Vinstri græn högnuðust um 60 milljónir króna á síðasta ári

Flokkur for­sæt­is­ráð­herra fékk 92 pró­sent tekna sinna úr opin­berum sjóðum á árinu 2020. Hann þáði engin fram­lög frá lög­að­ilum. Hagnaður Vinstri grænna jókst samt sem áður um 55 pró­sent milli ára.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rekstr­ar­tekjur Vinstri grænna voru 148,5 millj­ónir króna á árinu 2020, sem var tæp­lega 5,3 millj­ónum krónum minna en flokk­ur­inn hafði í tekjur árið áður. Líkt og hjá öðrum stjórn­mála­flokkum kom þorri tekna úr opin­berum sjóðum. Alls komu 134 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og frá Alþingi og 1,9 millj­ónir króna frá sveit­ar­fé­lögum þar sem flokk­ur­inn á kjör­inn full­trúa. Því komu um 92 pró­sent tekna Vinstri grænna úr opin­berum sjóðum.

Flokk­ur­inn þáði ekki eina krónu frá lög­að­ilum í fyrra en voru 8,5 millj­ónir króna og inn­heimt félags­gjöld 3,3 millj­ónir króna.

Hagnaður Vinstri grænna var 60 millj­ónir króna á árinu 2020 og jókst um 55 pró­sent milli ára.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Vinstri grænna sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið og birtur á vef stofn­un­ar­innar í gær. Flokk­ur­inn fékk alls 11 þing­menn kjörna í kosn­ing­unum 2017 og 16,9 pró­sent atkvæða. Það gerði hann að næst stærsta flokknum á þing.

Vinstri græn töp­uðu hins vegar tveimur þing­mönnum til ann­arra flokka á kjör­tíma­bil­inu og fengu svo 12,6 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í sept­em­ber síð­ast­liðnum, sem skil­aði Vinstri grænum átta þing­mönnum.

Búast má við því að fram­lög til flokks­ins úr rík­is­sjóði verði fyrir vikið umtals­vert lægri á þessu kjör­tíma­bili en á því síð­asta enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði.

Aukin auglýsingakostnaður

Rekstr­ar­gjöld voru 89,4 millj­ónir króna og dróg­ust saman um 24 pró­sent milli ára. Nær allir kostn­að­ar­liðir annað hvort lækk­uðu eða breytt­ust lít­il­lega. Laun og launa­tengdur kostn­aður lækk­uðu til að mynda um 12 millj­ónir króna. Und­an­tekn­ingin frá því var kostn­aður vegna aug­lýs­inga sem hækk­aði um 40 pró­sent og var 22,1 milljón króna.

Vert er þó að taka fram að á árinu 2019 var hald­inn lands­fundur Vinstri grænna og gefin út veg­leg bók um sögu hreyf­ing­ar­innar í til­efni af 20 ára afmæli hennar. Sam­an­lagður kostn­aður við það á því ári var rúm­lega 20 millj­ónir króna.

[adspot]Flokk­ur­inn átti eignir upp á 118,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þar af var hand­bært fé 112,8 millj­ónir króna en það nán­ast tvö­fald­að­ist frá árinu áður.

Vinstri græn eru skuld­léttur stjórn­mála­flokkur, heild­ar­skuldir hans voru 3,7 millj­ónir króna í lok síð­asta árs, og skuld­irnar lækk­uðu úr 9,3 millj­ónum krónum á síð­asta ári.

Eina fast­eignin sem flokk­ur­inn á er hús­næði við Brekku­götu á Akureyri sem bók­fært er á fimm millj­ónir króna. Fast­eigna­mat þess er hins vegar 14,7 millj­ónir króna.

Helm­ingur fram­laga frá ein­stak­lingum á síð­ustu ári komu frá þing­mönnum og starfs­mönnum Vinstri grænna.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

[links]Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga eins flokks, Pírata, vegna síð­asta árs. Kjarninn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár