Ríkisstjórnin gæti haldið með minnihluta fylgis á bakvið sig

Ný könnun sýnir að þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar myndu saman fá níu fleiri þing­menn nú en haustið 2017. Aðrir flokkar tapa fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur ver þing­manna­fjölda sinn vegna dauðra atkvæða. Allskyns stjórn­ar­mynstur eru í kort­unum.

Ríkisstjórnin gæti haldið velli þrátt fyrir að flokkarnir sem að henni standa séu allir að mælast með minna fylgi en þeir fengu í kosningunum 2017.
Rík­is­stjórnin gæti haldið velli þrátt fyrir að flokk­arnir sem að henni standa séu allir að mæl­ast með minna fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin, Pírata og Viðreisn myndu sam­tals fá 26 þing­menn kjörna ef kosið yrði nú sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það eru níu fleiri þing­menn en þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar fengu haustið 2017. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja er um 40 pró­sent en þeir fengu 28 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Sam­fylk­ingin yrði þeirra stærstur með 17 pró­sent fylgi og ell­efu þing­menn, Viðreisn myndi fá um tólf pró­sent atkvæða og átta þing­menn og Píratar um ell­efu pró­sent og sjö þing­menn. Þeir eru einu flokk­arnir sem voru í fram­boði fyrir rúmum þremur árum sem myndu bæta við sig fylgi og þing­mönnum ef kosið yrði í dag.

Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV um nýja Þjóð­ar­púls­inn.

Þrátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, hafi tapað um tveimur pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og mælist með 23 pró­sent fylgi þá myndi hann samt fá sama þing­manna­fjölda (16) ef gengið yrði til kosn­inga í dag, sam­kvæmt Gallup. Vinstri græn, sem myndu tapa um fjórum pró­sentu­stigum og fá í kringum 13 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú, myndu ein­ungis tapa tveimur þing­mönnum og fá níu. Framsókn, sem myndi tapa um tveimur pró­sentu­stigum og fá um níu pró­sent sam­kvæmt umfjöllun RÚV, myndu tapa einum þing­manni og fá sjö. Það þýðir að rík­is­stjórnin gæti að óbreyttu haldið velli með minnsta mögu­lega meiri­hluta – 32 þing­mönnum af 63 – þrátt fyrir að fylgi hennar hafi fallið úr 53 í 45 pró­sent.

Mikið af atkvæðum gætu fallið niður dauð

Ástæðu þessa má finna í því að tölu­vert magn atkvæða myndu falla niður dauð ef könnun Gallup yrði nið­ur­staða kosn­inga. Bæði Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokkur Íslands mæl­ast með um fjögur pró­sent fylgi hvor sem myndi ekki skila þeim inn manni á þing að óbreyttu. Slík staða myndi ýkja þing­manna­fjölda þeirra flokka sem kæmust inn umtals­vert og skapa ofan­greinda stöðu, þar sem hægt yrði að fá meiri­hluta þing­manna með ein­ungis 45 pró­sent fylgi.

[adspot]Mið­flokk­ur­inn myndi ná inn á þing en ekki ná jafn góðum árangri 2017, sam­kvæmt könnun Gallup. Hann yrði minnsti flokk­ur­inn þar með um átta pró­sent fylgi sem myndi skila fimm þing­mönnum. Mið­flokk­ur­inn fékk sjö menn kjörna í síð­ustu kosn­ingum auk þess sem að flokk­ur­inn bætti við sig tveimur þing­mönnum úr Flokki fólks­ins eftir Klaust­ur­málið. Þing­flokkur Mið­flokks­ins myndi því að óbreyttu skreppa saman um 45 pró­sent.

Ýmiskonar stjórnarmynstur í kortunum

Ýmsir stjórn­ar­mögu­leikar eru í stöð­unni sam­kvæmt könnun Gallup. Miðað við núver­andi fylg­is­stöðu væri, líkt og áður sagði, hægt að halda núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starfi áfram. Í ljósi þess að tveir af upp­runa­legu 35 þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna hafa þegar yfir­gefið þá, og meiri­hlut­inn telur nú ein­ungis 33 þing­menn, yrði ekki stór­kost­leg breyt­ing að fækka þing­mönn­unum á bak­við stjórn­ina niður í 32. Sú stjórn gæti styrkt sig með aðkomu Mið­flokks (fimm þing­menn) eða Við­reisnar (átta þing­menn). Bæði Sam­fylk­ingin og Píratar hafa úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk sem gerir það að verkum að úti­loka verður allar mögu­legar teg­undir sam­starfs sem skeyta þeim saman.

Hægt yrði að mynda félags­hyggju­stjórn frá miðju til vinstri sem inni­héldi Sam­fylk­ing­una, Vinstri græn, Pírata og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Slík stjórn myndi vera með 34 þing­menn.

Það væri líka hægt að ráð­ast í end­ur­öpun á því mynstri sem er til staðar í stjórn Reykja­vík­ur­borgar, þar sem Fram­sókn­ar­flokknum yrði skipt út fyrir Viðreisn. Þá myndi stjórn­ar­þing­mönn­unum fjölga um einn og þeir verða 35.

Ef mynda ætti stjórn frá hægri og inn á miðj­una yrði hún að inni­halda fjóra flokka: Sjálf­stæð­is­flokk, Viðreisn, Fram­sókn­ar­flokk og Miðflokk. Slík stjórn myndi hafa 36 þing­menn.

Framsókn og Miðflokkur í vandræðum í Reykjavík

Gallup mældi líka fylgi eftir kjör­dæmum í nýj­ustu könnun sinni. Þar virð­ist athygl­is­verð­asta nið­ur­staðan vera sú að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn næði ekki inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, en þar verða ráð­herr­arnir Lilja Alfreðs­dóttir og Ásmundur Einar Daðason í odd­vita­sætum. Afar ólík­legt er að Mið­flokk­ur­inn næði inn kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum í höf­uð­borg­inni, en það er í sam­ræmi við aðrar kann­anir sem birst hafa und­an­farið.

Sam­fylk­ingin mælist sterk­ust í Reykja­vík og myndi ná að verða stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður ef kosið yrði nú. Athygl­is­vert er að tveir stærstu flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing, eru að mæl­ast jafn stórir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en þar sjá Vinstri græn fram á fylgis­tap að óbreyttu eftir brott­hvarf Stein­gríms J. Sig­fús­sonar úr odd­vita­sæt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár