Kjálkanes á eigið fé upp á 25,5 milljarða króna og borgaði tvo milljarða króna í arð

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar seldi bréf í henni fyrir 17 millj­arða króna í fyrra. Félagið skuldar nán­ast ekk­ert og á eigið fé upp á 25,5 millj­arða króna. Eigendur þess eru tíu ein­stak­lingar.

Björgólfur Jóhannsson.
Björgólfur Jóhanns­son. Mynd: Samherji

Kjálka­nes hagn­að­ist um 11,8 millj­arða króna í fyrra. Fjár­fest­inga­tekjur félags­ins á árinu 2021 voru 11,8 millj­arðar króna, sem er 10,6 millj­örðum krónum meiri slíkar tekjur en Kjálka­nes hafði á árinu 2020. Hagnaður félags­ins jókst um 10,7 millj­arða króna milli ára og skýrist sú aukn­ing fyrst og fremst af sölu­hagn­aði hluta­bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni á síð­asta ári, en Kjálka­nes er enn annar stærsti eig­andi hennar. Síld­ar­vinnslan var skráð á markað á árinu 2021 og sam­hliða þeirri skrán­ingu seldi Kjálka­nes bréf fyrir alls 17 millj­arða króna, en bók­færður sölu­hagn­aður var níu millj­arðar króna.

Eignir Kjálka­nes voru 28,5 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Þær juk­ust um 9,9 millj­arða króna milli ára. Bókfært eigið fé var 25,5 millj­arðar króna um liðin ára­mót og eig­in­fjár­hlut­fallið, þar sem félagið skuldar afar lítið, var 89,2 pró­sent. Eigið fé Kjálka­nes jókst um 82 pró­sent milli ára, eða um 11,4 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í nýlega birtum árs­reikn­ingi Kjálka­ness. Stjórn félags­ins lagði til að greiddur yrði út tveggja millj­arða króna arður til hlut­hafa á árinu 2022 á grund­velli þess­arar frammi­stöðu.

Eiga í Síldarvinnslunni og Sjóvá

Hlut­haf­arnir eru tíu tals­ins, en félagið er frá Grenivík. Á meðal þeirra er Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, en aðrir hlut­hafar eru fólk sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum, meðal ann­ars systk­ini hans. Systk­ina­hóp­ur­inn á 8,67 pró­sent hlut hver. Stærstu ein­stöku eig­end­urnir eru Ingi Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, og Anna Guð­munds­dóttir, sem eiga 22,54 pró­sent hlut hvor. Bæði Ingi og Anna sitja í stjórn Síld­ar­vinnsli­unnar

[adspot]Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Gjögur, sem heldur á 2,5 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta á Íslandi, er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, sem á enn 17,44 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni sem met­inn var á 9,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Auk þess á Kjálka­nes 34,55 pró­sent hlut í SVN eigna­fé­lagi, stærsta eig­anda trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvá, sem met­inn var á 2,6 millj­arða króna. Björgólfur er stjórn­ar­for­maður Sjóvá.

Rauk upp vegna loðnu

Síld­ar­vinnslan, stærsta eign Kjálka­ness, var skráð á markað í maí í fyrra. Miðað við útboðs­gengi var virði hennar 101,3 millj­arðar króna við skrán­ingu. Það hefur hækkað gríð­ar­lega síðan þá, en við lok við­skipta í gær var félagið metið á 160 millj­arða króna.

[links]Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í félag­inu hófst af alvöru í fyrra­haust í aðdrag­anda þess að til­kynnt var um úthlutun á 904 þús­und loðnu­kvóta, þeim mesta sem úthlutað hafði verið í tvo ára­tugi. Síld­ar­vinnslan var á meðal þeirra útgerða sem fengu mest úthlutað, eða 18,5 pró­sent alls kvóta sem fór til inn­lendra aðila.

Þann 23. sept­em­ber 2021 var mark­aðsvirði félags­ins tæp­lega 116 millj­arðar króna. Næstu vik­una hækk­aði virði bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni um tæp 13 pró­sent og dag­inn áður en til­kynnt var um loðnu­kvót­ann var mark­aðsvirðið rúm­lega 130 millj­arðar króna. Dag­inn eft­ir, þegar til­kynnt var um umfang úthlut­aðs loðnu­kvóta, hækk­uðu bréfin um níu pró­sent.

Í dag er mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar, líkt og áður sagði, 160 millj­arðar króna og hefur hækkað um 44 millj­arða króna frá 23. sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár