er því að mæl­ast nærri tíu pró­sentu­stigum hærra en það gerði í tveimur sam­bæri­legum könn­unum MMR í sama lands­hluta fyrir kosn­ing­arnar haustið 2017 og sömu­leiðis um tíu pró­sentu­stigum hærra en fylgi flokks­ins á lands­vísu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 24,5 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu árið 2017.

Sama má segja um Framsókn, en flokk­ur­inn mælist með næstum 24 pró­sent fylgi á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum sam­kvæmt könn­unum MMR. Fyrir kosn­ing­arnar 2017 var flokk­ur­inn að mæl­ast með tæp­lega 15 pró­sent í lands­hlut­anum og virð­ist staða hans þar því sterk­ari en þá. Samtals eru Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn því að mæl­ast með yfir 50 pró­sent fylgi í lands­hlut­anum.

Á móti kemur að Mið­flokk­ur­inn er að mæl­ast lágt, bæði á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum og sömu­leiðis á Norð­ur­landi, sam­an­borið við mæl­ingar MMR fyrir kosn­ing­arnar árið 2017. Fylgi Mið­flokks­ins í báðum lands­hlutum mælist á milli 8 og 9 pró­sent sam­kvæmt könn­unum MMR und­an­farna mán­uði, en fór yfir 20 pró­sent í sam­bæri­legum könn­unum fyrir kosn­ing­arnar árið 2017. Flokk­ur­inn fékk 14,2 pró­sent greiddra atkvæða í NV-kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum.

[links]

Vinstri græn virð­ast eiga erfitt upp­dráttar á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem þorri kjós­enda í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur búsetu. Fylgi flokks­ins mælist þar 5,6 pró­sent í þessum þremur könn­unum MMR og dregst saman um tæp sjö pró­sentu­stig frá tveimur mæl­ingum MMR haustið 2017. Lítil hreyf­ing er hins vegar á fylgi flokks­ins á Norð­ur­landi. Flokk­ur­inn fékk 17,8 pró­sent atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum.

Sam­fylk­ingin mælist einnig tölu­vert lægri á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum en í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, eða með rúm­lega 8 pró­sent fylgi sam­an­borið við rúm tæp­lega 16 pró­senta fylgi haustið 2017. Kjör­fylgi flokks­ins í kjör­dæm­inu var hins vegar langt undir því fylgi sem mæld­ist á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum í könn­unum MMR fyrir síð­ustu kosn­ingar – eða 9,7 pró­sent.

Píratar mæl­ast með mest fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokka á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, sam­kvæmt könn­unum MMR. Það fylgi er þó ein­ungis rúm 9 pró­sent, nokkuð undir fylgi flokks­ins á lands­vísu.

Gustar um Sjálfstæðisflokkinn

Niðurstaða 2017: 4.233 atkvæði - 24,5 prósent

Haraldur Bene­dikts­son leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu til síð­ustu kosn­inga, en í 2. sæti list­ans var Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir. Ýmislegt er síðan breytt síðan árið 2017. Þórdís Kolbrún hefur verið ráð­herra síðan þá og var sömu­leiðis kjörin vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2018.

Hún gaf það strax síð­asta haust að hún ætl­aði ekki að færa sig yfir í annað kjör­dæmi og hefur að und­an­förnu komið því á fram­færi að hún sæk­ist eftir efsta sæti list­ans. Það ætlar Haraldur þó ekki að láta af hendi þegj­andi og hljóða­laust, en hann gaf það út í febr­úar að hann myndi sækj­ast eftir trausti flokks­manna í kjör­dæm­inu til þess að leiða list­ann áfram.

Það virð­ist því stefna í spenn­andi próf­kjörs­bar­áttu þeirra á milli um efsta sæti list­ans, sem hefur þegar valdið nokkrum titr­ingi.

Halldór Jónsson, sem var for­maður kjör­dæm­is­ráðs flokks­ins, sagði sig frá þeirri stöðu snemma í mars­mán­uði eftir að Þórdís Kolbrún lýsti yfir vilja sínum til að sækj­ast eftir for­ystu­sæt­inu á fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akranesi. Fjallað var um málið í Skessu­horni.

Þar kom fram að Halldór hefði skrifað for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins bréf og lýst afstöðu sinni. Þar sagði meðal ann­ars að Þórdís Kolbrún hefði að hans mati ekki sett fram ríkar mál­efna­legar ástæður fyrir því að skora odd­vita flokks­ins í kjör­dæm­inu á hólm á fund­inum á Akranesi.

„Þvert á móti lýsti hún afar vel styrk og góðum störfum Haraldar sem fyrsta þing­manns kjör­dæm­is­ins. Það er rétt metið hjá vara­for­mann­inum því þrátt fyrir afar erf­iðar aðstæður sjá íbúar kjör­dæm­is­ins mörg erfið mál þok­ast áfram eftir kyrr­stöðu. Það er ekki síst elju og vinnu­semi Haraldar að þakka,“ skrif­aði Halldór til flokks­for­yst­unnar, sam­kvæmt frétt Skessu­horns.

[adspot]

Afstaða Halldórs er sam­kvæmt frétt­inni að betra væri að stilla upp óbreyttri for­ystu í kjör­dæm­inu fremur en að leggja af stað í bar­áttu sem geri lítið annað en að veikja stöðu þeirra beggja.

Teitur Björn Ein­ars­son, sem skip­aði þriðja sæti á lista flokks­ins bæði 2016 og 2017, hefur einnig gefið út að hann sæk­ist eftir þing­sæti. Prófkjör flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi mun þó ekki fara fram fyrr en um miðjan júní.

Algjör nýliðun blasir við hjá Framsókn

Niðurstaða 2017: 3.177 atkvæði - 18,4 prósent

Ljóst varð snemma á árinu að svipt­ingar yrðu hjá Fram­sókn­ar­flokknum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra til­kynnti að hann ætl­aði sér að taka slag­inn í Reykja­vík suður, ákvörðun sem hann sjálfur og margir aðrir hafa kallað djarfa í ljósi tak­mark­aðs fylgis Fram­sóknar í höf­uð­staðnum.

Fram­sókn­ar­fólk hefur valið efstu sæti á lista sinn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Stefán Vagn Stef­áns­son, yfir­lög­reglu­þjónn og sveit­ar­stjórn­ar­maður í Skaga­firði, verður odd­viti og Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir, 24 ára for­maður Sam­bands Ungra Fram­sókn­ar­manna og núver­andi vara­þing­mað­ur, náði öðru sæt­inu á list­an­um, en valið fór fram með póst­kosn­ingu.

Lilja Rannveig skák­aði ​Höllu Signýju Krist­jáns­dótt­ur, sitj­andi þing­manni flokks­ins, sem hafn­aði í þriðja sæti í vali sam­flokks­manna.

Halla Signý hafði gefið það út að hún sækt­ist eftir því að leiða list­ann í kjör­dæm­inu eftir að Ásmundur Einar hélt suður á bóg­inn en nú lítur allt út fyrir að hún nái ekki þing­sæti í haust nema Framsókn fái afburða­góða kosn­ingu.

Slagur framundan hjá Vinstri grænum

Niðurstaða 2017: 3.067 atkvæði - 17,8 prósent

Útlit er fyrir spenn­andi odd­vitaslag hjá Vinstri grænum. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir er eini þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu og sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins áfram í haust, en undir lok mars­mán­aðar gaf Bjarni Jónsson sveit­ar­stjórn­ar­maður í Skaga­firði og vara­þing­maður það út að hann gæfi kost á sér í fyrsta sæti list­ans.

Mjótt var á munum á milli þeirra tveggja í for­vali fyrir kosn­ing­arnar árið 2016, en Lilja Rafney hafði þá betur. Hún hefur setið á þingi óslitið frá árinu 2009.

Forval Vinstri grænna í kjör­dæm­inu fer fram raf­rænt dag­ana 23., 24. og 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á list­anum, þar af bind­andi í efstu þrjú.

Sama tvíeykið hjá Miðflokknum?

Niðurstaða 2017 - 2.456 atkvæði - 14,2 prósent

Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson skip­uðu efstu tvö sætin á lista Mið­flokks­ins í kjör­dæm­inu árið 2017. Lítið annað hefur heyrst en að svo verði áfram.

Bæjarmálamaður á Akranesi leiðir Samfylkingu

Niðurstaða 2017 - 1.681 atkvæði - 9,7 prósent

Guðjón S. Brjáns­son, eini þing­maður Sam­fylk­ingar í kjör­dæm­inu, gaf út í mars­mán­uði að hann myndi ekki gefa kost á sér til þing­setu að nýju og því var ljóst að nýr odd­viti yrði val­inn á kjör­dæm­is­þingi sem fór fram þann 27. mars.

Þar varð hlut­skarpastur Val­garður Lyngdal Jónsson, grunn­skóla­kenn­ari og núver­andi for­seti bæj­ar­stjórnar á Akranesi, en Sam­fylk­ingin myndar þar bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta ásamt fram­boði Fram­sóknar og frjálsra.

Jónína Björg Magn­ús­dóttir fisk­verka­kona á Akranesi skipar annað sæti list­ans, en hún var eina konan sem gaf kost á sér í for­vali flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hún var í þriðja sæti á lista fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Lögmaður leiðir Pírata

Niðurstaða 2017 - 1.169 atkvæði - 6,8 prósent

Píratar tefla fram nýju and­liti í odd­vita­sæt­inu Norð­vest­ur­kjör­dæmi í haust, en Magnús Davíð Norðdahl lög­maður, sem hefur verið áber­andi í fjöl­miðlum fyrir störf sín í þágu hæl­is­leit­anda, varð efstur í próf­kjöri flokks­ins, þar sem um 400 manns greiddu atkvæði.

Eva Pandora Bald­urs­dóttir leiddi flokk­inn til kosn­inga í kjör­dæm­inu bæði 2016 og 2017 og var kjörin inn á þing árið 2016.

Á kosn­inga­nótt í lok októ­ber 2017 leit út fyrir að Píratar myndu áfram eiga þing­mann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi en svo reynd­ist ekki þegar spurt var að leikslokum og upp­bót­ar­þing­sætið féll í skaut Mið­flokks­ins.

Verður Magnús Þór maður fólksins?

Niðurstaða 2017 - 911 atkvæði - 5,3 prósent

Lítið hefur spurst af fram­boðs­málum Flokks fólks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar, hvað þá í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sér­stak­lega. Magnús Þór Haf­steins­son, fyrr­ver­andi þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins sál­uga, leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu árið 2017.

Hann er í dag starfs­maður þing­flokks­ins á Alþingi. Flokkur fólks­ins hefur haft þann hátt­inn á í liðnum ár að kynna alla odd­vita flokks­ins í einu en þær upp­lýs­ingar var að fá frá flokknum þegar Kjarninn hafði sam­band að sá tími væri ekki enn runn­inn upp.

Nær vinsæll fyrrverandi bæjarstjóri að tryggja Viðreisn þingsæti?

Niðurstaða 2017: 423 atkvæði - 2,5 prósent

Viðreisn hefur ekki átt upp á pall­borðið hjá kjós­endum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi frá því flokk­ur­inn var stofn­aður. Flokk­ur­inn fékk reyndar rúm 6 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu árið 2016 en hrap­aði niður í 2,5 pró­sent eftir að hafa sest við rík­is­stjórn­ar­borðið í skamm­lífri stjórn undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar.

Í bæði skiptin leiddi Gylfi Ólafsson, sem í dag er for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða, lista Við­reisnar til kosn­inga, en nú er kom­inn nýr maður í odd­vita­sætið.

Það er Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði. Eins og frægt varð lét hann af störfum í kjöl­far ill­deilna við kjörna full­trúa úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kjöl­far snjó­flóð­anna sem féllu á Flateyri og í Súg­anda­firði í upp­hafi árs 2020. Hann hefur þó verið sagður vel lið­inn á norð­an­verðum Vest­fjörðum.

Viðreisn mælist með um 4 pró­sent fylgi bæði á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum og Norð­ur­landi í könn­unum MMR, en flokk­ur­inn sækir mest fylgi sitt til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Sósíalistaflokkurinn óskrifað blað

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ekk­ert gefið út um vænt­an­lega fram­bjóð­endur sína til Alþingis. Flokk­ur­inn mælist þó með 5,2 pró­sent fylgi á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum sam­kvæmt þremur könn­unum sem MMR hefur fram­kvæmt það sem af er ári, sem er umfram fylgi flokks­ins á lands­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár