Flokkur fólksins átti 93 milljónir til ráðstöfunar um síðustu áramót

Aug­lýs­inga- og kynn­ing­ar­kostn­aður Flokks flokks­ins tæp­lega fimm­fald­að­ist í fyrra. Um 98 pró­sent tekna hans á síð­asta ári kom úr rík­is­sjóði eða frá Alþingi. Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru stór­aukin á síð­asta kjör­tíma­bili.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Flokks fólks­ins voru 62,2 millj­ónir króna á árinu 2020. Alls komu 98 pró­sent þeirra til vegna fram­laga frá rík­is­sjóði og Alþingi. Um 1,1 milljón króna var fram­lag frá Reykja­vík­ur­borg, þar sem flokk­ur­inn á borg­ar­full­trúa, og 87 þús­und krónur skil­uðu sér í formi félags­gjalda. Það er um 30 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem félags­gjöld skil­uðu árið 2019.

Kostn­aður Flokks fólks­ins jókst umtals­vert á síð­asta ári, eða um rúm­lega 50 pró­sent. Þar skipti mestu að launa­kostn­aður jókst um 65 pró­sent og var 17 millj­ónir króna, og að aug­lýs­inga- og kynn­ing­ar­kostn­aður fór úr 1,7 milljón króna í 8,1 milljón króna. Hann tæp­lega fimm­fald­að­ist. Alls var fjöldi árs­verka hjá flokknum 1,6 á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Flokks fólks­ins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var minnstur stjórn­mála­flokka á þingi á síð­asta kjör­tíma­bili. Eftir að tveir þing­menn hans voru reknir úr flokknum í lok árs 2018 voru tveir í þing­flokknum. Flokkur fólks­ins styrkti hins vegar stöðu sína í síð­ustu kosn­ingum, fékk 8,8 pró­sent atkvæða og sex menn kjörna. Því munu fram­lög til flokks­ins aukast á þessu kjör­tíma­bili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Hagnaður alls 99 milljónir króna á þremur árum

Hagnaður Flokks fólks­ins var 29,4 millj­ónir króna á síð­asta ári sem þýðir að tæp­lega helm­ingur af tekjum hans end­aði sem hagn­aður. Einungis þurfti að nota 53 pró­sent af fram­lögum hins opin­berra til flokks­ins til að standa undir rekstri hans.

[adspot]Þetta er þó minni hagn­aður en var á árinu 2019 þegar flokk­ur­inn hagn­að­ist um 43 millj­ónir króna. Á því ári var hagn­að­ur­inn 68 pró­sent af tekjum. Árið 2018 var hagn­aður flokks­ins tæp­lega 27 millj­ónir króna, sem var rétt rúm­lega helm­ingur af öllum tekjum hans.

Á þeim þremur árum síð­asta kjör­tíma­bils sem árs­reikn­ingar Flokks fólks­ins liggja fyrir hagn­að­ist flokk­ur­inn því sam­tals um 99 millj­ónir króna.

Óráð­stafað eigið fé Flokks fólks­ins um síð­ustu ára­mót var 93,4 millj­ónir króna. Það var 21,8 millj­ónir króna í lok árs 2018. Félagið á engar aðrar eignir en það fé og skuld­aði nán­ast ekk­ert, eða 1,2 millj­ónir króna í skamm­tíma­skuldir. Eigið féð var því 93,4 millj­ónir króna í lok árs 2020.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga eins flokks, Pírata, vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár