Samfylkingin hagnaðist um 40 milljónir króna í fyrra

Kostn­aður við rekstur Sam­fylk­ing­ar­innar jókst um 50 pró­sent á árinu 2020. Eigið fé flokks­ins er rúm­lega 200 millj­ónir króna og jókst um 120 pró­sent á tveimur árum. Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru stór­aukin á síð­asta kjör­tíma­bili.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta ári voru 152,4 millj­ónir króna. Þar af komu 114 millj­ónir króna í formi fram­laga frá rík­is­sjóði, Alþingi og sveit­ar­fé­lögum, tæp­lega 13 millj­ónir komu í form fram­laga ein­stak­linga og rúm milljón króna frá lög­að­ilum. Inni í þeim tölum eru ekki inn­heimt flokks­gjöld, alls um fjórar millj­ónir króna, en þau nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára.

Þorri þeirra ein­stak­linga sem gáfu yfir 300 þús­und krónur til flokks­ins er fólk úr for­ystu­sveit hans. Má þar nefna for­mann­inn Loga Ein­ars­son, vara­for­mann­inn Heiðu Björg Hilm­is­dóttur og Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra í Reykja­vík.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sam­fylk­ing­ar­innar sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var með átta þing­menn í lok síð­asta kjör­tíma­bils eftir að Rósa Björk Björk Brynj­ólfs­dóttir gekk til liðs við hann. Hann fékk hins vegar sjö kjörna árið 2017 og 12,1 pró­sent atkvæða, en atkvæða­magnið segir til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði. Sam­fylk­ingin tap­aði 2,2 pró­sentu­stigum í síð­ustu kosn­ingum og er nú með sex þing­menn. Framlög til flokks­ins úr rík­is­sjóði munu því drag­ast saman á þessu kjör­tíma­bili.

Launakostnaður jókst um 46 prósent

Launa­kostn­aður flokks­ins jókst umtals­vert á árinu 2020, eða um 46 pró­sent, og var 41,7 millj­ónir króna. Hjá flokknum störf­uðu þrír starfs­menn á árinu 2020. Í raun jókst allur kostn­aður við rekstur flokks­ins, alls um 50 pró­sent milli ára, og var 110,2 millj­ónir króna. Það þýðir samt sem áður að rekstr­ar­hagn­aður af rekstri Sam­fylk­ing­ar­innar var 42,2 millj­ónir króna á árinu 2020 og hreinn hagn­aður tæp­lega 40 millj­ónir króna.

[adspot]Handbært fé í árs­lok. var 113,6 millj­ónir króna og heild­ar­virði eigna flokks­ins var metið á 245,6 millj­ónir króna. Sam­fylk­ingin skuld­aði lítið um síð­ustu ára­mót, alls 42,2 millj­ónir króna, og lækk­uðu skuld­irnar um rúm­lega 34 millj­ónir króna milli ára. Þar skiptir mestu að skuldir við lána­stofn­anir rúm­lega helm­ing­uð­ust.

Eigið fé flokks jafn­að­ar­manna var 203,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og jókst um tæp­lega 39 millj­ónir króna milli ára. Frá árs­lokum 2018 og til loka síð­asta árs jókst eigið fé flokks­ins um 110,5 millj­ónir króna, eða um 120 pró­sent.

Framlög til flokka úr ríkissjóði hækkuð gríðarlega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Ársreikningar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

[links]]Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga þriggja flokka; Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár