Kostnaður vegna launa aðstoðarmanna og ráðherra hækkar og verður 715 milljónir

Laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra hafa hækkað skarpt á und­an­förnum árum og langt umfram almenna launa­þróun. Ráð­herrum hefur verið fjölgað í nýrri rík­is­stjórn og því er heim­ild til að ráða allt að 27 aðstoð­ar­menn.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.
Annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Stjórnarráðið

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 714,9 millj­ónir króna á næsta ári sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi. Það er um fimm pró­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyrir, en þá á rekst­ur­inn að kosta 681,3 millj­ónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­is­stjórn­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna áætl­aður 461 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn á næsta ári er því 55 pró­sent hærri í krónum talið.

Kostn­að­ur­inn á þessu fyrsta starfs­ári rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks reynd­ist á end­anum hærri, eða 597 millj­ónir króna. Því hefur kostn­að­ur­inn vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra alls vaxið um 117,9 millj­ónir króna frá 2018, eða 20 pró­sent.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram i síð­ustu viku er áætlað að kostn­að­ur­inn hald­ist í sömu krónu­tölu út árið 2024, eða 714,9 millj­ónum króna.

Ráðherralaun hækkað um 70 prósent frá 2016

Laun þing­manna hækk­uðu síð­ast í sumar, um 6,2 pró­sent, og eru orðin 1.285.411 krónur á mán­uði. Frá miðju ári 2016 hafa laun þeirra hækkað um rúm­lega 80 pró­sent. Þau laun eru greidd af öðrum lið í fjár­lögum, af Alþingi sjálfu. Ráð­herra­launin eru hins vegar greidd að áður­nefndum lið sem kall­ast rík­is­stjórn Íslands.

[adspot]Grunn­laun for­sæt­is­ráð­herra sem mið af þing­fara­kaupi en ofan á það legst álags­greiðsla upp á 1.074.642 krónur. Samtals eru laun Katrínar Jak­obs­dóttur því 2.360.053 krónur á mán­uði. Aðrir ráð­herrar fá lægri álags­greiðslu ofan á þing­fara­kaupið en eru samt sem áður með 2.131.788 krónur í mán­að­ar­laun.

Laun ráð­herra hafa hækkað skarpt, og langt umfram almenna launa­þróun, á und­an­förnum árum. Snemm­sum­ars 2016 voru almennir ráð­herrar með 1.257.425 krónur í mán­að­ar­laun og hafa því hækkað um 874.363 krónur síðan þá, eða um 70 pró­sent. Hækkun ráð­herra­laun­anna nemur rúm­lega 150 pró­sent af mið­gildi heild­ar­tekna á Íslandi.

Aðstoðarmönnum fjölgað 2011

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf kref­ur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­ar­­manna­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­ast um að ræða nán­­ustu sam­­starfs­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir orðnir tólf. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

Mega ráða allt að 27 aðstoðarmenn

Alls má rík­is­stjórnin því ráða 27 aðstoð­ar­menn sem stendur. Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

[links]Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sum­arið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Launin hafa hækkað enn frekar síðan þá.

Nú eftir kosn­ingar hafa þegar nokkrir þeirra sem voru aðstoð­ar­menn ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili til­kynnt að þeir ætli ekki að halda áfram störfum. Má þar nefnda Lísu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann for­sæt­is­ráð­herra, Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Ólaf Teit Guðnason, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Aðstoð­ar­maður ráð­herra á sam­kvæmt lögum rétt á bið­launum í þrjá mán­uði eftir að hann lætur af starfi. þar segir enn­fremur að hafi „aðstoð­ar­maður áður verið rík­is­starfs­maður á hann rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða ann­ars starfs eigi lak­ara að föstum launum í þjón­ustu rík­is­ins. Þiggi fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður ráð­herra laun vegna ann­arra starfa á því tíma­bili sem hann á rétt á bið­launum vegna fyrri starfa sinna sem aðstoð­ar­maður skerð­ast bið­launin sem þeim launum nemur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár