Kvóti Vísis var bókfærður á 13,4 milljarða í lok síðasta árs – Þungur gjalddagi lána á næsta ári

Í síð­asta mán­uði var til­kynnt um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Vísi á 31 millj­arð króna. Kaup­verðið virð­ist hátt miðað við að hagnað Vísis í fyrra og virði skipa og vinnslu. Það sem verið var að kaupa eru þó fyrst og fremst kvóti.

Vísir er með stóra hlutdeild í úthlutuðum þorskkvóta.
Vísir er með stóra hlut­deild í úthlut­uðum þorsk­kvóta. Mynd: Ríkisendurskoðun

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísir hf. hagn­að­ist um 797 millj­ónir króna í fyrra ef miðað er við gengi evru í árs­lok 2021. Velta fyr­ir­tæk­is­ins var um tíu millj­arðar króna á því ári og rekstr­ar­hagn­aður – hagn­aður fyrir afskriftir, skatta og fjár­magns­kostnað – var um tveir millj­arðar króna. Stjórn Vísis ákvað að arð­greiðsla til hlut­hafa, sem eru sex systk­ini, ætti að vera ein milljón evra eða um 148 millj­ónir króna á árs­loka­gengi síð­asta árs.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Vísis fyrir síð­asta ár sem nýverið var birtur í árs­reikn­inga­skrá Skatts­ins.

Tilkynnt var um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á öllu hlutafé í Vísi 10. júlí síð­ast­lið­inn. Útgerð­ar­ris­inn frá Nes­kaup­stað sagð­ist vera að borga 31 millj­arð króna fyrir Vísi. Sú tala skipt­ist þannig að skuldir upp á ell­efu millj­arða króna yrðu yfir­teknar, sex millj­arðar króna yrðu greiddir í reiðufé og 14 millj­arðar króna með hluta­bréfum í Síld­ar­vinnsl­unni, þar sem miðað yrði með­al­tals­gengi síð­ustu fjög­urra vikna á undan við­skipt­unum. Frá þeim tíma hefur gengi bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni hækkað um tæp átta pró­sent og virði þeirra hluta­bréfa sem systk­ina­hóp­ur­inn sem á nú Vísi fær sem afgjald fyrir fyr­ir­tækið hefur þegar auk­ist um 1,1 millj­arð króna, upp í 15,1 millj­arð króna.

Margt bendir til þess að aflaheimildir séu vanmetnar í ársreikningi

En hvað er verið að kaupa? Helstu bók­færðu eignir Vísis eru ann­ars vegar afla­heim­ildir sem metnar voru á 90,9 millj­ónir evra, alls um 13,4 millj­arða króna á árs­loka­gengi síð­asta árs. Afla­heim­ildir eru nær und­an­tekn­ing­ar­laust van­metnar í reikn­ingum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, en fyrir við­skiptin var heild­ar­upp­lausn­ar­virði úthlut­aðs kvóta á Íslandi áætlað um 1.200 millj­arðar króna, miðað við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Bergi Huginn í fyrra.

Kaupin á Vísi eru langt undir því verði. Heild­ar­eignir félags­ins, miðað við gengi evru í dag, eru í árs­reikn­ingi metnar á um 19 millj­arða króna. Af því eru fasta­fjár­munir – fast­eignir, skip, vélar og tæki – metnir á 5,3 millj­arða króna.

Helstu verð­mæti Vísis eru því úthlut­aðar afla­heim­ildir sem bók­færðar eru á um 12,6 millj­arða króna miðað við gengi evru í dag. Aðrar eignir, eins og eign­ar­hlutir í hlut­deild­ar­fé­lögum, eru mun minna virði.

[adspot]Vísir heldur á 2,16 pró­sent af úthlut­uðum kvóta hér­lendis, að lang­mestu leyti í bol­fiski­fiski eins og þorski og ýsu. Ef miðað er við kaup­verðið á Bergi Huginn ætti virði afla­heim­ild­anna að vera rúm­lega tvisvar sinnum meira, eða 25,8 millj­arðar króna. Þá er þó horft fram­hjá því að fisk­teg­undir eru mis­mun­andi verð­mætar. Verð­mæt­ustu afla­heim­ild­irnar í þorski, þar sem Vísir er með gríð­ar­lega sterka stöðu.

Ef horft er til nýlegra við­skipta með afla­heim­ildir þorsks þá hefur kaup­verð á þeim verið í kringum fjögur þús­und krónur á kíló. Miðað við þá tölu ætti bara úthlut­aður kvóti Vísis í þorski – 5,4 pró­sent alls slíks kvóta, eða í kringum tíu þús­und tonn – einn og sér að vera í kringum 40 millj­arða króna virði. Þá á eftir að reikna með úthlut­uðum afla­heim­ildum í öðrum teg­undum.

Skuldsett fyrirtæki með þunga gjalddaga framundan

Miðað við þetta má ætla að Vísir hafi fyrst og síð­ast verið að selja Síld­ar­vinnsl­unni kvóta. Og það á frekar lágu verði, þrátt fyrir að á fjórða tug millj­arða króna sé gríð­ar­legir pen­ingar í hugum flestra.

Ástæða þessa gæti verið falin í því að Vísir er afar skuld­sett fyr­ir­tæki. Fjár­magns­kostn­aður þess á árinu 2020 var um 500 millj­ónir króna og í fyrra var hann litlu lægri, eða um 430 millj­ónir króna.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Vísis fyrir árið 2020 áttu 46,3 millj­ónir evra, um 6,4 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag, af lang­tíma­skuldum fyr­ir­tæk­is­ins við lána­stofn­anir að vera á gjald­daga á árinu 2022. Í nýbirtum árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins hefur sá þungi gjald­dagi færst til árs­ins 2023 og er nú 50,1 millj­ónir evra, eða 6,9 millj­arðar króna. Lang­tíma­skuldir Vísis juk­ust um 2,2 millj­ónir evra, um 300 millj­ónir króna, á síð­asta ári og voru ell­efu millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þær skuldir tekur Síld­ar­vinnslan yfir sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna.

Kaupin eru afar umdeild og hafa víða vakið hörð við­brögð. Verði þau sam­þykkt af hlut­hafa­fundi Síld­ar­vinnsl­unnar hf. og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi fisk­veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­sent hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta.

[adspot]Mikil sam­­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­­stak­­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­­ar­­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­­fall væri komið upp í rúm­­lega 67 pró­­sent. Sam­þjöpp­unin eykst enn við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Sam­hliða þess­­ari þróun hefur hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­­ar­­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­­­arðar króna á umræddu tíma­bili, sam­­kvæmt sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­­­hæð fór undir 30 pró­­­sent til íslenskra rík­­­is­ins, eig­anda auð­lind­­­ar­inn­­­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veið­i­­gjalda. En rúm­­­lega 70 pró­­­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna. Gera má ráð fyrir að hagn­aður geirans hafi verið gríð­ar­legur í fyrra og að hann verði mjög mik­ill í ár lík­a.

Sam­herji og mögu­lega tengdir aðilar með næstum fjórð­ung

Miðað við nýjasta birta lista Fiski­­­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­­­ar­vinnslan, ásamt dótt­­­ur­­­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 9,41 pró­­­sent hans. Þá keypti Síld­­ar­vinnslan, líkt og áður sagði, útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið Berg Hug­inn á árinu 2020 en það heldur á 1,03 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti þá nið­­­ur­­­stöðu frum­­­mats síns í febr­­­úar 2021 að til staðar væru vís­bend­ingar um um yfir­­­­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­­­­leg yfir­­­­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­­­­ar­vinnsl­unn­i. ­Síðan að sú nið­­­ur­­­staða var birt hef­­­ur, sam­­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, verið kallað eftir gögnum frá stjórn­­­völd­um, Sam­herja, Síld­­­ar­vinnsl­unni og öðrum tengdum aðilum vegna máls­ins. Sú gagna­öflun hafi gengið vel en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráð­ist verði í for­m­­­lega rann­­­sókn á mál­in­u.

Stærstu eig­endur Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, sem var skráð á hluta­bréfa­­markað í fyrra, eru Sam­herji hf. (32,64 pró­­sent) og Kjálka­­nes ehf. (17,44 pró­­sent), ­fé­lags í eigu Björg­­­ólfs Jóhanns­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­skyld­u­­­bönd­­­um. Auk þess á Eign­­ar­halds­­­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­­ars í eigu Sam­herja og Björg­­ólfs, 3,79 pró­­sent hlut. Sam­an­lagt halda því þessir þrír aðilar á um 53,9 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni og skipa þrjá af fimm stjórn­­­ar­­mönnum þess.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með fjórðu mestu afla­hlut­­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­­sögu allra sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­­sent. ­Út­­­­­­­­­gerð­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,1 pró­­­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­­­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­­nes, heldur svo á 2,5 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­­­um.

Þessir aðil­­­ar: Síld­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­­legt að séu tengd­ir, héldu því sam­tals á 22,14 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­em­ber í fyrra. Nú bæt­ist 2,16 pró­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mögu­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Innherji greindi frá því fyrir skemmstu að kaupin á Vísi hefðu verið leidd af Jakobi Bjarna­syni, stjórn­ar­for­manni Vísis fyrir hönd fjöl­skyld­unnar sem á fyr­ir­tækið, og Baldvini Þor­steins­syni, sem erfði fyrir nokkrum árum stóran hlut í Samherja frá for­eldrum sínum. Faðir Baldvins, Þor­steinn Már Bald­vins­son, og Jakob, sem starf­aði lengi í banka­kerf­inu, eru nánir vinir og tengsl þeirra ná langt aftur í tím­ann sam­kvæmt Innherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár