Samþjöppun í sjávarútvegi aukist – Tíu stærstu halda á tveimur þriðja hluta kvótans

Á einu ári hefur heild­ar­verð­mæti úthlut­aðs kvóta sem tíu stærstu útgerðir lands­ins halda á farið úr því að vera 53 pró­sent í að vera rúm­lega 67 pró­sent. Auknar heim­ildir til að veiða loðnu skipta þar umtals­verðu máli.

Brim, Ísfélag Vestmannaeyja, Samherji og Síldarvinnslan eru þau fjögur sjávarútvegsfyrirtæki sem halda á mestum kvóta. Guðmundur Kristjánsson, Guðbjörg Matthíasdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson og Gunnþór Ingvason stýra eða eiga þau fyrirtæki.
Brim, Ísfélag Vest­manna­eyja, Samherji og Síld­ar­vinnslan eru þau fjögur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem halda á mestum kvóta. Guð­mundur Krist­jáns­son, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Gunnþór Ingvason stýra eða eiga þau fyr­ir­tæki. Mynd: Samsett

Þegar Fiski­stofa tók saman kvóta­stöðu allra útgerða í fyrra­haust var nið­ur­staðan sú að engin ein útgerð héldi á meiri kvóta en lög heim­ila, en sam­kvæmt því má engin ein tengd blokk hald á meira en tólf pró­sent af heild­ar­verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hverju sinni. Brim, sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem er skráð á markað, var efst á list­anum yfir þær útgerðir sem héldu á mestu með 10,45 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

[links]Tíu stærstu útgerð­irnar héldu sam­an­lagt á 53,1 pró­sent af kvót­anum. Það var svipuð staða og hafði verið árin á undan.

Fiski­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­deildum fari ekki umfram lög­bundin mörk, birti nýja sam­an­tekt á sam­þjöppun afla­hlut­deildar í gær. Þar birt­ist ný staða. Nú er ein útgerð, Brim, komin yfir lög­bundið kvóta­þak og tíu stærstu útgerð­irnar halda nú á 67,45 pró­sent á öllum úthlut­uðum kvóta.

Listi yfir þau tíu sjávarútvegsfyrirtæki sem halda á hæstri hlutdeild af kvóta:

  1. Brim hf. 13,20 pró­sent
  2. Ísfélag Vest­manna­eyja hf. 10,05 pró­sent
  3. Síld­ar­vinnslan hf. 9,41 pró­sent
  4. Samherji Ísland ehf. 8,09 pró­sent
  5. Vinnslu­stöðin hf. 6,98 pró­sent
  6. Skinney-Þinganes hf. 5,93 pró­sent
  7. Eskja hf. 4,96 pró­sent
  8. FISK-Seafood ehf. 3,40 pró­sent
  9. Þorbjörn hf. 2,86 pró­sent
  10. Rammi hf. 2,57 pró­sent

Þar skiptir miklu máli að Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sem enn er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra þrátt fyrir að hafa ekki verið í fram­boði til þings í lok síð­asta mán­að­ar, und­ir­rit­aði reglu­gerð í síð­asta mán­uði sem heim­ilar íslenskum skipum stór­auknar veiðar á loðnu. Raunar verður kom­andi ver­tíð sú stærsta í tæp 20 ár og afla­verð­mætið er áætlað um og yfir 50 millj­arða króna. Þorri þeirrar afla­út­hlut­unar rennur til stór­út­gerða.

Tengdir aðilar mega ekki halda á meira en tólf prósent

Til að veiða fisk í íslenskri lög­sögu þarf að kom­ast yfir úthlut­aðan kvóta sem úthlutað er í sam­ræmi við lög um stjórn fisk­veiða. Umrædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­sent af heild­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­inn­ar. Til að telj­ast tengdur aðili er þó gerð krafa um meiri­hluta­eign eða raun­veru­leg yfir­ráð. Í því feldst að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðil­ar. Þau mörk hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda mjög há í öllum sam­an­burði.

[adspot]Í þessu sam­bandi hefur meðal ann­ars verið bent á lög um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda. Í þeim er miðað við 25 pró­sent beinan eða óbeinan eign­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­legur eig­and­i.

Raunveruleg yfirráð ekki könnuð

Í jan­úar árið 2019 skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun svartri stjórn­sýslu­út­tekt um Fiski­stofu, sem á að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd laga um úthlutun hans. Eitt þeirra atriða sem veru­legar athuga­semdir voru gerðar við, og vakti mikla athygli, var að Fiski­stofa kann­aði ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög.

Skiptar skoð­anir hafa verið uppi um hvort það tak­mark hafi náðst. En skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar ýtti málum aðeins áfram. Í henni var meðal ann­ars lagt til að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um stjórn fisk­veiða sem snúa að yfir­ráðum yfir afla­heim­ildum og ákvæðum sem fjalla um tengsl aðila „svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­­­þjöppun afla­heim­ilda“.

Í mars 2019 var skipuð verk­efna­stjórn sem falið var þetta verk­efni. Hún skil­aði skrif­­lega af sér drögum 30. des­em­ber 2019 þar sem lagðar voru fram ýmsar til­lögur tl úrbóta.

Fimm tillögur

Til­lög­urnar voru fimm. Lagðar voru til breyt­ingar á skil­­grein­ingum á tengdum aðilum þannig að þær yrðu látnar ná til hjóna, sam­­búð­­ar­­fólks og barna þeirra. Þá var lagt til að ákveðin stjórn­­un­­ar­­leg tengsl milli fyr­ir­tækja myndu leiða til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt væri fram á hið gagn­­stæða og að sér­stak­lega yrði skil­greint í lög­unum hvað fælist í raun­veru­legum yfir­ráðum yfir öðru fyr­ir­tæki. Einnig átti að skikka aðila sem ráða yfir meira en sex pró­­sent af afla­hlut­­deild, sem eru örfá fyr­ir­tæki, eða 2,5 pró­­sent af krókafla­hlut­­deild til að til­­kynna til Fiski­­stofu áætl­­aðan sam­runa. Sama myndi eiga við þegar fram færu kaup í félagi sem ráði yfir afla­hlut­­deild eða við kaup á afla­hlut­­deild og áttu þau kaup ekki til fram­­kvæmda nema sam­­þykki Fiski­­stofu lægi fyr­ir. Að end­ingu átti að veita Fiski­­stofu auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­­fall meiri­hluta­­eignar í tengdum aðil­­um. Þau mál yrðu áfram til skoð­unar hjá nefnd­inn­i.

Takmarkaðar breytingar náðu ekki fram að ganga

Þegar loka­skýrsla verk­efna­stjórn­ar­innar var birt í fyrra­sumar kom í ljós að hún gerði engar til­­lögur að breyt­ingum á kvóta­­þaki eða kröfu um hlut­­­fall meiri­hluta­­­eignar í tengdum aðil­um í nýrri skýrslu verk­efna­­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veið­i­­auð­lind­inn­i.

Kristján Þór hafði þá þegar lagt fram drög að frum­varpi um skil­grein­ingu tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sem byggði á vinnu verk­efna­stjórn­ar­innar. Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veið­i­­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­­bundið kvóta­­þak, eða sex ár.

Drögin náðu aldrei að verða full­numa frum­varp og því er staða mála varð­andi skil­grein­ingu á tengdum aðilum sú sama og hún var í upp­hafi síð­asta kjör­tíma­bils.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár