Það sem helst sé vandræðalegt við Samherjamálið sé að þingmenn vilji ræða það

Sérstök umræða um rann­sókn á Sam­herj­a­mál­inu og orð­spor Íslands fór fram á Alþingi í dag. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra var til svara og sagð­ist meðal ann­ars ekki vita til þess að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara væri van­fjár­magnað.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata hóf sér­staka umræðu um rann­sókn á Sam­herj­a­mál­inu og orð­spor Íslands á Alþingi í dag og gagn­rýndi í fram­sögu­ræðu sinni auk ann­ars ónægar fjár­veit­ingar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara. Hún sagði póli­tískar ákvarð­anir hafa valdið því að Ísland ætti ekki burð­uga, vel fjár­magn­aða og full­mann­aða stofnun sem gæti rann­sakað efna­hags­brot og skatta­lag­brot innan ásætt­an­legs tíma.

Þing­mað­ur­inn spurði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra að því, hvort hann væri sam­mála því að „óhóf­legur dráttur á rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins sé vand­ræða­legur fyrir Ísland á alþjóða­vett­vangi,“ hvort íslensk stjórn­völd væru að „líta málið nógu alvar­legum augum“ og hvort það hefði verið full­nægj­andi að leggja 200 millj­ónir sam­eig­in­lega til skatta­yf­ir­valda til að bregð­ast við mál­inu, eins og rík­is­stjórnin gerði undir lok árs 2019.

Á meðal þess sem kom fram í svari Jóns var að það sem honum þætti helst vand­ræða­legt væri það að þing­menn vildu ræða rann­sókn ein­staks saka­máls á Alþingi Íslend­inga og hefðu frammi kröfur um að stjórn­völd gripu inn í. Sagði hann einnig að sér­stök fjár­mögnun til rann­sóknar ein­stakra saka­mála, eins og auknar fjár­veit­ingar sem boð­aðar voru í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar eftir að mál Samherja í Namibíu sprakk út undir lok árs 2019 væru „óeðli­leg afskipti“ af rann­sókn ein­stakra mála.

Í ræðu sinni vís­aði Þór­hildur Sunna til við­tals frétta­stofu Stöðvar 2 við Drago Kos, yfir­manns vinnu­hóps OECD gegn mútum og spill­ingu, en í því kom fram að hann hefði búist við jafn kröft­ugum vinnu­brögðum og yfir­völd sýndu við rann­sókn á efna­hags­hrun­inu.

[adspot]

„Allir bjugg­ust við að það sama yrði uppi á ten­ingnum núna. En það gerð­ist ekki. Ég myndi segja að það sé hálf­vand­ræða­legt fyrir Ísland að Namibía sé landið sem dragi vagn­inn í rann­sókn­inni. Það er íslenskum stjórn­völdum ekki til sóma,“ var haft eftir Drago Kos í frétt á Vísi.

Kos hafi ekki aflað sér upplýsinga

„Ég veit ekki til þess að þessi ágæti maður hafi aflað sér ein­hverra upp­lýs­inga um málið frá þeim sem hafa eitt­hvað með hana að gera á Íslandi,“ sagði Jón Gunn­ars­son um Drago Kos í ræðu sinni í umræð­unni.

Hann vís­aði einnig til þess að hann ræki minni til þess að hafa séð haft eftir Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara í fjöl­miðlum að sak­sókn­ar­inn hefði setið fundið með Drago Kos í höf­uð­stöðvum OECD París í sömu viku og við­talið hefði birst við hann í fréttum Stöðvar 2, án þess þó að Kos hefði séð nokkra ástæðu til að spyrja hann spurn­inga eða lýsa áhyggjum sínum við hand­hafa ákæru­valds­ins.

[adspot]

„Mér sýn­ist að þetta við­tal við Drago [...] vera það sem helst er vand­ræða­legt, ef hann telur að Namíbía dragi vagn­inn í rann­sókn Sam­herj­a­mál­inu,“ sagði Jón og sagð­ist telja rétt að rifja upp að rann­sókn hér hefði haf­ist 2019 en árin 2015-16 í Namibíu. Sagðist hann ekki hafa haft miklar fréttir af rann­sókn­inni þar í landi, nema þá um að sak­born­ingar hefðu setið í gæslu­varð­haldi frá hand­töku þeirra í lok árs 2019.

„Kannski finnst fyr­ir­spyrj­anda og yfir­manni vinnu­hóps gegn mútum og spill­ingu það til eft­ir­breytni og merki um að þar séu menn að draga vagn­inn í rann­sókn­inni, sýni gott for­dæmi í mann­rétt­inda­málum,“ sagði Jón.

Veit ekki til þess að saksóknaraembættið sé vanfjármagnað

Hann bætti því við að hann vissi ekki til þess að hér­aðs­sak­sókn­ari væri van­fjár­magn­aður og sagði hér­aðs­sak­sókn­ara sjálfan hafa sagt að hann væri með full­mannað teymi í rann­sókn­inni.[links]

„Það er spurt hér um fleira og ég ætla ekki að ræða við fyr­ir­spyrj­anda um spill­ing­ar­vísi­tölu Þor­valdar Gylfa­sonar. Vinnu­brögð Íslands­deildar Transparency International á Íslandi eru ekki til fyr­ir­myndar og þar á bæ mega menn vera í sinni póli­tík mín vegna. Ég hef hins vegar miklar áhyggjur af því að vinnu­hópur OECD gagn­vart mútum og spill­ingu gagn­rýni rík­is­stjórn­ina fyrir slaka frammi­stöðu og áhuga­leysi þegar kemur að rann­sókn þessa máls sem hér um ræðir. Það er þá ástæða til að upp­lýsa þessa spill­ing­ar­sér­fræð­inga í vinnu­hópnum og alla sér­fræð­inga hér á þingi að ákæru­valdið er sjálf­stætt í störfum sínum, hvorki dóms­mála­ráð­herra né rík­is­stjórn hafa afskipti af rann­sókn ein­stakra mála, ef það ger­ist þá væri hægt að fara að tala um spill­ingu,“ sagði Jón einnig í svari sínu í umræð­unni.

Um hvort hann teldi rann­sókn­ina hafa dreg­ist óhóf­lega sagði Jón: „Ég veit ekk­ert um það hvort rann­sóknin hafi dreg­ist óhóf­lega, rann­sóknir mála eru mis­um­fangs­miklar og þegar þær snúa að fleiri löndum löndum má ætla að þær taki lengri tíma en ella. Þótt að ein­hver póli­tískur vinnu­hópur í OECD eða póli­tískir and­stæð­ingar hér á þingi telji eitt­hvað vand­ræða­legt er ekki þar með sagt að svo sé. Eina sem mér finnst vand­ræða­legt er að þing­menn vilji ræða rann­sókn ein­staks saka­máls á Alþingi Íslend­inga og kröfu um að stjórn­völd grípi inn í. Slík umræða hefur ekki verið gagn­leg í for­tíð­inni og gjarnan reynst sneypu­för. Mér sýn­ist að þeir sem telji sig vera sér­staka málsvara mann­rétt­inda og rétt­ar­rík­is­ins og bar­áttu­menn gegn spill­ingu séu algjör­lega að snúa öllu á haus í þessu máli. Það er áhyggju­efni og sér­stak­lega vand­ræða­legt og grafal­var­legt í mínum huga.“

Nokkur fjöldi þing­manna kvað sér hljóðs í umræð­unni, sem fór fram á tólfta tím­anum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár