Samfylkingin og Píratar stærri hjá kjósendum undir þrítugu en Sjálfstæðisflokkurinn

Stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokkur, höfðar síst til kjós­enda á aldr­inum 18-29 ára. Mið­flokk­ur­inn nær sömu­leiðis illa til þess hóps.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar og Halldóra Mogensen er annar oddvita Pírata í Reykjavík í komandi kosningum.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Halldóra Mogensen er annar odd­vita Pírata í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Samsett

Bæði Sam­fylk­ing og Píratar mæld­ust með meira fylgi hjá ald­urs­hópnum 18-29 ára en Sjálf­stæð­is­flokkur sam­kvæmt síð­ustu þremur könn­unum MMR, sem gerðar voru frá 30. des­em­ber 2020 til 10. mars 2021. Sam­fylk­ingin mælist með 19 pró­sent fylgi hjá ald­urs­hópnum en Píratar með 17,7 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flok­ur­inn er þriðji stærsti flokk­ur­inn hjá kjós­endum undir þrí­tugu með 17,7 pró­sent. Vert er að taka fram að mun­ur­inn á milli flokk­anna þriggja er allur innan skekkju­marka.

Fylgi Sam­fylk­ingar og Pírata hjá yngstu kjós­end­unum er tölu­vert yfir heild­ar­fylgi þeirra sam­kvæmt tölum MMR, en alls segj­ast 14,5 pró­sent styðja Sam­fylk­ingu og 11,9 pró­sent Pírata. Heild­ar­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks mælist hins vegar 23 pró­sent og því er staða hans hjá yngstu kjós­end­unum tölu­vert frá því.

[adspot]Fólk undir þrí­tugu er enda veikasti ald­urs­hópur stærsta flokks lands­ins en sterkasti kjós­enda­hópur bæði Sam­fylk­ingar og Pírata. Eini flokk­ur­inn fyrir utan þá tvo sem er sterkastur hjá yngsta ald­urs­hópnum er Sós­í­alista­flokkur Íslands. Hann mælist með 5,6 pró­sent fylgi hjá kjós­endum undir þrí­tugu en með 4,2 pró­sent stuðn­ing heilt yfir.

Hinir stjórnarflokkarnir á svipuðu róli

Hjá hinum stjórn­ar­flokk­unum, Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki, er fylgið hjá kjós­endum á aldr­inum 18-29 ára svipað og það er heilt yfir. Alls segj­ast 10,4 pró­sent yngsta kjós­enda hóps­ins styðja Fram­sókn­ar­flokk­inn og 10,9 pró­sent Vinstri græn.

Mið­flokk­ur­inn er í veru­legum vanda þegar kemur að því að höfða til yngstu kjós­end­anna, en ein­ungis 4,6 pró­sent svar­enda undir þrí­tugu sögðu að þeir myndu styðja þann flokk.

Viðreisn myndi fá 7,5 pró­sent atkvæða hjá ald­ur­hópnum ef kosið yrði í dag, miðað við nið­ur­stöðu MMR, og Flokkur fólks­ins 4,2 pró­sent.

Önnur staða hjá þeim sem eru eldri en 60 ára

Staðan breyt­ist umtals­vert þegar horft er til fólks yfir sex­tugt. Þar er fylgi flokka í mun meiri takti við það sem mælist heilt yfir.

[links]Þar er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins með 24,8 pró­sent fylgi og Sam­fylk­ingin næst stærst með 15,9 pró­sent.

Aðrir flokkar sem njóta meiri vin­sælda hjá elstu lands­mönnum en heilt yfir eru Vinstri græn (12,7 pró­sent), Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn (11, 9 pró­sent), Mið­flokk­ur­inn (10,7 pró­sent), og Flokkur fólks­ins (6,9 pró­sent).

Píratar eru með áber­andi minna fylgi hjá elsta hópnum, en ein­ungis 6,2 pró­sent kjós­enda 60 ára og eldri segj­ast ætla að kjósa flokk­inn. Viðreisn nýtur stuðn­ings 7,2 pró­sent svar­enda í hópnum og Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 3,3 pró­sent fylgi hjá honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár