Stjórnmálaflokkar fá rúmlega 3,6 milljarða króna úr ríkissjóði á fimm árum

Níu stjórn­mála­flokkar skipta með sér 728 millj­ónum krónum úr rík­is­sjóði árlega. Áætluð fram­lög voru 442 millj­ónum krónum lægri í upp­hafi síð­asta kjör­tíma­bils.

Þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem lagt var fram í síð­ustu viku.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bili.

[adspot]Fram­lögin hækk­uðu veru­lega í kjöl­far þess að til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­sent var sam­­­­þykkt í fjár­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­ónir króna á því ári.

Einu flokk­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Geta sótt sér viðbótarfé og Alþingi greiðir kostnað við starfsmenn

Full­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­menn stjórn­­­­­mála­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­mál stjórn­­­­­mála­­­flokka og fram­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­mála­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­um. Hámarks­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­greindur í árs­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­ur.

Því hafa tæki­­­færi stjórn­­­­­mála­­­flokka til að taka við upp­­­hæðum frá ein­stak­l­ingum og fyr­ir­tækjum verið aukin sam­hliða því að upp­­­hæðin sem þeir fá úr rík­­­is­­­sjóði var rúm­­­lega tvö­­­­­föld­uð.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár