Alls 16 prósent ungra kjósenda fylgdist ekkert með pólitískum fréttum í kosningabaráttunni

Það fær­ist í auk­ana að fólk fái fréttir af íslenskum stjórn­málum í gegnum netið og sér­stak­lega sam­fé­lags­miðla. Fleiri 18 til 25 ára kjós­endur not­uðu sam­fé­lags­miðla til að nálg­ast upp­lýs­ingar um síð­ustu kosn­ingar en sjón­varps­fréttir.

Átta pró­sent þjóð­ar­innar fylgd­ist ekk­ert með fréttum sem tengd­ust kosn­inga­bar­átt­unni í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Áhuga­leysið var mest hjá yngra fólki, en 16 pró­sent 18 til 25 ára sögð­ust ekk­ert hafa fylgst með umfjöllun um íslensk stjórn­mál á meðan að á kosn­inga­bar­átt­unni stóð.

Þetta kemur fram í grein­inni „Kjós­endur eftir kreppu: Breyt­ing­ar, flökt og stöð­ug­leiki í Alþing­is­kosn­ing­unum 2021“ eftir Agnar Frey Helga­son, dós­ent við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, Ólaf Þ. Harð­ar­son­ar, pró­fessor emeritus við sömu deild, Jón Gunnar Ólafs­son, nýdoktor við deild­ina, Evu H. Önnu­dótt­ur, pró­fessor við stjórn­mála­fræði­deild og Huldu Þór­is­dótt­ur, sem er dós­ent við sömu deild. Greinin birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál & stjórn­sýsla fyrir skemmstu. Þar greina höf­undar síð­ustu þing­kosn­ingar út frá nokkrum lyk­il­vísum fengnum úr kjós­enda­könnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS).

Þetta var í fyrsta sinn sem spurn­ingar um fjöl­miðla­notkun voru hluti af rann­sókn­inni og því liggja ekki fyrir sam­an­burð­ar­tölur.

Fleiri ungir nota samfélagsmiðla en sjónvarp

Könnunin, sem lögð var fyrir eftir að kosn­ing­arnar voru afstaðnar, sýndi einnig að 48 pró­sent svar­enda eyddu hálf­tíma eða minna á dag í að fylgj­ast með fréttum af íslenskum stjórn­málum í aðdrag­anda kosn­ing­anna sem fram fóru í sept­em­ber í fyrra.

[adspot]Stór hluti neyslu fólks átti sér stað annað hvort í gegnum staf­ræna miðla. Um helm­ingur svar­enda, 49 pró­sent, sagð­ist aðal­lega fá fréttir um kosn­ing­arnar í gegnum net­miðla en þriðj­ungur að þær kæmu úr sjón­varps­fréttum eða öðru dag­skrár­efni sjón­varps­stöðva sem tengd­ust kosn­ing­unum. Alls átta pró­sent sögð­ust frá upp­lýs­ingar sínar fyrst og fremst af sam­fé­lags­miðlum.

[links]Mikill munur er á notkun milli kyn­slóða. Þannig noti yngri ald­urs­hópar sam­fé­lags­miðla mun meira til að nálg­ast upp­lýs­ingar um kosn­ing­arnar en þeir eldri. Í yngsta kjós­enda­hópnum, 18 til 25 ára, var notkun á sam­fé­lags­miðlum til slíkra verka (20 pró­sent) til að mynda meiri en notkun á sjón­varpi til að nálg­ast upp­lýs­ingar (15 pró­sent).

Í grein­inni segir að þessi staða end­ur­spegli þróun á fjöl­miðla­notkun alþjóð­lega og að rann­saka þurfi þessa þróun á næstu árum hér­lendis þar sem rann­sóknir sýni að aukin net­notkun, sér­stak­lega þegar um er að ræða sam­fé­lags­miðla, við að nálg­ast póli­tískt efni geti leitt af sér lýð­ræð­is­legar áskor­anir. Efni sem er sett fram á sam­fé­lags­miðlum sé mun oftar birt án síu og án þess að búið sé að ganga úr skugga um að það sem haldið sé fram sé satt. Mun auð­veld­ara sé að dreifa röngum eða vill­andi upp­lýs­ingum staf­rænt en í gegnum hefð­bundna frétta­miðla, þar sem blaða­menn séu í hlut­verki hlið­varða og búist sé við því að þeir gangi úr skugga um að upp­lýs­ing­arnar sem þeir setji fram séu sannar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár