Auglýsingakostnaður Viðreisnar rúmlega áttfaldaðist á árinu 2020

Greidd félags­gjöld til Við­reisnar á síð­asta ári voru 15 þús­und krónur. Rekstr­ar­kostn­aður jókst umtals­vert og hagn­aður flokks­ins dróst saman um 20 millj­ónir króna milli ára. Framlög til flokka úr rík­is­sjóði voru stór­aukin á síð­asta kjör­tíma­bili.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Rekstr­ar­tekjur Við­reisnar í fyrra voru 72,5 millj­ónir króna. Nánast öll upp­hæðin kom úr opin­berum sjóðum og mest úr rík­is­sjóði, eða 54,9 millj­ónir króna. Þá voru 8,5 millj­ónir króna fram­lög frá Alþingi og tæp­lega 2,8 millj­ónir króna komu frá sveit­ar­fé­lögum þar sem Viðreisn á sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa.

Fjár­fram­lög lög­að­ila námu 1,8 milljón króna og ein­stak­lingar gáfu flokknum 4,8 millj­ónir króna í fyrra. Einu tveir ein­stak­ling­arnir sem gáfu meira en 300 þús­und voru þing­menn­irnir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sem er líka for­maður flokks­ins, og Jón Steindór Valdi­mars­son, sem missti þing­sæti sitt í síð­ustu kosn­ingum.

Aðrar tekjur flokks­ins voru félags­gjöld og vöru­sala upp á 15 þús­und krónur. Sá liður skrapp mikið saman milli ára, en hann skil­aði Viðreisn 565 þús­und króna tekjum 2019.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Við­reisnar sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var með alls fjóra þing­menn á síð­asta kjör­tíma­bili eftir að hafa fengið 6,7 pró­sent atkvæða í kosn­ingum 2017. Viðreisn bætti við sig 1,6 pró­sentu­stigi í síð­ustu kosn­ingum og einum þing­manni. Því munu fram­lög til flokks­ins aukast á þessu kjör­tíma­bili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Kostnaður jókst um 41 prósent milli ára

Kostn­aður við rekstur flokks­ins jókst um 20,2 millj­ónir króna milli ára, eða um 41 pró­sent, Sú hækkun var vegna launa og launa­tengdra gjalda, sem hækk­uðu um 12,7 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða um 63 pró­sent, og ann­ars rekstr­ar­kostn­aðar sem jókst um 7,5 millj­ónir króna, eða 26 pró­sent.

[adspot]Þeir liðir sem flokk­ast sem annar kostn­aður flokks­ins dróg­ust í flestum til­fellum saman. Einn hækk­aði hins vegar veru­lega en aug­lýs­inga­kaup fóru úr 1,9 millj­ónum króna árið 2019 í 15,8 millj­ónir króna í fyrra. Þau rúm­lega átt­föld­uð­ust því milli ára.

Hagnaður Við­reisnar í fyrra var 3,5 millj­ónir króna og dróst mikið saman frá fyrra ári þegar hann var 23,8 millj­ónir króna. Árið 2018 var hagn­aður Við­reisnar 2,3 millj­ónir króna og því hagn­að­ist flokk­ur­inn sam­tals um 29,6 millj­ónir króna á fyrstu þremur árum kjör­tíma­bils­ins.

Eignir Við­reisnar eru nær ein­vörð­ungu reiðufé. Flokk­ur­inn átti 25,1 milljón króna í hand­bært fé og 592 þús­und krónur í útistand­andi skamm­tíma­kröfum. Flokk­ur­inn er að sama skapi skuld­léttur, en skuldir hans voru 4,6 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Inni í þeirri tölu voru við­skipta­skuldir, ógreiddur kredit­korta­reikn­ingur og óupp­gerð stað­greiðsla og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga þriggja flokka; Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár