Dagur B.: „Á þetta bara að vera svona?“

„Fréttir og við­töl af kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík er eins og sena úr Ver­búð­inni. Bók­staf­lega.“ Þetta segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, er ekki par hrif­inn af mörgum þeim fréttum og við­tölum af kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík. Hann segir umfjöll­un­ina vera eins „sena úr Ver­búð­inni. Bók­staf­lega“.

Borg­ar­stjór­inn greinir frá þessum skoð­unum sínum í færslu á Facebook í morgun og lætur henni fylgja tengil á grein sem Þórður Gunn­ars­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi blaða­maður, ritar. Fyr­ir­sögn grein­ar­innar er „Verð­lagn­ing Vísis í sam­runa inn í Síld­ar­vinnsl­una“ og í henni kemst Þórður að þeirri nið­ur­stöðu að for­svars­menn Vísis og Síld­ar­vinnsl­unnar hafi náð „lend­ingu um verð“ sem bæði taki til­lit til rekstr­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins sem sé tölu­vert lægra en upp­lausn­ar­virði afla­heim­ilda Vísis og verð­mætis afla­heim­ilda. „Ef til vill er hér komin upp­skrift að verð­lagn­ingu óskráðra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í þeirri sam­runa­hr­inu sem þarf að eiga sér stað á næstu árum, svo íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki geti stað­ist erlendri sam­keppni snún­ing.“

[adspot]

Dagur er á öðru máli. „Með­fylgj­andi grein­ing á kaup­verð­inu bendir ein­dregið til þess að kaup­verðið taki EKKI mikið mið af rekstri eða rekstr­ar­ár­angri Vísis heldur skýrist fyrst og fremst af hlut­deild Vísis í þorsk­kvót­anum. Einmitt, kvót­anum sem er eða á að heita þjóð­ar­eign.“

[links]Hann skrifar að helstu fyr­ir­tæki lands­ins í sjáv­ar­út­vegi séu með öðrum orðum „að lýsa því yfir með verð­lagn­ing­unni að ekk­ert sé að marka orð og fyr­ir­heit stjórn­mál­anna um að inn­heimta eigi eðli­legan arð af auð­lind­inni þannig að þeir fjár­munir renni til þjóð­ar­innar. Og að engar breyt­ingar á því séu lík­legar. Á sama tíma horfum við upp á van­fjár­magnað heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfi án þess að lausnir á því séu í sjón­máli. Er eðli­legt að við­brögð stjórn­mál­anna tak­mark­ist við umræðu um kvóta­þak og sam­keppn­is­sjón­ar­mið? Á þetta bara að vera svona?“

Einn fylgj­andi Dags á Facebook skrifar í ummælum við þessa færslu hans að fróð­legt verði að fylgj­ast með for­ystu Vinstri grænna í fram­hald­inu af þess­ari nýj­ustu sam­ein­ingu í sjáv­ar­út­vegi.

„Það er sjálf­sagt að fylgj­ast með for­ystu VG en ég minni á að for­ysta Fram­sókn­ar­flokks­ins boð­aði hækkun auð­linda­gjalda fyrr í vetur, ef mig mis­minnir ekki. Hvað er að frétta af því? Hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn neit­un­ar­vald í þessum efnum? Eða er ekk­ert að marka orðin. Í þessu skiptir líka máli að flokkar í stjórn­ar­and­stöðu tali skýrt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár