Samherji og mögulega tengdir aðilar halda nú á meira en 22 prósent af öllum kvótanum

Fjórar blokkir eru með yfir­ráð yfir 60 pró­sent af öllum kvóta sem úthlutað hefur verið á Íslandi. Sú stærsta, sem hverf­ist um Samherja, heldur á yfir 22 pró­sent af öllum kvóta. Samkvæmt lögum mega tengdir aðilar ekki halda á meira en tólf pró­sent.

Frændurnir Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson stýra Samherja. Þar til í fyrra voru þeir stærstu eigendur fyrirtækisins en þá framseldu þeir hlutabréf í innlendu starfseminni til barna sinna.
Frænd­urnir Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son stýra Samherja. Þar til í fyrra voru þeir stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins en þá fram­seldu þeir hluta­bréf í inn­lendu starf­sem­inni til barna sinna. Mynd: Samsett

Mikil sam­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á Íslandi á und­an­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­stak­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­ar­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Fyrir einu ári síðan héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarninn greindi frá því í gær að það hlut­fall er nú komið upp í rúm­lega 67 pró­sent.

Samhliða þess­ari þróun hefur hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­ar­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út síð­asta ár var alls um 665 millj­arðar króna á umræddu tíma­bili, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­hæð fór undir 30 pró­sent til íslenskra rík­is­ins, eig­anda auð­lind­ar­inn­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veiði­gjalda. En rúm­lega 70 pró­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Þrjár blokkir í sérflokki

Miðað við nýjasta birta lista Fiski­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­ar­vinnslan, ásamt dótt­ur­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 9,41 pró­sent hans. Þá keypti Síld­ar­vinnslan útgerð­ar­fyr­ir­tækið Berg Huginn í fyrra en það heldur á 1,03 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

[adspot]Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti þá nið­ur­stöðu frum­mats síns í febr­úar síð­ast­liðnum að til staðar væru vís­bend­ingar um um yfir­­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­­leg yfir­­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­­ar­vinnsl­unn­i. Síðan að sú nið­ur­staða var birt hef­ur, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, verið kallað eftir gögnum frá stjórn­völd­um, Sam­herja, Síld­ar­vinnsl­unni og öðrum tengdum aðilum vegna máls­ins. Sú gagna­öflun hafi gengið vel en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráð­ist verði í form­lega rann­sókn á mál­in­u.

Stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar, sem var skráð á hluta­bréfa­markað fyrr á þessu ári, eru Samherji hf. (32,64 pró­sent) og Kjálka­nes ehf. (17,44 pró­sent), félags í eigu Björg­ólfs Jóhanns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­bönd­um. Auk þess á Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Samherja og Björg­ólfs, fjögur pró­sent hlut. Sam­an­lagt halda því þessir þrír aðilar á um 54,1 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni og skipa þrjá af fimm stjórn­ar­mönnum þess.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með fjórðu mestu afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,1 pró­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,5 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um.

Þessir aðil­ar: Síld­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mögu­legt að séu tengd­ir, halda því sam­tals á 22,14 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Brim yfir lögbundnum mörkum

Brim, sem er skráð á mark­að, er sú útgerð sem heldur beint á mestum kvóta, eða 13,2 pró­sent hans. Það er eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem heldur á hærri hlut­deild af verð­mæti kvóta en heim­ilt er sam­kvæmt lögum. Brim hefur nú sex mán­uði til að leysa úr þeirri stöðu.

Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á 43,97 pró­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 2,23 pró­­sent af öllum afla­heim­ild­­um. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar, for­­stjóra Brims.

Til við­­­bótar heldur útgerð­­­ar­­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 0,76 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 16,19 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Kaupfélagsblokkin og Ísfélagið ekki langt frá mörkunum

Kaup­­­­­fé­lag Skag­­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 3,4 pró­­­­­sent heild­­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­­sent í Vinnslu­­­­­stöð­inni í Vest­­­­­manna­eyjum sem er með sjö pró­­sent heild­­­­­ar­afla­hlut­­­­­deild. Þá á Vinnslu­­stöðin 48 pró­­sent hlut í útgerð­­ar­­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­­manna­eyj­um, sem heldur á 1,1 pró­­sent af útgefnum kvóta.

[links]FISK á til við­­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­­ías Cecils­­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,17 pró­­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­­ar­kvóti þess­­­­­ara þriggja 11,7 pró­sentum, og er því undir 12 pró­­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­­greindir með öðrum hætti.

Ísfélag Vest­manna­eyja, sem á meðal ann­ars hlut í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, fékk um 20 pró­sent af nýlega stór­auknum loðnu­kvóta í sinn hlut. Fyr­ir­tækið rýkur upp list­ann yfir þær útgerðir sem halda á mestum heild­ar­kvóta. Í fyrra­haust var hlut­deild Ísfé­lags­ins 3,78 pró­sent. Hún er nú 10,05 pró­sent.

Sam­an­lagt halda þessar fjórar blokkir: Þær sem kenndar eru við Samherja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár