Eigið fé Framsóknar enn neikvætt en staðan batnaði verulega á síðasta kjörtímabili

Í árs­lok 2018 var eigið fé Fram­sókn­ar­flokks­ins nei­kvætt um 56 millj­ónir króna og skuldir hans 239 millj­ónir króna. Stór­aukin fram­lög úr rík­is­sjóði hafa lagað stöð­una og eigið féð um síð­ustu ára­mót var nei­kvætt um ein­ungis 233 þús­und krónur.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Fram­sókn­ar­flokks­ins voru 109,5 millj­ónir króna á síð­asta ári. Alls komu 74 pró­sent þeirra úr rík­is­sjóði, rúm­lega tíu pró­sent frá Alþingi og rúm­lega þrjú pró­sent frá sveit­ar­fé­lögum. Því komu rúm­lega 87 pró­sent tekna flokks­ins úr opin­berum sjóðum.

Aðrar tekjur voru að uppi­stöðu fram­lög ein­stak­linga og lög­að­ila og almenn félags­gjöld, sem næstum tvö­föld­uð­ust milli ára og voru 6,3 millj­ónir króna. Af þeim 2,9 millj­ónum króna sem komu inn frá lög­að­ilum kom uppi­staðan frá fyr­ir­tækjum í útgerð, Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga Vísi og Síld­ar­vinnsl­unni, og fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­unum Arn­ar­laxi, Fiskeldi Aust­fjarða og Löxum eign­ar­halds­fé­lagi.

Rekstur skrif­stofa flokks­ins var þyngsti hlut­inn á gjalda­hlið­inni á árinu 2020, en hann kost­aði 78,1 millj­ónir króna og jókst um 21,3 pró­sent milli ára.

Rekstr­ar­hagn­aður var 40,2 millj­ónir króna sem þýðir að tæp­lega 37 pró­sent af tekjum Fram­sókn­ar­flokks­ins á síð­asta ári fór í rekstur hans. Flokk­ur­inn er hins vegar nokkuð skuld­settur og greiddi því tæp­lega 21 milljón króna í fjár­magns­gjöld á árinu 2020. Því var hagn­aður hans eftir fjár­magns­gjöld 19,2 millj­ónir króna.

[adspot]Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var með alls átta þing­menn á síð­asta kjör­tíma­bili eftir að hafa fengið 10,7 pró­sent atkvæða í kosn­ingum 2017. Hann var hins­vegar sig­ur­veg­ari síð­ustu kosn­inga, bætti við sig 6,6 pró­sentu­stigum og fimm þing­mönnum.

Því munu fram­lög til Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem er nú næst stærsti flokk­ur­inn á þingi, aukast veru­lega á þessu kjör­tíma­bili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Arion banki tók yfir hluta af fjármögnun flokksins

Eignir flokks­ins voru metnar á 211,2 millj­ónir króna á síð­asta ári. Þær eru að uppi­stöðu fast­eignir, sem metnar voru á 126,7 millj­ónir króna. Verð­mætasta eignin er Hverf­is­gata 33, höf­uð­stöðvar Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem vistuð er inni í dótt­ur­fé­lag­inu Skúla­garði ehf. Fast­eigna­mat húss­ins var 107 millj­ónir króna í lok síð­asta árs þótt bók­fært virði sé ein­ungis 42,3 millj­ónir króna, en á eign­inni hvíla lán upp á 125 millj­ónir króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi Skúla­garðs. Árið 2017 var fast­eignin sett að veði fyrir 50 milljón króna láni frá Kviku banka á fjórða veð­rétti. Á fyrsta veð­rétti var Lands­bank­inn, vegna láns þar sem upp­haf­legur höf­uð­stóll var 20 millj­ónir króna, og á öðrum og þriðja var Afl Spari­sjóður, vegna lána sem upp­haf­lega voru upp á sam­tals um 60,4 millj­ónir króna.

Í lok árs 2019 veitti Spari­sjóður Aust­ur­lands flokknum lán upp á 15 millj­ónir króna á fjórða veð­rétti og var þá búið að gera upp lánið við Lands­bank­ann. Það lán var greitt upp nokkrum dögum síðar ásamt lán­inu frá Kviku banka þegar Framsókn tók 70 millj­óna króna lán hjá Arion banka á þriðja veð­rétti, á eftir skuld­inni við Afl Spari­sjóð, seint í des­em­ber 2019.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn átti líka útistand­andi skamm­tíma­kröfur upp á 47,2 millj­ónir króna í lok síð­asta árs sem hann eign­færði og sjóð og banka­inni­stæðu upp á 29,1 milljón króna.

Skuldir flokks­ins í heild voru 211,4 millj­ónir króna en lækk­uðu um tæp­lega 22 millj­ónir króna milli ára.

Eigið fé félags­ins var nei­kvætt um síð­ustu ára­mót, líkt og það hafði verið árin á undan, en nú ein­ungis um 233 þús­und krónur. Til sam­an­burðar var það nei­kvætt um 19,2 millj­ónir króna árið áður og 56 millj­ónir króna í lok árs 2018.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

[adspot]Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga þriggja flokka; Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síð­asta árs. Kjarninn hefur fjallað um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á síð­ustu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár