Eignir Sjálfstæðisflokks metnar á næstum milljarð – Ætlar að byggja 47 íbúða blokk

Rekstr­ar­hagn­aður stærsta flokks lands­ins var 111 millj­ónir króna í fyrra. Tvær af hverjum þremur krónum sem hann hafði í tekjur koma úr opin­berum sjóðum og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru áber­andi á meðal þeirra lög­að­ila sem styrkja flokk­inn.

Rekstr­ar­tekjur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta ári voru 328,4 millj­ónir króna og dróg­ust saman um tæp­lega 16 milj­ónir króna milli ára. Rekstr­ar­gjöld voru 217 millj­ónir króna og rekstr­ar­hagn­aður því 111,4 millj­ónir króna á árinu 2020. Þegar flokk­ur­inn var búinn að greiða af lánum sínum stóðu eftir 85 millj­ónir króna í hrein­ann hagnað á síð­asta ári, sem er 18 millj­ónum krónum meira en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hagn­að­ist um árið 2019. Því hagn­að­ist flokk­ur­inn um 152 millj­ónir króna á tveimur árum, en árið 2018 tap­aði hann 35 millj­ónum króna.

Langstærsti hluti tekna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 195,5 millj­ónir króna, komu úr rík­is­sjóði. Sveit­ar­fé­lög greiddu flokknum svo 20 millj­ónir króna í fram­lög til við­bótar þannig að alls komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði í tekjur í fyrra úr opin­berum sjóðum.

Til við­bótar sótti hann 53,1 milljón króna í fram­lög og félags­gjöld frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum og hafði 59,6 millj­ónir króna í aðrar tekjur, sem að uppi­stöðu eru leigu­tekjur. Á meðal þeirra lög­að­ila sem greiddu Sjálf­stæð­is­flokknum hámarks­styrk upp á 550 þús­und krónur eru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki mest áber­andi.

[adspot]Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið og var birtur síð­degis í dag.

Flokk­ur­inn var með alls 16 þing­menn á síð­asta kjör­tíma­bili eftir að hafa fengið 25,3 pró­sent atkvæða í kosn­ingum 2017. Fyrir vikið var hann sá flokkur sem hafði lang­flesta þing­menn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði lít­il­lega, 0,9 pró­sentu­stigum, í síð­ustu kosn­ingum en hélt sínum 16 þing­mönnum. Þeim fjölg­aði í 17 þegar einn þing­maður Mið­flokks­ins skipti yfir nokkrum dögum eftir kosn­ing­arnar.

Búast má við því að fram­lög til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þessu kjör­tíma­bili verði svipuð og á því síð­asta enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Fasteignamat hærra en bókfært virði

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lang­um­svifa­mesti flokkur lands­ins. Eignir hans eru metnar á 925 millj­ónir króna og hækk­uðu um 77 millj­ónir króna milli ára. Dýr­mæt­ustu eignir flokks­ins eru fast­eignir, sem metnar eru á 646 millj­ónir króna. Þær eru bók­færðar á kostn­að­ar­verði, en fast­eigna­mat eigna og lóða er hærra, eða 919 millj­ónir króna. Þar á meðal er Valhöll, höf­uð­stöðvar flokks­ins. Í októ­ber var sam­þykkt beiðni flokks­ins um að byggja blokk með 47 íbúð­um og at­vinnu­hús­næði á lóð Val­hallar. Auk þess á flokk­ur­inn hlut í tveimur félögum, Þorra ehf. og Íhaldi ehf., Það fyrr­nefnda hefur þann til­gang að halda utan um kaup, sölu og rekstur fast­eigna, blaða­út­gáfu, lána­starf­semi og aðra skylda starf­semi vegna starfs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi. Hið síð­ar­nefnda vinnur að hús­næð­is­málum sam­taka eða félaga sjárfs­stæð­is­manna í Fljóts­dals­hér­aði.

Handbært fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins um síð­ustu ára­mót var rúm­lega 195 millj­ónir króna og jókst um 89 millj­ónir króna á síð­asta ári.

Skuldir flokks­ins lækk­uðu lít­il­lega á milli ára og voru 449 millj­ónir króna í lok árs 2020. Óráð­stafað eigið fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins var því 476,2 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

[adspot]Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga eins flokks, Pírata, vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár