Miðflokkurinn hagnaðist um 140 milljónir á þremur árum – Þorri tekna úr ríkissjóði

Launa­kostn­aður Mið­flokks­ins jókst um 125 pró­sent í fyrra og flokk­ur­inn keypti sé fast­eign. Tekjur flokks­ins, sem koma að uppi­stöðu úr rík­is­sjóði, munu drag­ast veru­lega saman eftir afhroð hans í síð­ustu kosn­ingum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Mið­flokks­ins voru 111 millj­ónir króna á árinu 2020. Alls komu 74 pró­sent þeirra úr rík­is­sjóði, 16 pró­sent frá Alþingi og 3,5 pró­sent frá sveit­ar­fé­lögum. Því komu 93,5 pró­sent af tekjum flokks­ins úr opin­berum sjóðum í form fram­laga.

Það sem upp á vantar voru að uppi­stöðu fram­lög ein­stak­linga og lög­að­ila og félags­gjöld. Framlög lög­að­ila rúm­lega helm­ing­uð­ust milli ára og þeir ein­stak­lingar sem greiddu flokknum hámarks­fram­lög koma nær allir úr for­ystu hans. Þar á meðal er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og Bergþór Ólason, hinn þing­maður hans.

Þá var flokk­ur­inn með 2,4 millj­ónir króna í tekjur í fyrra vegna vaxta­tekna á banka­inni­stæðum.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Mið­flokks­ins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var fjórði stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn á þingi á síð­asta kjör­tíma­bili. Eftir að tveir þing­menn gengu í flokk­inn úr Flokki fólks­ins snemma árs 2019 voru níu í þing­flokknum. Mið­flokk­ur­inn beið hins vegar afhroð í síð­ustu kosn­ingum, fékk 5,4 pró­sent atkvæða og þrjá menn kjörna. Einn þeirra yfir­gaf flokk­inn áður en kjör­bréfum var úthlutað og því telur þing­flokk­ur­inn tvo. Því munu fram­lög til flokks­ins drag­ast veru­lega saman á þessu kjör­tíma­bili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Keyptu sér fasteign

Rekstr­ar­kostn­aður jókst umtals­vert á milli ára, eða um 35 pró­sent, og var 69,3 millj­ónir króna. Þar munar mest um að laun og launa­tengd gjöld juk­ust um 125 pró­sent milli ára og voru 26,5 millj­ónir króna.

[adspot]Hagnaður af rekstri flokks­ins var samt sem áður 43,7 millj­ónir króna, sem þýðir að tæp­lega 40 pró­sent tekna end­uðu sem hreinn hagn­aður. Það var heldur minna en hann hagn­að­ist um árið 2019 þegar 66,8 millj­ónir króna sátu eftir þegar búið var að greiða fyrir allan rekstur Mið­flokks­ins. Hagnaður flokks­ins árið 2018 var 30,6 millj­ónir króna og því var sam­an­lagður hagn­aður Mið­flokks­ins á fyrstu þremur árum síð­asta kjör­tíma­bils 141,1 millj­ónir króna.

Mið­flokk­ur­inn keypti sér fast­eign á síð­asta ári, Í Hamra­borg í Kópavogi, sem er metin á 74 millj­ónir króna í árs­reikn­ingum flokks­ins. Hún myndar, ásamt 104,8 millj­ónir króna hand­bæru fé, uppi­stöð­una í eignum flokks­ins, sem metnar voru á 181 milljón króna um síð­ustu ára­mót.

Skuldir Mið­flokks­ins juk­ust mikið á síð­asta ári vegna áður­nefndra fast­eigna­kaupa, en flokk­ur­inn skuld­aði enn 53 millj­ónir króna vegna þeirra í lok árs 2020. Alls námu skuldir hans 56 millj­ónum króna og óráð­stafað eigið fé flokks­ins því 125,1 milljón króna um síð­ustu ára­mót.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga þriggja flokka; Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár