Eigið fé sjö stjórnmálaflokka jókst um 732 milljónir eftir að þeir hækkuðu eigin framlög

Skömmu eftir kosn­ing­arnar 2017 ákváðu flestir stjórn­mála­flokkar á þingi að fram­lög til þeirra úr rík­is­sjóði yrðu stór­hækkuð. Þá voru fimm þeirra með nei­kvætt eigið fé. Nú eiga flestir þeirra digra sjóði.

Eigið fé þeirra sjö stjórn­mála­flokka sem hafa skilað inn gildum árs­reikn­ingum vegna árs­ins 2020 jókst um sam­tals 731,9 millj­ónir króna frá árs­lokum 2017 og fram að síð­ustu ára­mótum.

Einn stjórn­mála­flokkur sem á full­trúa á þingi, Píratar, á eftir að skila inn gildum árs­reikn­ingi fyrir síð­asta ár. Eigið fé hans lækk­aði um 8,4 millj­ónir króna milli áranna 2017 og 2019.

Þetta má lesa úr árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokka lands­ins sem skilað hefur verið inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið. Þorri tekna flokk­anna allra eru fram­lög úr opin­berum sjóðum. Í til­felli Flokks fólks­ins komu 98 pró­sent tekna hans í fyrra úr rík­is­sjóði eða frá Alþingi, í til­felli Mið­flokks­ins var hlut­fall tekna úr opin­berum sjóðum tæp­lega 94 pró­sent, hjá Vinstri grænum 92 pró­sent og rúm­lega 91 pró­sent tekna Við­reisnar komu úr opin­berum sjóðum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sótti 87 pró­sent tekna sinna á árinu 2020 í opin­bera sjóði, Sam­fylk­ingin 75 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 66 pró­sent.

Fengu 286 milljónir króna á ári

Fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­sent var sam­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­ónir króna. Einungis full­trúar Flokks fólks­ins og Pírata skrif­uðu ekki undir til­lög­una.

Hún var sett fram sem sam­eig­in­legt erindi sem bar yfir­­­­­­­­­skrift­ina „Nauð­­­­­syn­­­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­sam­taka“. Í því var farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka verði „leið­rétt“.

[adspot]Í grein­­­­­ar­­­­­gerð sem fylgdi erind­inu sagði að sú upp­­­­­hæð sem stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokkum væri ætluð á fjár­­­­­lögum hefði lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú ættu átta flokkar full­­­­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­­­­mála og sveit­­­­­ar­­­­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­­­­burðar má nefna að dóms­­­­­mála­ráðu­­­­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­­­­kosn­­­­­ing­anna á síð­­­­­asta ári [2016] hafi verið rétt tæpar 350 millj­­­­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár [2017]. Stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­­­­magn á við helstu hags­muna­­­­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­­­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­­­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­­­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­­­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­­­­menn, Sam­tök iðn­­­­­að­­­­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­­­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­­­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­­­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­­­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka og að upp­­­­­­­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Fá 728 milljónir króna

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­­­mála­­flokkar sem fengu nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu þing­­kosn­­ingum til að fá úthlutað fjár­­munum úr rík­­is­­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­­trúa á þingi auk Sós­í­a­lista­­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu kosn­­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­­hæð og flokk­­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­­­anir stjórn­­­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­­­mála­­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­­ónir króna úr rík­­is­­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­manna þing­­flokka greiddur af Alþingi.

Flokkum bjargað úr fjárhagslegum vandræðum

Þessi breyt­ing kúventi fjár­hags­stöðu stjórn­mála­flokk­anna. Fimm þeirra voru til að mynda með nei­kvætt eigið fé í lok árs 2017, þegar ákvörð­unin um að marg­falda fram­lagið úr opin­berum sjóðum var tekin. Það þýðir að eignir þeirra hrukku ekki fyrir skuldum. Vert er þó að taka fram að tvennar þing­kosn­ingar fóru fram á árunum 2016 og 2017 vegna þess að rík­is­stjórnir sprungu sökum hneyksl­is­mála. Kosn­ingum fylgir umtals­verður við­bót­ar­kostn­aður fyrir stjórn­mála­flokka og fjár­hags­staða þeirra eftir síð­ari kosn­ing­arnar bar þess merki.

Þannig var eigið fé Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun­ur­inn á eignum og skuldum hans, nei­kvætt um 58,5 millj­ónir króna í lok árs 2017. Um síð­ustu ára­mót var það enn nei­kvætt, en ein­ungis um 233 þús­und krónur. Eigið fé flokks­ins jókst því um 87,5 millj­ónir króna á þremur árum.

Viðreisn, sem var form­lega stofnuð 2016, var með nei­kvætt eigið fé upp á 8,8 millj­ónir króna árið 2017 en átti eigið fé upp á 21 milljón króna í lok síð­asta árs. Eigið fé flokks­ins jókst því um 29,8 millj­ónir króna á tíma­bil­inu.

Eigið fé Vinstri grænna var líka nei­kvætt í upp­hafi við­mið­un­ar­tíma­bils­ins, alls um 18 millj­ónir króna. Það var hins vegar jákvætt um 114,7 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og hafði því auk­ist 132,7 millj­ónir króna.

Sjálfstæðisflokkurinn ríkasti flokkur landsins

Mið­flokk­ur­inn, sem var stofn­aður í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017, var með nei­kvætt eigið fé upp á 15,9 millj­ónir króna þegar því ári lauk. Óráð­stafað eigið fé hans í lok árs 2020 var hins vegar 125,1 milljón króna og hafði auk­ist um 141 milljón króna.

[links]Flokkur fólks­ins náði ekki inn á þing 2016 en fékk samt sem áður nægi­lega mörg atkvæði til að fá greiðslu úr rík­is­sjóði. Þegar kosið var aftur ári síð­ast fékk flokk­ur­inn fjóra menn kjörna, þótt tveir yfir­gæfu flokk­inn rúmu ári síðar. Í lok árs 2017 var eigið fé Flokks fólks­ins nei­kvætt um 5,8 millj­ónir króna. Um síð­ustu ára­mót átti flokk­ur­inn eignir umfram skuldir upp á 93,4 millj­ónir króna, að öllu leyti hand­bært fé. Eigið fé Flokks fólks­ins jókst því um 99,2 millj­ónir króna á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er langstærsti flokkur lands­ins á flestan máta. Hann fær mest fylgi í kosn­ingum, á verð­mæt­ustu eign­irnar, fær mest í fram­lög frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum og er með lang­flesta félaga.

Flokk­ur­inn átti eigið fé upp á 361,4 millj­ónir króna í lok árs 2017 en það var bók­fært 476,2 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Eigið fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur því auk­ist um 114,8 millj­ónir króna. Senni­lega er upp­lausn­ar­virði eigna flokks­ins mun meira en bók­fært virði þeirra, þar sem fast­eigna­mat höf­uð­stöðv­anna Val­hallar er hærra en bók­fært virði húss­ins. Auk þess hefur flokk­ur­inn áform um að byggja, og selja, 47 íbúðir á lóð Val­hallar.

Sam­fylk­ingin á einnig nokkrar eignir og eigið fé hennar var 76,6 millj­ónir króna í lok árs 2017. Það hefur síðan auk­ist um 126,9 millj­ónir króna og var 203,5 millj­ónir króna þegar síð­asta ár var á enda runnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár