Kjósendur Vinstri grænna hafa miklar áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi

Skiptar skoð­anir eru um aukna sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi hjá kjós­endum stjórn­ar­flokk­anna. Fleiri kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hafa minni áhyggjur en meiri af henni.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega 60 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna hafa fremur eða mjög miklar áhyggjur af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi í kjöl­far kaupa Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík. Á sama tíma hafa kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, mun minni áhyggjur af því.

Alls segj­ast 31,2 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa áhyggjur af þró­un­inni á meðan að 43 pró­sent þeirra hafa fremur eða mjög litlar áhyggjur af henni.

Á meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins mæl­ast þær áhyggjur 33,1 pró­sent á meðan að 36,1 pró­sent þeirra hafa fremur eða mjög litlar áhyggjur af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi.

Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði dag­ana 20. til 25. júlí. Svar­endur voru 1.069 tals­ins.

Heilt yfir sögð­ust 46,2 pró­sent kjós­enda hafa miklar áhyggjur á meðan að 27,9 pró­sent sögð­ust hafa litlar áhyggjur. Alls sögðu 26 pró­sent allra svar­enda að áhyggjur þeirra af sam­þjöppun væru í með­al­lagi.

Í nýj­ustu könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka kom fram að sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja sé nú 46,1 pró­sent, en þeir hafa allir tapað fylgi á fyrstu mán­uðum kjör­tíma­bils­ins. Þeir fengu sam­tals 54,3 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber í fyrra.

Eldri áhyggjufyllri en yngri

Kjós­endur allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka hafa mun meiri áhyggjur af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi í kjöl­far kaupanna. Í öllum til­fellum eru þeir fleiri sem svara því til en þeir sem hafa litlar áhyggjur.

Athygl­is­vert er að áhyggj­urnar vaxa eftir því sem svar­endur eru eldri. Mestar eru þær hjá 60 ára og eldri, þar sem 60,7 pró­sent kjós­enda segj­ast hafa miklar áhyggjur af þró­un­inni, en minnstar hjá 18 til 29 ára, þar sem 28,9 pró­sent eru áhyggju­fullir.

[adspot]Þegar horft er til tekna kemur í ljós að áhyggjur af sam­þjöppun eru meiri fremur en minni í öllum tekju­hópum. Sömu sögu er að segja um menntun.

Eini búsetu­hóp­ur­inn sem var með fleiri sem höfðu litlar áhyggjur af sam­þjöppun en meiri var Aust­ur­land.

Mögulega tengdir aðilar með næstum fjórðung kvótans

Tilkynnt var um það í síð­asta mán­uði að Síld­ar­vinnslan hefði keypt útgerð­ar­fé­lagið Vísi í Grinda­vík á 31 millj­arð króna.

Hluti af kaup­verð­inu verður greiddur með nýju hlutafé í Síld­ar­vinnsl­unni og í ljósi þess að gengi bréfa í félag­inu hefur hækkað síðan að til­kynnt var um við­skiptin hefur kaup­verðið þegar hækkað.

Verði þessi við­­skipti stað­­fest af hlut­hafa­fundi Síld­­ar­vinnsl­unnar, sem fer fram 18. ágúst, og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi fisk­veið­i­­heim­ildir Síld­­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­­sent hámark sem hver útgerð má sam­­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta. Vísir hélt á 2,16 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta þegar greint var frá því hvernig hann skipt­ist á milli útgerða í nóv­­em­ber í fyrra. Síld­­ar­vinnslan var þá skráð með 9,41 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Þegar við bæt­ist 1,03 pró­sent kvóti sem Bergur Hug­inn, sem Síld­ar­vinnslan lauk kaupum á í fyrra, heldur á fer sam­stæðan yfir tólf pró­sent hámark­ið.

Stærstu eig­endur Síld­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­son, sem var um tíma annar for­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­skyld­u­­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­ur.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að þessir aðilar, Síld­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­ur, eigi mögu­lega að telj­ast tengdir í skiln­ingi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eft­ir­litið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu sam­tals á 22,14 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­em­ber í fyrra. Nú bæt­ist 2,16 pró­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mögu­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Forsætisráðherra hefur áhyggjur, líkt og kjósendur hennar

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, sagði við fjöl­miðla eftir að kaupin voru kunn­gerð að hún hefði áhyggjur af þess­ari miklu sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. „Það er mín skoðun að það þurfi að end­ur­skoða það reglu­verk, bæði hvað varðar kvóta­þakið og tengda eig­end­ur […] Það þarf að ræða gjald­­tök­una, ekki síst þegar við sjáum þennan til­­­flutn­ing á auð­­magni milli aðila.“

Katrín sagði þetta vera grund­vallar­á­stæðan fyrir því að svo margir séu ósáttir við kvóta­kerf­ið, en í könnun sem Gallup gerði í fyrra­haust kom fram að 77 pró­sent aðspurðra styddi að mark­aðs­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­ar­inn­ar. Ein­ungis 7,1 pró­sent sögð­ust and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Aukin sam­þjöppun muni ekki auka sátt um grein­ina að mati for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín sagði að á sama tíma og auð­lindir hafs­ins væru skil­greindar sem þjóð­ar­eign þá væri að eiga sér stað sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi og að gríð­ar­legur auður væri safn­ast á fárra manna hend­ur. „Þetta er líka til skoð­unar hjá mat­væla­ráð­herra og varðar gjald­tök­una og líka þegar um er að ræða svona til­færslu á auð­magni eins og sést í þessu dæmi.“

Annað hljóð í hinum stjórnarflokkunum

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafði aðra sýn á málið. Í sam­tali við Frétta­blaðið sagði hann ​​marga ala á sundr­ungu vegna kerf­is­ins. „Varð­andi sam­þjöpp­un­ina þá eru lög og reglur sem gilda og sam­keppn­is­sjón­ar­mið sem verður horft til. Nú fer þetta í þann far­veg og ég vænti þess að það taki tíma og ég fylgist með eins og aðrir hvað kemur út úr þeirri athug­un.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sagði við RÚV að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin væru að keppa á stórum mark­aði úti í heimi og að hann skildi „að þessi fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem hafa kannski verið í rekstri í fjöru­tíu, fimm­tíu ár séu farin að velta því fyrir sér hvað ger­ist næst.“

Hann héldi að „þetta breyti svo­lítið þessum hugs­un­ar­hætti um að við séum með fjöl­breytta útgerð ef við verðum fyrst og fremst með mjög fáa mjög stóra aðila sem allir banka í kvóta­þakið að þá hlýtur það að kalla á ann­ars konar gjald­töku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár