Skattrannsókn á Samherja komin yfir til héraðssaksóknara

Rannsókn emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem var lagt niður í fyrri mynd á þessu ári, á meintum skatta­laga­brotum Samherja í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, er nú komin yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara.

Rannsókn á Samherja hófst eftir opinberum á starfsháttum fyrirtækisins í Namibíu síðla árs 2019. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sést hér fyrir nokkrum árum síðan með samstarfsaðilum í útgerð fyrirtækisins í Namibíu.
Rannsókn á Samherja hófst eftir opin­berum á starfs­háttum fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu síðla árs 2019. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sést hér fyrir nokkrum árum síðan með sam­starfs­að­ilum í útgerð fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Mynd: Wikileaks

Rannsókn á meintum skatta­laga­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar er nú í gangi hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem var lagt niður í fyrri mynd fyrr á þessu ári og varð eftir það deild innan Skatts­ins, hefur frá því síðla árs 2019 verið að rann­saka ýmsa þætti í starf­semi sam­stæð­unnar vegna gruns um stór­felld skatt­svik.

Kjarninn greindi frá því í ágúst að til­færsla stærri skatt­rann­sókna hafi setið föst, og ekki kom­ist yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að lög um nið­ur­lagn­ingu skatt­rann­sókn­ar­stjóra tóku gildi. Ástæðan var sú að innan emb­ætt­anna var ótti við að rann­sókn mála gæti skemmst á tækni­legum for­sendum ef form­legar verk­lags­reglur lægju ekki fyr­ir.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans um málið voru form­legar verk­lags­reglur settar og við það losn­aði sá tappi sem mynd­ast hafði milli emb­ætt­anna og mál sem höfðu verið á bið mán­uðum saman gátu færst í áfram­hald­andi rann­sókn hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Á meðal þeirra er skatta­hluti Sam­herj­a­máls­ins sem færð­ist yfir í sept­em­ber.

Eiga að greiða tekjuskatt hérlendis

Heim­ildir Kjarnans herma að meðal þess sem þar hafi verið til skoð­unar sé hvort raun­veru­legt eign­ar­hald á allri Sam­herj­a­sam­stæð­unni sé hér­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars­staðar en hér sé þar með stór­felld skatta­snið­ganga. Þar er um að ræða mögu­leg brot á svo­kall­aðri CFC lög­gjöf sem verið hefur í gildi hér­lendis frá árinu 2010.

[adspot]CFC stendur fyrir Controlled For­­eign Corporation, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­anda, hvort sem sá eig­andi er félag eða ein­stak­l­ing­­ur. Lögin kveða meðal ann­­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­­rík­­i. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­­­svæðum eiga að skila sér­­­­­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­­­ar­­­gerð þar sem meðal ann­­­ars eru sund­­­ur­lið­aðar tekj­­­ur, skatta­­­legar leið­rétt­ing­­­ar, arðsút­­­hlutun og útreikn­ingur á hlut­­­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­­­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Hagnaður af Namib­íu­út­gerð Samherja var fluttur til félags á eyj­unni Máritíus og þaðan til lág­skatt­rík­is­ins Kýpur, þar sem Samherji átti fjöl­mörg félög en var með nán­ast enga eig­in­lega starf­semi. Þaðan fóru þeir síðan inn á banka­reikn­inga sam­stæð­unnar, sam­kvæmt því sem fram kom í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og fleiri miðla sem birt var í nóv­em­ber 2019.

Rannsókn á mútubrotum komin vel á veg

Til við­bótar við rann­sókn­ina á skatta­málum Samherja fer fram umfangs­mikil rann­sókn á meintum stór­felldum efna­hags­brotum sam­stæð­unnar, meðal ann­ars mútu­brot og pen­inga­þvætti, í tengslum við starf­semi hennar í Namibíu. Gögn máls­ins benda til að Sam­herj­a­sam­stæðan hafi greitt að minnsta kosti 1,7 millj­arð króna í mútur fyrir aðgang að kvóta í Namibíu.

[links]Átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að fyrsta lota þeirra hófst í fyrra­sum­ar.

Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn aðal­eig­andi Sam­herja, sem neit­aði að svara spurn­ingum hér­aðs­sak­sókn­ara þegar hann var yfir­heyrður í annað sinn vegna Namib­íu­máls­ins í seint í sum­ar. Í bókun sem lög­maður hans lagði fram fyrir hönd Þor­steins Más þegar hann var kall­aður til yfir­heyrslu sagði að ástæða þessa væri sú að for­stjór­inn hefði fengið tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um sak­ar­efn­ið.

Stundin greindi frá því í sept­em­ber að Ingólfur Pét­urs­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Sam­herja í Namib­íu, hafi líka fengið slíka stöðu við yfir­heyrslur í sum­ar.

Hinir sex sem voru þá kall­aðir inn til yfir­heyrslu og fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana voru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Jón Óttar Ólafs­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár