Eru ekki að selja Vísi til Samherja, heldur til Síldarvinnslunnar

For­stjóri Vísis segir að gagn­rýni á sölu útgerð­ar­innar til Síld­ar­vinnsl­unnar ekki hafa komið sér á óvart. Hann skilji þó ekki að salan skuli vera for­senda umræðu um hækkun gjalda á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

Pétur Pálsson, forstjóri Vísis.
Pétur Pálsson, for­stjóri Vísis. Mynd: Mynd. SA

Pétur Haf­steinn Pálsson, for­stjóri Vísis og stærsti ein­staki eig­andi útgerð­ar­innar áður en hún var seld til Síld­ar­vinnsl­unnar í sumar, segir gagn­rýni á söl­una ekki hafa komið á óvart. Það sé þó mik­il­vægt að hafa í huga að það skipti máli hver kaup­and­inn er. Hann sé Síld­ar­vinnslan en ekki Samherji, þótt Samherji sé stærsti ein­staki hlut­haf­inn með 32,64 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. „Ef félagið héti Samherji, sem dæmi, væru miklar líkur á þeir gætu tekið stóran hluta af þessum bol­fiski inn í vinnsl­urnar sínar á Dalvík og Akureyri. Síld­ar­vinnslan er ekki með neina slíka fram­leiðslu­getu. En við erum líka mjög ánægð með það að kjöl­festu­fjár­fest­arnir í Síld­ar­vinnsl­unni séu Samherji, Gjög­urs­fólkið, fólk og fyr­ir­tæki sem við þekkjum mjög vel að góðu einu og líf­eyr­is­sjóðir. Sam­setn­ing hlut­hafa er mjög flott.“

Það sé samt ekki Samherji sem sé að kaupa. „Þetta er almenn­ings­fyr­ir­tæki sem er að kaupa því það vantar það sem við höfum.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali við Pétur sem var birt í auka­blað­inu 200 mílum sem fylgdi með Morg­un­blað­inu um liðna helgi.

Helstu verðmætin aflaheimildir

Tilkynnt var um sölu Vísis, sem er í eigu sex systk­ina, í júlí og sölu­verðið þá sagt 31 millj­arðar króna. Það skipt­ist í yfir­töku skulda upp á ell­efu millj­arða króna, sex millj­arða króna greiðslu í reiðufé og 14 millj­arða króna sem greið­ast með hluta­bréfum. Sam­keppn­is­eft­ir­litið þarf að sam­þykkja söl­una áður en hún verður frá­gengin en frá því að greint var frá áformunum hafa hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni hækkað umtals­vert í verði, og verð­mið­inn því sömu­leiðis hækkað, alls um rúm­lega fjórð­ung. Virði þeirra hluta­bréfa sem syst­k­ina­hóp­­ur­inn sem á nú Vísi fær sem afgjald fyrir fyr­ir­tækið hefur því þegar auk­ist um 3,7 millj­­arða króna, upp í 17,7 millj­­arð króna.

[adspot]Mikið hefur verið rætt um að kaup­verðið sé hátt miðað við 797 millj­óna króna hagnað Vísis í fyrra og virði fasta­fjár­muna ( fast­eignir, skip, vélar og tæki) sem metnir eru á 5,3 millj­arða króna.

Helstu bók­færðu eignir Vísis utan fasta­fjár­munir eru afla­heim­ildir sem metnar voru á 90,9 millj­ónir evra, alls um 13,4 millj­arða króna á árs­loka­gengi síð­asta árs. Afla­heim­ildir eru nær und­an­tekn­ing­ar­laust van­metnar í reikn­ingum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, en fyrir við­skiptin var heild­ar­upp­lausn­ar­virði úthlut­aðs kvóta á Íslandi áætlað um 1.200 millj­arðar króna, miðað við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Bergi Hug­inn í fyrra. Kaupin á Vísi eru langt undir því verði.

Upplausnarvirðið gæti mögulega hafa náð 60 milljörðum

Pétur segir í við­tal­inu að sölu­verðið sé sann­gjarnt. Mark­að­ur­inn verð­meti ekki sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á upp­lausn­ar­verði. „Það sjá allir að þetta eru háar upp­hæðir þótt megnið hafi verið greitt með hluta­bréfum. Við vissum að við myndum fá gagn­rýni frá þeim sem myndu segja að þetta væri allt of mikið og frá þeim sem myndu segja að þetta væri allt of lítið. [...] Að ræða um eitt­hvað jað­ar­verð á kvóta er bara rugl. Það vita það allir að rekstr­ar­virði kvóta er kannski um helm­ingur af því sem hann selst á í dag – s.s. raun­veru­legt virði. Við erum að fá sann­gjarnt verð.“

Pétur við­ur­kennir þó í við­tal­inu að upp­lausn­ar­virði Vísis gæti mögu­lega náð 60 millj­örðum króna en að því myndi líka fylgja kostn­aður, til dæmis skatt­greiðslur, auk þess sem það séu ekki ein­ungis pen­ingar sem skipta máli. „Það var mark­mið okkar að starfs­menn­irnir og allir sem hafa ein­hverra hags­muna að gæta af starf­sem­inni fyllist frekar til­hlökkun en kvíða vegna söl­unnar – að þessar 200 til 250 fjöl­skyldur plús sam­fé­lagið okkar beri ekki skaða af. Á það er ekki hægt að setja verð­miða.“

Gagnrýni stjórnmálamanna einkennileg

Í við­tal­inu við 200 mílur segir Pétur gagn­rýn­ina sem fram hafi komið á söl­una ekki hafa verið ósann­gjarna né óvægna, en ýmis­legt hafi þó komið honum á óvart. „Ein­kenni­leg­ast í þessu hefur verið að stjórn­mála­menn, sem hafa talað vel um opin­bera hluta­bréfa­mark­að­inn, hafi gagn­rýnt þetta af eins miklum krafti og raun ber vitni. Tali þannig að það, að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sam­ein­ist félagi sem skráð er á mark­aði og opni þannig fyrir að almenn­ingur geti farið að kaupa í fyr­ir­tæk­inu og orðið þátt­tak­endur í rekstr­inum, skuli vera for­senda umræðu um hækkun gjalda á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, sem þýðir að almenn­ingur fái minna út úr sinni fjár­fest­ingu.“

Á meðal þeirra sem gagn­rýndi kaupin var Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, sem sagði við fjöl­miðla eftir að kaupin voru kunn­gerð að hún hefði áhyggjur af þess­ari miklu sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. „Það er mín skoðun að það þurfi að end­­ur­­skoða það reglu­verk, bæði hvað varðar kvóta­­þakið og tengda eig­end­ur […] Það þarf að ræða gjald­­tök­una, ekki síst þegar við sjáum þennan til­­­­­flutn­ing á auð­­­magni milli aðila.“

Katrín sagði þetta vera grund­vall­ar­á­­stæðan fyrir því að svo margir séu ósáttir við kvóta­­kerf­ið, en í könnun sem Gallup gerði í fyrra­haust kom fram að 77 pró­sent aðspurðra styddi að mark­aðs­­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­­ar­inn­­ar. Ein­ungis 7,1 pró­­sent sögð­ust and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ing­u. Aukin sam­þjöppun muni ekki auka sátt um grein­ina að mati for­sæt­is­ráð­herra.

Blokk með næstum fjórðung kvótans

Verði kaupin á Vísi sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi fisk­veið­i­­heim­ildir Síld­­­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­­­sent hámark sem hver útgerð má sam­­­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta. Vísir hélt á 2,16 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta þegar greint var frá því hvernig hann skipt­ist á milli útgerða í nóv­­­em­ber í fyrra. Síld­­­ar­vinnslan var þá skráð með 9,41 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta.

[links]Þegar við bæt­ist 1,03 pró­­sent kvóti sem Bergur Hug­inn, sem Síld­­ar­vinnslan lauk kaupum á í fyrra, heldur á fer sam­­stæðan yfir tólf pró­­sent hámark­ið.

Stærstu eig­endur Síld­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­skyld­u­­­bönd­um, meðal ann­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­ur.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að þessir aðil­ar, Síld­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­ur, eigi mögu­lega að telj­ast tengdir í skiln­ingi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eft­ir­litið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu sam­tals á 22,14 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­em­ber í fyrra. Nú bæt­ist 2,16 pró­­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mög­u­­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár