Hvað segja þau um kaup Síldarvinnslunnar á Vísi?

Vaxandi tor­tryggni. Kraum­andi gremja. Aukinn ójöfn­uður. Áhyggjur af sam­þjöppun. Engar áhyggjur. Að minnsta kosti mjög litlar. Þetta er meðal þess sem stjórn­mála­menn hafa að segja um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Formennirnir: Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson.
For­menn­irnir: Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son. Mynd: Bára Huld Beck

Þetta gerð­ist mjög hratt. Tilboð Síld­ar­vinnsl­unnar í útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi barst aðeins tveimur vikum áður en gengið var frá söl­unni. Stjórn­endur Síld­ar­vinnsl­unnar sáu „upp­gang­inn í okkar land­vinnslu,“ segir Pétur Haf­steinn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Vísis, „þeir sáu sér leik á borði og nálg­uð­ust okkur.“

Tilboðið var „mjög sann­gjarnt“ segir hann við Vík­ur­fréttir um þessi rúm­lega 30 millj­arða króna við­skipti sem vakið hafa upp mikla umræðu um sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, segir að með kaup­unum verði „dansað“ sitt hvorum megin við kvóta­þakið en lög segja að tengdir aðilar megi ekki halda á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum kvóta á hverjum tíma.

En hvað hafa stjórn­mála­menn sagt um kaupin í fjöl­miðlum síð­ustu daga?

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna

„Ég hef á­hyggjur af þess­ari miklu sam­þjöppun í sjávar­út­vegi.“

Og:

„Nú er þetta auð­vitað ekki gengið í gegn. Sam­keppn­is­eft­ir­litið er með þetta til skoð­unar og Fiski­stofa sömu­leiðis með það verk­efni að meta hvort að þessar afla­heim­ildir fari yfir kvóta­þakið. En það er mín skoðun að það þurfi að end­ur­skoða það reglu­verk, bæði hvað varðar kvóta­þakið og tengda eig­endur.“

Og:

„Það þarf að ræða gjald­tök­una, ekki síst þegar við sjáum þennan til­flutn­ing á auð­magni milli aðila.“

Og:

„Þetta er grund­vallar­á­stæðan fyrir því að svo margir eru ósáttir við kvóta­kerfið. Því að á sama tíma og við skil­greinum auð­lindir hafs­ins sem þjóð­ar­eign, þá sjáum við sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi og gríð­ar­legan auð safn­ast á fárra manna hendur. Þetta er líka til skoð­unar hjá mat­væla­ráð­herra og varðar gjald­tök­una og líka þegar um er að ræða svona til­færslu á auð­magni eins og sést í þessu dæmi.“

Og:

„Síðan eðli­lega hefur maður áhyggjur af áhrifum á byggð­ar­lögin. Við erum auð­vitað með sögu þar sem við höfum oft séð að hag­ræð­ing hefur ráðið för en ekki sjón­ar­mið um sam­fé­lags­lega ábyrgð eða byggða­festu. Þannig að ég hef líka áhyggjur af því.“

Og:

„Aukin sam­þjöppun eykur ekki sátt um grein­ina.“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins

„Í Grinda­vík er vel rekin, um­fangs­mikil starf­semi. Það er engin á­stæða til að ætla annað en að svo verði á­fram.“

Og:

„Það eru margir sem ala á sundr­ung vegna kerf­is­ins.“

Og:

„Frá því fram­salið var gefið frjálst og ef við horfum á sam­ein­ingar svona þrjá­tíu ár aftur í tím­ann þá hafa þær heilt yfir séð verið til þess fallnar að auka arð­semi veið­anna sem er mik­il­vægt fyrir þjóð­ar­búið í heild. Varðandi sam­þjöpp­un­ina þá eru lög og reglur sem gilda og sam­keppn­is­sjón­ar­mið sem verður horft til. Nú fer þetta í þann far­veg og ég vænti þess að það taki tíma og ég fylgist með eins og aðrir hvað kemur út úr þeirri athugun.“

Og:

Þótt „sárs­auki hafi fylgt eig­enda­skiptum áður fyrr þegar ekki var sam­ræmi milli af­kasta­getu flota og fiski­miða séu aðrir tímar. Nú fer þetta bara í venju­legan far­veg sam­kvæmt þeim at­hug­unum sem um það gilda.“

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins

„Ég myndi segja að þetta hafi nú komið mér svo­lítið á óvart.“

Og:

„Við höfum séð stöðuga sam­þjöppun á þessum mark­aði en við höfum líka séð tals­verðan fjöl­breyti­leika. Það er þó þannig að þessi fyr­ir­tæki eru að keppa á stórum mark­aði úti í heimi og maður skilur alveg að þessi fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem hafa kannski verið í rekstri í fjöru­tíu, fimm­tíu ár séu farin að velta því fyrir sér hvað ger­ist næst.“

Og:

„Ég held að þetta breyti svo­lítið þessum hugs­un­ar­hætti um að við séum með fjöl­breytta útgerð ef við verðum fyrst og fremst með mjög fáa mjög stóra aðila sem allir banka í kvóta­þakið að þá hlýtur það að kalla á ann­ars konar gjald­töku.“

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

„Og eftir því sem fleiri svona dæmi, eins og við erum að horfa upp á núna eiga sér stað, því meiri gremja kraumar undir.“

„Kvótinn erf­ist, fer á milli kyn­slóða og safn­ast á fárra manna hendur. Þetta verður til þess að sam­fé­lags­gerðin okkar þró­ast í óæski­lega átt. Við erum að færa stór­út­gerð­inni sem malar gull auð­lind­ina okkar á silf­ur­fati.“

Og:

„Sam­þjöpp­unin und­an­farin ár hefur sífellt auk­ist á meðan kvóta­kerfið er lokað þ.e. nýliðun í grein­inni er nán­ast ómögu­leg. Það er bara dag­ljóst hvert svona þróun leiði: Það er verið að búa til elítu í land­inu sem hagn­ast á auð­lindum þjóð­ar­innar.“

Og:

„Stór­út­gerðin malar gull, sem væri ágætt ef hún skil­aði þá sann­gjörnum hlut til þjóð­ar­innar en veiði­gjöldin eru þannig að þau eru til skammar, leyfi ég mér að segja.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar

„Ég vil meina það að það sé meiri­hluti á þingi fyrir því að fara í þessar breyt­ingar, til þess að auka gegn­sæi, til þess að tryggja réttan hlut þjóð­ar­innar – til að taka á þess­ari sam­þjöppun.“

Og:

„Meðan að VG er búin að binda trúss sitt við skip minni­hlut­ans, sem hefur engar áhyggjur af þess­ari þróun þá mun ekk­ert breyt­ast. Sam­fé­lags­lega ábyrgðin felst í því að rík­is­stjórnin, með VG í broddi fylk­ingar, vill ekki neinar breyt­ingar.“

Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi

„Sporin hræða í raun og veru. Í ljósi þess að það hefur ýmis­legt gerst hérna á Suð­ur­nesjum sem hefur orðið þess vald­andi að kvót­inn hefur horfið af svæð­inu – við þekkjum sög­una – Keflavík var einu sinni stór útgerð­ar­bær en það er ekki til sporður hér lengur.“

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

„Nei, ég ótt­ast ekki um störfin [í Grinda­vík] heldur lítum við þetta bara björtum augum, að svona öflug fyr­ir­tæki séu að veðja á okkur til upp­bygg­ingar.“

Og:

„Það sem að við búum vel við [í Grinda­vík] er að við erum með mikla þekk­ingu og öfl­ugt starfs­fólk í fisk­vinnsl­unni og í sjáv­ar­út­vegs­málum. Við erum vel stað­sett varð­andi útflutn­ings­markað og annað slíkt. Þá hefur Vísir fjár­fest mikið í land­vinnsl­unni sinni hér og það er erf­ið­ara að flytja hana eitt­hvert heldur en að sigla tog­ur­unum. Þannig að þetta all saman róar mann og gefur manni von um að hér verði frek­ari upp­bygg­ing heldur en annað.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og oddviti Samfylkingarinnar í borginni

„Fréttir og við­töl af kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík er eins og sena úr Ver­búð­inni. Bók­staf­lega.“

Og:

„Greining [Þórðar Gunn­ars­sonar í grein á Vísi] á kaup­verð­inu bendir ein­dregið til þess að kaup­verðið taki EKKI mikið mið af rekstri eða rekstr­ar­ár­angri Vísis heldur skýrist fyrst og fremst af hlut­deild Vísis í þorsk­kvót­anum - einmitt, kvót­anum sem er eða á að heita þjóð­ar­eign.“

Og:

„Helstu fyr­ir­tæki lands­ins í sjáv­ar­út­vegi eru með öðrum orðum að lýsa því yfir með verð­lagn­ing­unni að ekk­ert sé að marka orð og fyr­ir­heit stjórn­mál­anna um að inn­heimta eigi eðli­legan arð af auð­lind­inni þannig að þeir fjár­munir renna til þjóð­ar­innar. Og að engar breyt­ingar á því séu lík­legar. Á sama tíma horfum við upp á van­fjár­magnað heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfi án þess að lausnir á því séu í sjón­máli. Er eðli­legt að við­brögð stjórn­mál­anna tak­mark­ist við umræðu um kvóta­þak og sam­keppn­is­sjón­ar­mið? Á þetta bara að vera svona?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár