Píratar skiluðu gildum ársreikningi of seint til Ríkisendurskoðunar

Píratar skil­uðu árs­reikn­ingi of seint til Rík­is­end­ur­skoð­unar Allir flokkar sem eiga full­trúa á þingi nema einn hafa skilað inn gildum árs­reikn­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­unar, en frestur til þess rann út fyrir rúmum einum og hálfum mán­uði.

Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmenn Pírata.
Halldóra Mogensen og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­menn Pírata. Mynd: Aðsend

Sjö stjórn­mála­flokkar sem sæti eiga á Alþingi skil­uðu árit­uðum árs­reikn­ingi sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar áður en lög­bund­inn frestur til þess rann út 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sá eini sem skil­aði ekki á réttum tíma voru Píratar, en árs­reikn­ingur þeirra barst ekki fyrr en 23. nóv­em­ber. Í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að athuga­semdir hafa verið gerðar af Rík­is­end­ur­skoðun við reikn­ing­inn og að hlut­að­eig­andi stjórn­mála­sam­tök, sem eru Píratar, hafi fengið frest til að bæta úr ann­mörk­unum. „Að því loknu að því skil­yrði upp­fylltu að bætt hafi verið að fullu úr ann­mörkum verða upp­lýs­ing­arnar birtar á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar.“

Reikn­ingar allra ann­arra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi hafa verið birtir á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Kjarninn hefur þegar birt umfjöllun um þá alla.

[adspot]Píratar fóru líka yfir lög­bund­inn frest til að skila inn réttum árs­reikn­ingi í fyrra, en reikn­ingur flokks­ins var þá ekki birtur á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrr en 11. des­em­ber. Þá barst reikn­ingur Flokks fólks­ins líka seint, en honum var skilað á réttum tíma í ár.

Eyddu nánast öllu í rekstur

Á árinu 2019 högn­uð­ust Píratar um 2,6 millj­ónir króna. Tekjur flokks­ins, sem eru nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­um, voru 86 millj­ónir króna. Mest mun­aði um fram­lög úr rík­is­sjóði til flokks­ins sem námu tæpum 83 millj­ónum króna.

Rekstr­ar­kostn­aður Pírata var 82 millj­ónir króna. Þar af kost­aði rekstur aðal­skrif­stofu 65 millj­ónir króna og rekstur þing­flokks Pírata 15,1 milljón króna. Það þýðir að 95,5 pró­sent af tekjum Pírata fór í rekstr­ar­kostnað á síð­asta ári.

Flokk­ur­inn skar sig úr í stjórn­mála­flokka­flór­unni með því að eyða svona stórum hluta tekna sinna í rekstur. Hinir lögðu flestir tugi millj­óna króna til hliðar á árinu 2019. Sömu sögu er að segja um síð­asta ár, og kosn­inga­sjóðir þeirra fyrir þing­kosn­ing­arnar sem fóru fram í sept­em­ber því digrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár