Þorsteinn Már neitaði að svara spurningum við yfirheyrslu hjá héraðssaksóknara

Upphæðin sem Sam­herj­a­sam­stæðan er grunuð um að hafa greitt í mútu­greiðslur fyrir aðgang að kvóta í Namibíu er komin upp í 1,7 millj­arða króna og þeir sem eru komnir með rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins hér­lendis eru orðnir átta.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn aðal­eig­andi Samherja, neit­aði að svara spurn­ing- um hér­aðs­sak­sókn­ara þegar hann var yfir­heyrður í annað sinn vegna Namib­íu­máls­ins í seint í sumar. Í bókun sem lög­maður hans lagði fram fyrir hönd Þor­steins Más þegar hann var kall­aður til yfir­heyrslu sagði að ástæða þessa væri sú að for­stjór­inn hefði fengið tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um sak­ar­efnið.

Þá hefur upp­hæðin sem Sam­herj­a­sam­stæðan er grunuð um að hafa greitt í mútur fyrir aðgengi að kvóta í Namibíu komin upp í 1,7 millj­arð króna, sem er tals­vert hærri upp­hæð en áður hefur verið greint frá.

Frá þessu er greint í Stund­inni í dag en þar er fjallað ítar­lega um ný gögn sem varpa skýr­ara ljósi á hvað er undir í rann­sókn yfir­valda hér­lendis og í Namibíu á meintum lög­brotum núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja.

Samkvæmt gögnum sem Kjarninn hefur séð þá svar­aði Þor­steinn Már spurn­ingum hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara þegar hann var yfir­heyrður þar í júlí í fyrra framan af yfir­heyrsl­unni, en þar hafn­aði hann öllum sak­ar­giftum og að nokkrum hafi verið mútað.

Víðtæk vitneskja um meintar mútugreiðslur

Á meðal þess sem fram kemur í gögn­unum sem Stundin fjallar um í dag er að víð­tæk vit­neskja var um ætl­anir um að greiða mútur til namibískra áhrifa­manna til að tryggja Samherja aðgengi að kvóta í land­inu. Það sést meðal ann­ars á tölvu­póstum milli ein­stak­linga innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem Stundin fjallar um. Á meðal þess sem gögnin sýna er að Aðal­stein Helgason, sem var yfir Namib­íu­út­gerð Samherja, hafi lagt til að mútur yrðu greiddar árið 2012 og að hann hafi velt því fyrir sér hvort beita mætti hót­unum til að ná þeim árangri sem Samherji stefndi að í land­inu. Stundin greinir einnig frá því að Aðal­steinn hafi sent tölvu­pósta um gang mála í Namibíu til Mar­grétar Ólafs­dóttur, rit­ara Þor­steins Más.

[adspot]Átta manns hið minnsta hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að fyrsta lota þeirra hófst í fyrra­sumar. Stundin greinir frá því að Ingólfur Pét­urs­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu, hafi fengið slíka stöðu við yfir­heyrslur í sumar.

Hinir sex sem voru þá kall­aðir inn til yfir­heyrslu og fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana voru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árnason, fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Samherja árum saman, og upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son.

Mútur, peningaþvætti og skattasniðganga

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­a­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­ar­laga um mútur. Í fyrr­nefndu grein­inni segir að hver sem gefur, lofar eða býður opin­berum starfs­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­kall til, í þágu hans eða ann­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­manni, erlendum kvið­dóm­anda, erlendum gerð­ar­manni, manni sem á sæti á erlendu full­trúa­þingi sem hefur stjórn­sýslu með höndum, starfs­manni alþjóða­stofn­unar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­gjaf­ar­þingi í erlendu ríki, dóm­ara sem á sæti í alþjóð­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

[links]Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lögum, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­lýs­ingum um upp­runa hans, eðli, stað­setn­ingu eða ráð­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­ar­lögum, sem fjalla um auðg­un­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem var lagt niður í núver­andi mynd fyrr á þessu ári og varð eftir það deild innan Skatts­ins, er síðan að rann­saka hvort raun­veru­legt eign­ar­hald á allri Sam­herj­a­sam­stæð­unni sé hér­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars staðar en hér sé þar með stór­felld skatta­snið­ganga.

Í umfjöllun Stund­ar­innar kemur fram að starfs­maður skatta- og lög­fræðis­viðs hjá KPMG, sem vann drög að skýrslu sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Þor­steinn Már væri nær ein­ráður í Sam­herj­a­sam­stæð­unni og að allir valda­þræðir lægju til hans, hafi verið kall­aður inn sem vitni við rann­sókn yfir­valda. Þar kom fram að mað­ur­inn breytti þeirri nið­ur­stöðu skýrsl­unnar að ósk Samherja úr því að Þor­steinn Már væri eini fram­kvæmda­stjóri sam­stæð­unnar í að for­stjór­inn hafi „aðkomu að því að veita ráð­gjöf til ólíkra félaga innan sam­stæð­unnar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár