Brim komið yfir lögbundið kvótaþak og heldur á 13,2 prósent úthlutaðs kvóta

Samkvæmt lögum má engin útgerð á Íslandi halda á meira en tólf pró­sent af verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hverju sinni. Brim, eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, er nú komið yfir þau mörk.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Brim heldur sem stendur á 13,2 pró­sent af heild­ar­verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hér­lendis, sam­kvæmt nýjum útreikn­ingum Fiski­stofu sem birtir voru í dag. Það er yfir lög­bundnu hámarki á fisk­veiði­kvóta sem einn útgerð má halda á sam­kvæmt lögum, en það er tólf pró­sent.

Þar munar mestu um að Brim er fékk 18 pró­sent af nýlega úthlut­uðum loðnu­kvóta, sem var stór­auk­inn milli ára. Fyrir vikið hefur heild­ar­hlut­deild sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins í öllum teg­undum farið úr því að vera 10,41 pró­sent 1. sept­em­ber í fyrra í áður­nefnda tölu, 13,2 pró­sent, nú.

Ef afla­hlut­deild fiski­skipa í eigu ein­stakra aðila eða tengdra aðila fer umfram tólf pró­sent mörkin skal Fiski­stofa, sam­kvæmt lögum um stjórn fisk­veiða, til­kynna við­kom­andi aðila um það og veita honum sex mán­aða frest til að „gera ráð­staf­anir til að koma afla­hlut­deild­inni niður fyrir mörkin“. Ef Brim veitir ekki Fiski­stofu upp­lýs­ingar um að full­nægj­andi ráð­staf­anir hafi verið gerðar fyrir lok frests­ins fellur umframa­fla­hlut­deildin niður. Í lög­unum segir að þá muni afla­hlut­deild fiski­skipa í eigu við­kom­andi skerð­ast „hlut­falls­lega miðað við ein­stakar teg­undir“.

Blokk sem heldur rúmlega 16 prósent aflaheimilda

Brim hefur verið skráð í Kauphöll Íslands frá árinu 2014. Langstærsti eig­andi þess er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á 43,97 pró­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt RE-13 ehf.

[adspot]Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefur fengið úthlutað 2,23 pró­­sent af öllum afla­heim­ild­­um, en það er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar, for­­stjóra Brims.

Til við­­bótar heldur útgerð­­ar­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 0,76 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 16,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Fáir halda á mestu

Mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi á und­an­förnum ára­tug­um, eftir að fram­sal kvóta var gefið frjálst og sér­stak­lega eftir að heim­ilt var að veð­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­ar­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Sam­hliða hefur eft­ir­lit með fram­fylgd laga um stjórn fisk­veiða lengi verið í lama­sessi. Það var til að mynda stað­fest í kol­svartri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem birt var í byrjun árs 2019. Þar gerði hún meðal ann­ars veru­­legar athuga­­semdir við að Fiski­­stofa kann­aði ekki hvort yfir­­ráð tengdra aðila í sjá­v­­­ar­út­­­vegi yfir afla­hlut­­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög. Eft­ir­lits­að­il­inn sinnti ekki eft­ir­lit­in­u.

Sam­kvæmt lögum má hver blokk halda á tólf pró­sent af úthlut­uðum kvóta en í gild­andi lögum má eiga allt upp að helm­ingi í annarri útgerð án þess að kvóti sem hún heldur á telj­ist með. Þessi lög eiga að koma í veg fyrir mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna.

Svæft í nefnd

Nokkrar til­raunir hafa verið gerðar á und­an­förnum árum til að taka á þeirri stöðu sem komin er upp í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi og brjóta upp hringa­mynd­anir í geir­an­um. Slíkar hug­myndir fengu byr í seglin eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað í nóv­em­ber 2019.

Þorri þeirra til­rauna hefur verið kæfð­ur. Nið­ur­staðan eru engar sýni­legar breyt­ingar á kerf­in­u.

Í des­em­ber 2019 lögðu þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­um: Við­reisn, Sam­fylk­ingu og Píröt­um, fram frum­varp sem fól í sér kúvend­ingu á því kerfi sem er við lýði vegna nýt­ing­ar­réttar á fisk­veiði­auð­lind­inn­i.

[adspot]Í frum­varp­inu fólust þrjár megin breyt­ing­ar. Í fyrsta lagi yrðu þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama átti að gilda um kröfur sem gerðu það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Sam­kvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Í öðru lagi gerði frum­varpið ráð fyrir að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á mark­að. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

Í þriðja lagi lagði frum­varpið til að settar yrðu tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu sagði að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum ætti eng­inn aðili, ein­stak­ling­ur, lög­að­ili eða tengdir aðil­ar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hluta­fé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­un­um.“

Frum­varp­ið, sem unnið var af þing­mönnum Við­reisnar sem fengu svo stuðn­ing úr hinum flokk­unum tveim­ur, fékk að ganga til atvinnu­vega­nefndar þar sem það var svæft.

Hjón yrðu talin tengdir aðilar

Eftir að áður­nefnd svört skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar var birt skap­að­ist nokkur þrýst­ingur á úrbæt­ur. Skipuð var verk­efna­stjórn sem fékk það hlut­verk að leggja þær til. Vinnu hennar var flýtt eftir að Sam­herj­a­málið kom upp.

[links]Í febr­­úar 2020 kynnti Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, drög að frum­varpi um breyttar skil­­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðil­ar sem byggði á vinnu verk­efna­stjórn­ar­inn­ar.

Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veið­i­­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­­bundið kvóta­­þak, eða sex ár.

Í til­­­lög­un­um, sem voru fimm tals­ins, fólst að skil­­­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­­­búð­­­ar­­­fólks og barna eða fóst­­ur­­barna þeirra, að ákveðin stjórn­­­un­­­ar­­­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­­­stæða, að skil­­­greint verði hvað felst í raun­veru­­­legum yfir­­­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­­­sent af afla­hlut­­­deild eða 2,5 pró­­­sent af krókafla­hlut­­­deild skulu til­­­kynna til Fiski­­­stofu áætl­­­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­­­deild eða kaup á hlut­­­deild og koma kaupin ekki til fram­­­kvæmda nema sam­­­þykki Fiski­­­stofu liggi fyrir og að Fiski­­­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­­­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­­­fall meiri­hluta­­­eignar í tengdum aðil­­­um.

Meiri­hluti nefndar varði kvóta­þakið

Þegar loka­skýrsla verk­efna­stjórn­ar­innar var birt í fyrra­sumar kom í ljós að hún gerði engar til­­lögur að breyt­ingum á kvóta­­þaki eða kröfu um hlut­­­fall meiri­hluta­­­eignar í tengdum aðil­um í nýrri skýrslu verk­efna­­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veið­i­­auð­lind­inn­i.

Oddný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem sat í nefnd­inni, gerði fyr­ir­vara við nið­ur­stöð­una og vildi að ákvæði laga um hámarks­afla­hlut­deild yrði breytt í sam­ræmi við þau ákvæði sem er að finna í lögum um skrán­ingu raun­veru­­­legra eig­enda. Þar er miðað við 25 pró­­­sent beinan eða óbeinan eign­­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­­legur eig­and­i.

Oddný tal­aði fyrir þess­ari breyt­ingu á vett­vangi nefnd­ar­inn­ar, en hún hlaut ekki hljóm­grunn hjá hinum nefnd­ar­mönn­un­um. Þeir voru Sig­urður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölf­usi og áður bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks í Vest­manna­eyj­um, Bryn­hildur Bene­dikts­dótt­ir, sér­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu, og Hulda Árna­dóttir lög­mað­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár